Gefðu starfsfólkinu útivist og ævintýri! ZO•ON 30. ágúst 2023 13:00 ZO•ON býður upp á þjónustu fyrir fyrirtæki og stofnanir. Hér má sjá dúnvestið Skaga. Útivistarfyrirtækið ZO•ON er rótgróið fjölskyldufyrirtæki sem hefur hannað fatnað fyrir íslenskar aðstæður hátt í 30 ár.
Vörulína ZO•ON er breið og er hægt að finna eitthvað fyrir alla segir María Brá Finnsdóttir, viðskiptastjóri hjá ZO•ON. „Við erum með úrval af vönduðum fatnaði og fylgihlutum eins og yfirhafnir, peysur, buxur, húfur, hanska, töskur, belti og margt fleira. Vörurnar eru hannaðar fyrir íslenskt veðurfar og henta því fyrir fjölbreyttar aðstæður, allt árið um kring.“ Frá vinstri: Halldór Örn Jónsson framkvæmdastjóri, María Brá Finnsdóttir viðskiptastjóri og Einhildur Ýr Gunnarsdóttir markaðsstjóri. Metnaðarfull fyrirtækjaþjónusta ZO•ON býður upp á þjónustu fyrir fyrirtæki og stofnanir, hvort sem það er starfsmannafatnaður eða tækifærisgjafir. „Mikill metnaður er lagður í að bjóða upp á persónulega og góða þjónustu þar sem reynt er eftir fremsta megni að uppfylla þarfir hvers og eins,“ segir María. „Mörgum finnst erfitt að velja fatnað fyrir starfsfólk sitt og þá er tilvalið að gefa gjafakort eða fylgihluti sem allir geta notað, eins og húfur, hanska og töskur.“ Starfsmannafatnaður í miklu úrvali Hjá ZO•ON er breitt vöruúrval af hversdagsfatnaði og yfirhöfnum sem er hægt að sérmerkja að sögn Maríu. „Við bjóðum upp á sérframleiðslu fyrir fyrirtæki á starfsmannafatnaði. Algengt er að fyrirtæki láti merkja fötin og við veitum ráðgjöf varðandi allar slíkar merkingar.“ Dæmi um vinsælan fyrirtækjafatnað, regnjakkinn Bleyta og Klaki Parka úlpa. Gjafakort ZO•ON Gjafakort er vinsæl og skemmtileg gjöf sem gleður alla. „Gjafakort ZO•ON koma í vönduðu umslagi og henta því einstaklega vel sem tækifærisgjöf fyrir starfsfólkið þitt. Þau eru þægileg í notkun, renna aldrei út og hægt er að nota þau í öllum okkar verslunum og einnig í netverslun.“ Gjafaaskja með gjafakorti, hönskum og húfu ásamt nokkrum gerðum af töskum. Einnig hefur verið vinsælt að kaupa gjafakort hjá ZO•ON og bæta við smærri gjöf segir María. „Gjafakortin koma í umslagi og við getum útbúið fallega gjafaöskju þar sem öllu er pakkað inn.Gjafaöskjurnar eru sérhannaðar og settar saman eftir þörfum fyrirtækja.“ Hægt er að fá rafræn gjafakort fyrir hópa sem er tilvalið fyrir fyrirtæki eða stofnanir sem vilja minnka umhverfisspor sitt. Peysan Verma er úr teygjanlegu flísefni og hefur verið ein vinsælasta varan fyrir fyrirtæki. Nýjar vetrarvörur að detta í hús Spennandi vetur er framundan hjá ZO•ON að sögn Maríu. „Vetrarvörurnar eru að koma inn núna á næstu vikum en fyrstu sendingarnar koma inn um mánaðarmótin. Stór hluti af línunni okkar er fáanlegur allan ársins hring svo fáum við líka nýjar vörur í nýjum litum eftir árstíðum. Við eigum von á spennandi nýjungum eins og tæknilegum þriggja laga fatnaði, bakpokum, mittistöskum, merino ullarfatnaði og mörgu fleiru. Við hvetjum fyrirtæki að stuðla að heilbrigðu líferni og vellíðan með ZO•ON útivistarfatnaði fyrir næsta ævintýri.“ Hægt er að finna nánari upplýsingar um fyrirtækjaþjónustuna hér eða senda fyrirspurnir á sala@zo-on.com.
Tíska og hönnun Jólagjafir fyrirtækja Mest lesið Sýnishornið of ólíkt borðplötunni sem skilaði sér heim Neytendur Stefán stefnir á opnun fyrir jól: „Þetta verður bullandi stemning“ Viðskipti innlent Vilja selja Landsbankann Viðskipti innlent Taka tvær Airbus-þotur til á leigu Viðskipti innlent Samdráttur hafinn í byggingariðnaði sem skapi efnahagslegan vítahring Viðskipti innlent Yrði fljótt kvíðinn með aleiguna í Bitcoin Viðskipti innlent Lísbet nýr lögfræðingur Viðskiptaráðs Viðskipti innlent Nýtti glugga þegar hann opnaðist og þurfti ekki að kaupa fyrirtækið til baka Viðskipti innlent Ráðin forstöðumaður Trygginga hjá Landsbankanum Viðskipti innlent Kormákur og Skjöldur yfirgefa Leifsstöð Viðskipti innlent Fleiri fréttir BMW lækkar verð á nýjustu kynslóð sportjeppans X3 Plug-in Hybrid Gætum orðið fyrsta landið í heiminum til að snúa þróun offitu við Nýr vefur Félags foreldra- og uppeldisfræðinga kominn í loftið „Ekki bara steypa heldur fólk og framtíð“ Framtíð tannlækninga og gervigreindar – kynntu þér Oraxs Sjónvarpsapp Sýnar aðgengilegt í Samsung sjónvörpum „Það er draumur að vera á BMW og keyra fram á nótt” Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Sjá meira