Lífið

Stjörnulífið: Októberfest og Gummi kíró í baði

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Haustið er komið með pompi og prakt.
Haustið er komið með pompi og prakt.

Síðastliðin vika var heldur betur viðburðarík hjá íslensku stjörnunum. Tónleikahátíðir, frumsýningar og brúðkaup voru áberandi um helgina og haustið mætti með stæl. 

Háskólanemar skemmtu sér vel um helgina á Októberfest í Vatnsmýrinni þar sem úrvalslið íslenskra tónlistarmanna kom fram. Má þar meðal annars nefna Aron Can, Bríeti, GDRN, Diljá Péturs, Stuðlabandið og Prettyboitjokkó.

Flottur rass og Idol

„Fannst ég vera með svo flottan rass á þessari mynd,“ skrifaði tónlistarkonan Bríet við myndasyrpu frá fyrstu tökudögum af Idol.

Hlutverk hjákonu bakvið tjöldin 

Ásdís Rán Gunnarsdóttir birti myndir af sér bak við tjöldin við tökur á nýjustu mynd ítalska leikstjórans Lor­enzo Faccenda. Hún fer með hlutverk hjákonu auðkýfings sem er eitt af aðalhlutverkum kvikmyndarinnar og jafnframt hennar stærsta sem leikkona til þessa.

Knúshelgin mikla

Listaparið Aldís Amah Hamilton og Kolbeinn Arnbjörnsson fögnuðu ástinni í tveimur brúðkaupum um helgina. Auk þess hélt Kolbeinn listsýningu í Núllinu gallerý.

Besta kvöldið 

Raunveruleikastjarnan Ástrós Traustadóttir birti mynd af sér úr forsýningarpartýi LXS á dögunum.

Áslaug Arna þakklát

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir ráðherra segist þakklát fyrir allt sitt á tímamótum.

„Fjögur ár. Þakklát og geri alltaf mitt allra besta. Ég var 28 ára, yngsti dómsmálaráðherra í heimi. Viðbrögðin voru allskonar en ég tók sæti í ríkisstjórn Íslands full tilhlökkunar og hef sett þau verkefni öll í forgang alltaf. Því ég veit að þetta er ekki sjálfsagt. Ég trúi á Ísland og fólkið hér og á meðan ég er í stjórnmálum verður það alltaf í forgangi. Þakklát fyrir fólkið mitt allt alltaf.“

Sunnudags sjálfa 

Birgitta Líf Björnsdóttir smart á sunnudegi.

Hlakkar til jólanna

Helgi Ómarsson telur niður dagana til jóla.

Myndar kærustuna 

Benedikt Bjarnason, sonur fjármálaráðherra, mætir með myndavélina hvert sem hann fer og er duglegar að mynda kærustuna og raunveruleikastjörnuna, Sunnevu Einars. 

Gott kaffi gulli betra

Tanja Ýr Ástþórsdóttir fékk sér góðan kaffibolla.

Vinnuferð í Svíþjóð

Viktor Andersen er staddur í vinnuferð í Gautaborg.

Evróputúr Nönnu í Of Monsters Of Men

Tónlistarkonan Nanna Bryndís Hilmarsdóttir telur niður dagana í að halda tónleikaferðalagi sínu áfram. 

Litríkar vinkonur

Kolbrún Pálína Helgadóttir fjölmiðlakona og fegurðardrottning birti skemmtilega mynd af sér ásamt föngulegum hópi kvenna.

Keppni förðunarfræðinga

Marín Manda Magnúsdóttir, Harpa káradóttir og Ísak Helgason eru spennt fyrir nýrri þáttaröð Útlit sem verða sýndir á Stöð 2. 

Skvísumynd í sólinni

Athafnakonan Camilla Rut Rúnarsdóttir er nýlega komin heim úr fríi frá Tenerife. 

„Tene sakn og allt það,“ skrifar Camilla við skvísumynd af sér í sólinni.

Sjötug og glæsileg

Hildur Björnsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins skálaði, fagnaði sjötugsafmæli móður sinnar um helgina.

Gummi kíró í baði

Guðmundur Birkir Pálmason, eða Gummi Kíró, birti mynd af sér pósa í baði.

Sat fyrir á nærbuxunum eftir að hafa lagt kolvetnin til hliðar

Óskar Logi Ágústsson og félagar í Vintage Caravan spiluðu helstu slagara Trúbrots á tónleikum Magga Kjartans á laugardagskvöldið. Strákabandið sló í gegn og Óskar birti myndir frá veislunni.

Jónas Sen tónlistargagnrýnandi mætti einnig á Magga Kjartans og gaf tónleikunum fjórar stjörnur.


Tengdar fréttir

Stjörnulífið: Nekt í Hvammsvík og Manuela aftur á föstu

Sól, rómantík og útivist einkenndi liðna viku hjá stjörnum landsins. Leikkonan Aldís Amah Hamilton baðaði sig í náttúrulaug á Evuklæðunum í Hvammvík. Afrekshlaupakonan Mari Jaersk tók þátt í utanvegahlaupinu, Tindahlaupið í Mosfellsbæ þar sem hún bar sigur úr bítum og varð Tindahöfðingi.

Stjörnulífið: Þjóðhátíð, Barbie útibíó og ást á Ítalíu

Íslensku stjörnurnar halda áfram að njóta sumarsins hvort sem það er erlendis eða úti á landi. Liðin vika einkenndist af ferðalögum á einni stærstu ferðahelgi ársins, en sumarfríum landsmanna fer senn að ljúka. Útihátíðir voru vinsælar um helgina, þá sérstaklega Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum.

Stjörnulífið: Hátíðarhöld, hinsegin dagar og hundaafmæli

Íslensku stjörnurnar halda áfram að njóta sumarsins hvort sem það er í sólinni erlendis eða úti á landi. Fjölmiðlamaðurinn Siggi Gunnars naut Hinsegin daga í Hrísey með ástinni sinni og leikarinn Bjarni Snæbjörnsson var sömuleiðis þar. Stórstjörnurnar Birgitta Haukdal og Páll Óskar létu Mærudaga á Húsavík ekki fram hjá sér fara en Birgitta fagnaði einnig 44 ára afmæli sínu í sínum heimabæ. 

Stjörnulífið: Íslenskar barbies, brúðkaup og bossar

Barbie er sannarlega að eiga stórt móment í dægurmenningunni í dag og samfélagsmiðlastjörnur landsins taka því fagnandi. Ástin einkenndi síðastliðna viku með brúðkaupum og bumbumyndum og Íslendingar halda áfram að ferðast, hvort sem það er innanlands eða að elta sólina. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.