Lífið

Stjörnulífið: Stórafmæli, skvísupartý og ástin

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Stórafmæli, ástin og utanlandsferðir voru áberandi í liðinni viku hjá stjörnum landsins.
Stórafmæli, ástin og utanlandsferðir voru áberandi í liðinni viku hjá stjörnum landsins.

Síðastliðin vika einkenndist af tímamótum hjá íslensku stjörnunum. Stórafmæli, nýtt snyrtivörumerki og ferðalög voru áberandi á samfélagsmiðlunum.

Fertug og fabjúlöss

Dansarinn og listræni stjórnandinn Stella Rósenkranz fagnaði afmæli sínu um helgina og væri til í að eiga afmæli alla daga. 

Brúðkaup í Mývatnssveit

Útvarpskonan Kristín Sif Björgvinsdóttir gekk í það heilaga með ástinni sinni tónlistarmanninum Stefáni Jakobssyni. Tónlistarkonan Stefanía Svavarsdóttir var meðal flytjenda kvöldsins og tók hún vel valin lög með brúðgumanum.

Girnilegar kleinur

Inga Lind Karlsdóttir fjölmiðlakona var heldur betur öflug um helgina og bakaði kleinur. Inga Lind er sannkallaður þúsundþjalasmiður og sést ýmist með tennisspaða eða golfkylfu í hönd. 



Einkadóttirin tveggja ára

Listaparið María Birta Bjarnadóttir og Elli Egilsson fögnuðu tveggja ára afmæli dóttur þeirra Ignaciu á dögunum.

Fór á tyrkneskar slóðir

Tónlistarmaðurinn Aron Can og fjölskylda heimsóttu skyldmenni hans í Tyrklandi.

Þróaði nýjan Collab

Tónlistarkonan Bríet þróaði nýjan Collab drykk í samstarfi við Ölgerðina. Dósin er svört með hvítu letri, og teiknaðri mynd af Bríeti eftir listakonuna Sunnevu Snorradóttur.

Þrjár utanlandsferðir á tólf dögum

Tónlistarmaðurinn Patrik Atlason eða Prettyboitjokkó hefur í nógu að snúast hérlendis sem og utan. Hann er nýlega kominn heim úr sinni þriðju utanlandsferð á aðeins tólf dögum.

Töff í haustlitum

Gummi kíró elskar haustið. 

https://www.facebook.com/photo?fbid=10160754175720240&set=a.10151747042615240

Sætur og seiðandi

Hjúkrunarfræðingurinn Viktor Andersen fannst hann sætur og birti mynd.

Ofurskvísa

Fyrirsætan og Ísdrottningin Ásdís Rán Gunnarsdóttir birti af sér seiðandi mynd. 

Í góðra vina hópi

Þingmaðurinn Diljá Mist Einarsdóttir var kjörin formaður utanríkismálanefndar Alþingis. Þar hitti hún tónlistarmanninn Bubba Morthens, alsæl á svip. 

Nýtt snyrtivörumerki

Heiður Ósk Eggertsdóttir og Ingunn Sigurðardóttir eigendur Reykjavík Makeup School fögnuðu fyrstu íslensku snyrtivörulínu sinni, Chilli In June, á dögunum á Edition hótelinu. Vinkonurnar fögnuðu með góðum hópi áhrifavalda.

Fjölskylda á heimaslóðum

Afrekshlaupakonan Mari Jaersk fór og hitti fjölskylduna sína í Eistlandi.

Fundar erlendis

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir ráðherra segir ekki amalegt að vera með nýsköpunargellunum á Tech BBQ.

Glæsileg með kúluna

Birgitta Líf Björnsdóttir er hálfnuð með meðgönguna og birti mynd í tilefni af því. 

Hinn íslenski Jim Morrison

Björgvin Franz Gíslason fór á kostum í hlutverki Jim Morrison á tónleikum í Háskólabíó á föstudagskvöldið. Þar endurtóku Björgvin Franz og félagar leikinn frá því fyrir tuttugu árum nema nú var Vera Illugadóttir með teyminu í liði. Vera sagði sögu Morrison og myndum var varpað upp á tjald.

Björgvin á sviðinu í Háskólabíó á föstudagskvöldið.Vísir/KTD

Háskólabíó var smekkfullt og mikil stemmning. Hljómsveitin var skipuð þeim Daða Birgissyni á hljómborði, Berki Hrafni Birgissyni á gítar, Kristni Snæ Agnarssyni á trommum og Birgi Kárasyni á bassa. Greta Salóme Stefánsdóttir sá um leikstjórn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.