Viktor Pétur nýr formaður SUS Atli Ísleifsson skrifar 18. september 2023 10:57 Steinar Ingi Kolbeins ,Viktor Pétur Finnsson og Gunnlaug Helga Ásgeirsdóttir. Aðsend Viktor Pétur Finnsson, viðskiptafræðinemi við Háskóla Íslands og formaður Stefnis FUS í Hafnarfirði, var kjörinn formaður Sambands ungra Sjálfstæðismanna af fulltrúum aðildarfélaga á 47. Sambandsþingi Sambands ungra sjálfstæðismanna (SUS) sem fram fór á Hótel Selfoss um helgina.
Í tilkynningu segir að fátt í tvö hundruð ungir Sjálfstæðismenn hafi sótt þingið. Steinar Ingi Kolbeins, aðstoðarmaður umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hlaut þar endurnýjað kjör til embættis 1. varaformanns og Gunnlaug Helga Ásgeirsdóttir, sérfræðingur í sjálfbærum orkuvísindum, var kjörin 2. varaformaður. Viktor Pétur tekur við formennsku af Lísbet Sigurðardóttur, en auk Viktors, Steinars og Gunnlaugar voru 39 aðrir einstaklingar kjörnir í stjórn sambandsins. „Viktor er 24 ára viðskiptafræðinemi úr Hafnarfirði. Hann hefur undanfarin ár gegnt formennsku í Stefni, félagi ungra Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði. Þá er hann jafnframt formaður kjördæmasamtaka ungra Sjálfstæðismanna í Suðvesturkjördæmi en hann hefur víðtæka reynslu af trúnaðarstörfum innan sem utan Sjálfstæðisflokksins. Viktor var m.a. formaður Vöku, félags lýðræðissinnaðara stúdenta við HÍ, síðastliðinn vetur. Jafnframt hefur Viktor starfað undanfarin ár við leikstjórn, sem flugþjónn hjá Icelandair og blaðamaður á mbl.is. Steinar Ingi er 26 ára stjórnmálafræðinemi úr Grafarvogi. Hann er sitjandi 1. varaformaður stjórnar SUS. Hann starfar sem aðstoðarmaður umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. Steinar hefur um árabil gegnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn en jafnframt hefur hann tekið virkan þátt í öðrum félagsstörfum. Steinar hefur m.a. setið í stjórn Vöku, hagsmunafélagi stúdenta, stjórn Heimdallar, félagi ungra Sjálfstæðismanna í Reykjavík, auk ýmissa annara stjórnarstarfa. Steinar starfaði áður sem blaðamaður á mbl. Gunnlaug Helga er 28 ára og starfar hjá Carbfix. Hún er með MSc í sjálfbærum orkuvísindum frá Iceland School of Energy (HR) og BSc í sjávarútvegsfræði frá Háskólanum á Akureyri. Gunnlaug er uppalin á Ólafsfirði og hefur setið í stjórn Sjálfstæðisfélags Ólafsfjarðar, bæði sem ritari og gjaldkeri. Hún situr nú í stjórn kjördæmisráðs í Norðausturkjördæmi og er jafnframt varamaður í stjórn Ungra athafnakvenna. Gunnlaug hefur meðal annars starfað sólarorkufyrirtækinu Elgin Energy á Írlandi og sem verkefnastjóri Sjávarútvegsskóla unga fólksins,“ sagði í tilkynningu fyrir þingið. Mikil hægri sveifla Í tilkynningu segir að á þinginu segir að mál líðandi stundar hafi verið í deiglunni sem og málefni ungs fólks. Aðaláherslumál þingsins að þessu sinni hafi verið mennta- og skólamál, heilbrigðismál, húsnæðismál og verndarkerfi flóttamanna. Haft er eftir VIktori Pétri að aðaláherslumál ungra sjálfstæðismanna á þinginu hafi verið skýr og það hafi verið mikil hægri sveifla á stefnu sambandsins. „Við viljum frelsisbyltingu í menntamálum með því að taka upp ávísanakerfi og fjölga sjálfstætt starfandi leik- og grunnskólum. Þannig getum við stóreflt nám á Íslandi, gefið foreldrum raunverulegt frelsi um menntun barna sinna sem byggir á þörfum og styrkleikum hvers barns á sama tíma og við bætum kjör og starfsaðstæður skólastarfsfólks. Það sama er upp á teningnum í heilbrigðismálum. Við þurfum að fjölga einkareknum heilsugæslum, sérstaklega á landsbyggðinni, til að tryggja fólki betri þjónustu. Með því að láta fé fylgja sjúklingnum sköpum við hvata fyrir heilbrigðisstofnanir að bæta gæði og skilvirkni svo bið eftir heilbrigðisþjónustu minnki. Svona aukum við samkeppni og biðlistar minnka á sama tíma og þjónusta batnar til muna án þess að kosta einstaklinginn fúlgur fjár,” segir Viktor Pétur, formaður SUS. Vilja búsetuúrræði með takmörkunum Yfirgnæfandi samstaða er sögð hafa verið um það í málefnastarfi þingsins að finna þurfi lausnir við þeim vandamálum í kerfinu sem snúi að umsækjendum um alþjóðlega vernd. „Samþykkt var á þinginu að setja í stefnu SUS að stutt sé við þá hugmynd að koma á fót búsetuúrræðum með takmörkunum fyrir þá hælisleitendur sem ekki eiga samvinnu við yfirvöld, í kjölfar þess að hafa fengið synjun um hæli, þar til að brottvísun kemur og samrýmast þar með Schengen-svæðinu,“ segir í tilkynningunni.
Sjálfstæðisflokkurinn Vistaskipti Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Fleiri fréttir Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Stakk af frá fargjaldi leigubíls Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Sjá meira