Lífið

Sölvi Tryggva og tansaníska fegurðardísin ferðast um landið

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Esther virðist njóta íslensku náttúrunnar.
Esther virðist njóta íslensku náttúrunnar. Aðsend

Hlaðvarpsstjórnandinn Sölvi Tryggvason og tansaníska fegurðardísin, Esther Kaliassa, hafa ferðast vítt og breitt um landið í blíðskapar veðri undanfarna daga. Sölvi hefur kynnt kærustuna fyrir helstu náttúruperlum Íslands.

Af myndunum að dæma er ljóst að Sölva hefur tekist að draga Esther í fjallgöngur og ástríðu hans fyrir náttúrunni. Esther greindi frá því á Instagram að slíkar ferðir væru út fyrir hennar þægindaramma.

Í vikunni gekk parið inn Reykjadal og böðuðu sig í náttúrulauginni í félagsskap hlaðvarpsstjörnunnar Helga Jean. Auk þess sýndi Sölvi Esther hinn fagra Brúarfoss.

Esther við Brúarfoss.Aðsend

Að sögn parsins stefna þau á að ferðast meira um landið næstu daga á meðan Esther er hér á landi. Esther hafði áður fengið að kynnast Íslandi í annars konar aðstæðum síðastliðinn vetur þegar mesta kuldakasti síðari ára reið yfir landið.

Esther og Sölvi kynntust á ferðalagi.Aðsend

Ferðalög og útivist sameiginlegt áhugamál

Parið hefur verið saman í rúmlega eitt ár og kynntust þau á ferðalagi. Óhætt er að segja að ferðalög séu þeirra sameiginlega áhugamál. Á þeim stutta tíma sem þau hafa verið hafa þau ferðast um Tansaníu,  Suður-Afríku og Ísland.

Esther er menntaður innanhússhönnuður og starfar við það fag. Auk þess stundar hún jóga af kappi og leikur við öldurnar á brimbretti þegar tími gefst.

Sölvi hefur undanfarin ár haldið úti einu vinsælasta hlaðvarpi landsins, Podcast með Sölva Tryggva, þar sem hann tekur viðtöl við fólk úr öllum áttum um daginn og veginn. Þá tekur hann einnig að sér ráðgjöf í hinum ýmsu verkefnum.


Tengdar fréttir

Sölvi Tryggva kominn á fast

Hlaðvarpsstjórnandinn Sölvi Tryggvason hefur fundið ástina í örmum Estherar Kaliassa.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.