Viðskipti innlent

Ís­lands­banki hagnaðist um 12,4 milljarða

Eiður Þór Árnason skrifar
Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka.
Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka. Vísir/vilhelm

Íslandsbanki hagnaðist um 12,4 milljarða króna á fyrri helmingi ársins og þar af um 6,1 milljarða á öðrum ársfjórðungi. Hagnaður eykst milli ára en hann nam 11,1 milljörðum króna á fyrstu sex mánuðum ársins 2022. Bankastjóri segir rekstur bankans hafa gengið vel á ársfjórðungnum sem hafi einnig einkennst af stórum áskorunum í tengslum við sölu á hlutum ríkisins í bankanum.

Íslandsbanki er seinastur þriggja stóru viðskiptabankanna til að birta árshlutauppgjör sitt. Á dögunum var tilkynnt að Arion banki hafi hagnast um 13,4 milljarða króna á fyrri helmingi ársins og Landsbankinn um 14,5 milljarða á sama tímabili. 

Hluthafafundur Íslandsbanka fer fram á morgun en boðað var til hans í kjölfar þess að Íslandsbanki gerðist sekur um lögbrot við sölu á hlutum í bankanum. Á hluthafafundinum verður ný stjórn bankans kjörin en formaður og varaformaður stjórnar hafa ákveðið að stíga til hliðar

Á öðrum ársfjórðungi jukust hreinar vaxtatekjur Íslandsbanka um 23,0% á milli ára og námu 12,6 milljörðum króna, samanborið við 10,3 milljarða króna á öðrum ársfjórðungi í fyrra. Hreinar þóknanatekjur jukust um 4,6% á milli ára og námu samtals 3,6 milljörðum króna á ársfjórðungnum, samanborið við 3,4 milljarða króna á sama ársfjórðungi ársins 2022.

Þetta kemur fram í árshlutauppgjöri Íslandsbanka. Vaxtamunur var 3,2% á öðrum ársfjórðungi, samanborið við 2,9% á sama ársfjórðungi ársins 2022. Þá jukust útlán til viðskiptavina um 18,8 milljarða króna á fjórðungnum, eða um 1,5% og voru 1.238 milljarðar króna í lok annars ársfjórðungs 2023.

Eiginfjárhlutfall bankans eykst

Aukning á innlánum frá viðskiptavinum á öðrum ársfjórðungi nam 16,6 milljörðum króna eða um 2,1%. Innlán voru 817 milljarðar króna í lok fjórðungsins. Eigið fé bankans nam 215,5 milljörðum króna í lok júní, samanborið við 218,9 milljarða króna í lok árs 2022.

Eiginfjárhlutfall bankans var 23,2% í lok annars ársfjórðungs, samanborið við 22,2% í árslok 2022. Samsvarandi eiginfjárhlutfall almenns þáttar 1 (CET1) var 20,0%, samanborið við 18,8% í lok síðasta árs. Arðsemi eigin fjár á öðrum ársfjórðungi var 11,5% á ársgrundvelli og telst yfir fjárhagslegum markmiðum stjórnenda bankans.

Hagur Íslandsbanka vænkaðist milli ára.Vísir/Egill

Stjórnunarkostnaður hækkar

Hrein fjármagnsgjöld námu 559 milljónum króna á öðrum ársfjórðungi, samanborið við fjármunatekjur að fjárhæð 208 milljónir króna á sama tímabili í fyrra.

Stjórnunarkostnaður nam 6,7 milljörðum króna á öðrum ársfjórðungi, ef frá er talin gjaldfærsla vegna stjórnvaldssektar sem nam 860 milljónum króna, samanborið við 6,0 milljarða króna stjórnunarkostnað á öðrum ársfjórðungi í fyrra. Um er að ræða 11,7% hækkun stjórnunarkostnaðar milli ára.

Jafnframt kemur fram í tilkynningu til Kauphallar að kostnaðarhlutfall bankans hafi verið 42,6% á öðrum ársfjórðungi og lækkað úr 42,7% frá fyrra ári. Hlutfallið er reiknað án bankaskatts og einskiptiskostnaðar, þar með talið 860 milljónum króna sem voru gjaldfærðar vegna stjórnvaldssektar.

Jákvæð virðisrýrnun nam 1.245 milljónum króna á öðrum ársfjórðungi, og má að sögn stjórnenda helst rekja til þess að virðisrýrnun nokkurra lánamála var færð til baka vegna góðra horfa í ferðamannaþjónustu. Virðisrýrnunin var jákvæð um 575 milljónir króna á öðrum ársfjórðungi 2022.

Biðjast afsökunar á framkvæmd útboðsins

Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka, segir að stærsta áskorun bankans á öðrum ársfjórðungi hafi verið sú niðurstaða fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands að starfsmenn hafi brotið lög við sölu á hlutum ríkisins í bankanum í mars 2022. Íslandsbanki lýkur málinu með sátt við Seðlabankann og greiðslu 1,2 milljarða króna sektar.

„Við hörmum þá ágalla sem voru á framkvæmd bankans vegna útboðsins og biðjumst afsökunar á þeim. Mikil vinna hefur staðið yfir til að mæta úrbótarkröfum fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands og mun sú vinna halda áfram næstu misserin,“ er haft eftir Jóni í tilkynningu.

Það var niðurstaða fjármálaeftirlitsins að viðeigandi lagakröfum og innri reglum bankans um veitingu fjárfestingarþjónustu hafi ekki verið fylgt í öllum tilvikum við undirbúning framkvæmd útboðsins. 

Birna Einarsdóttir hætti sem bankastjóri Íslandsbanki í lok júní eftir mikla umræðu um framgöngu Íslandsbanka í útboðsferlinu í mars 2022.Vísir/Vilhelm

Birna Einarsdóttir sagði af sér sem bankastjóri Íslandsbanka í lok júní. Auk hennar hafa fleiri hætt hjá bankanum í kjölfar niðurstöðu Seðlabankans. Þeirra á meðal eru Ásmundur Tryggvason, framkvæmdastjóri á sviði fyrirtækja og fjárfesta, og Atli Rafn Björnsson, sem stýrði fyrirtækjaráðgjöf bankans. 

Finnur Árnason, Guðrún Þorgeirsdóttir og Ari Daníelsson gefa ekki kost á sér til áframhaldandi setu í stjórn Íslandsbanka. Finnur er núverandi stjórnarformaður bankans og Guðrún varaformaður. Ari keypti bréf fyrir tæpar 55 milljónir króna í útboði á hlutum ríkisins í Íslandsbanka sem fram fór í fyrra. Samkvæmt fjármálaeftirlitinu var honum óheimilt að taka þátt í útboðinu miðað við reglur um viðskipti stjórnenda.

Fréttin hefur verið uppfærð.


Tengdar fréttir

Arion banki hagnaðist um 13,4 milljarða króna

Arion banki hagnaðist um 13,4 milljarða króna á fyrri helmingi þessa árs. Þar af nam hagnaður 7,1 milljarði króna á öðrum ársfjórðungi samanborið við 10,1 milljarða á sama tímabili í fyrra. Bankastjóri segir uppgjörið vera í takt við væntingar.

Hagnast um 14,5 milljarða og greiða 16,5 fyrir nýjar höfuðstöðvar

Landsbankinn hagnaðist um 14,5 milljarða króna á fyrri helmingi ársins 2023, þar af 6,7 milljarða á öðrum ársfjórðungi. Hreinar vaxtatekjur jukust um 28,6% milli ára og hreinar þjónustutekjur um 6,1%. Kostnaður við byggingu nýrra höfuðstöðva hefur farið fram úr áætlun og er nú áætlaður 16,5 milljarðar






Fleiri fréttir

Sjá meira


×