Íslenska lögreglan kynnist rafbyssunum umdeildu Helena Rós Sturludóttir skrifar 22. september 2023 21:22 Birna Blöndal Sveinsdóttir, lögreglufulltrúi og þjálfari, lét prófa að skjóta sig með rafbyssu vegna starfa sinna til að vita hvernig tilfinningin væri. Vísir/Arnar Undirbúningur lögreglu fyrir komu rafbyssa er nú í fullum gangi undir handleiðslu erlendra sérfræðinga. Íslensk lögreglukona segir alveg nóg að prófa einu sinni að vera skotin og fá fimm sekúndna rafstraum úr vopninu.
Lögreglufólki varð heimilt að nota rafbyssur í lok janúar þegar fyrrverandi dómsmálaráðherra undirritaði reglubreytingu þess efnis. Breytingin var afar umdeild í samfélaginu og innan ríkisstjórnarinnar. Í sumar ákvað nýr dómsmálaráðherra í samráði við lögregluna að hefja innleiðingu rafbyssa og nú er þjálfun hafin. Leiðbeina íslenskum þjálfurum Erlendir sérfræðingar frá fyrirtækinu Axon hafa verið á landinu síðustu daga og þjálfað innlenda sérfræðinga sem munu sjá um þjálfun lögreglumanna hér á landi þegar þar að kemur. Justin Shute, leiðbeinandi frá Axon fyrir Skandinavíu, segir rafbyssurnar öruggari en margt annað. Rafbyssurnar framleiði um þúsund volta rafspennu sem berist með tveimur vírum í tvær pílur sem stingast í manneskjuna. „Þær gefa rafstuð til vöðvanna og lætur þá herpast saman. Við köllum þetta að lama taugar og vöðva. Þetta gerist um leið og pílurnar lenda í líkamanum og líkaminn læsist. Svo það er þegar í stað hægt að gera hættuna óvirka,“ útskýrir Justin. Straumurinn kemur frá leiðslunum í gegnum nálarnar í líkamann. Tvö skot þarf til að gefa straum. Vísir/Arnar Sársauki í fimm sekúndur Justin segir sársaukann vara í um fimm sekúndur á meðan straumurinn standi yfir en að því loknu séu engin frekari óþægindi eða fylgikvillar. Ákvörðun Jóns Gunnarssonar, fyrrverandi dómsmálaráðherra, um að leyfa notkun rafbyssa var umdeild og vakti óhug meðal almennings. „Rafbyssur eru ný tækni og það er skiljanlegt að fólk hafi efasemdir um nýja tækni. Sannleikurinn er sá að rafbyssur eru öruggari en næstum öll önnur valdbeiting lögreglunnar. Það eru minni líkur á að lögreglumenn slasist og þetta veldur minni meiðslum á almenningi en þau vopn sem lögreglan hefur nú þegar,“ segir Justin. Rafbyssur hafi fælingarmátt Dæmin sýni að í flestum tilfellum þurfi ekki að grípa til notkunar rafbyssa. „Þetta er áhrifaríkast sem fælingartæki og kannski mun Íslendingum finnast þeir öruggari vitandi að þeir hafi áhrifaríkari fælingartæki sem eru ólíklegri til að slasa almenning,“ segir hann jafnframt. Justin Shute, leiðbeinandi frá Axon fyrir Skandinavíu.Vísir/Arnar Drífa hátt í fjórtán metra Að sögn Justins er drægni rafbyssunnar um fjórtán metrar og allt í tengslum við þær skráist sjálfkrafa niður og sé vistað, allt frá því að byssan er tekin úr hulstrinu og þar til henni er skilað. Birna Blöndal Sveinsdóttir lögreglufulltrúi mun sjá um þjálfun lögreglunnar hér á landi þegar þar að kemur. Hún ákvað að láta prófa skjóta sig með rafbyssu og segir Birna reynsluna ólíkt öllu öðru sem hún hefur prófað enda sé afleiðingin tímabundin vöðvalömun. Æfingaskotmörk lögreglunnar.Vísir/Arnar Tímabundin vöðvalömun „Þetta er svolítið skrítið af því þú finnur þetta í öllum vöðvum líkamans. Þú spennist öll upp og þetta er vont en um leið og straumurinn er búinn þegar þessar fimm sekúndur eru liðnar þá er þetta bara búið,“ segir Birna og bætir við að straumurinn valdi einnig ákveðinni viðhorfsbreytingu. „Ef ég hefði verið í árásarham eða að streitast á móti þá voru þessar fimm sekúndur alveg nóg fyrir mig til að fá mig til að skipta um skoðun og haga mér betur.“ Sérðu fyrir þér að prófa aftur? „Einu sinni er alveg nóg,“ segir Birna og hlær.
Lögreglan Rafbyssur Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Tengdar fréttir Kostnaður við rafbyssurnar áætlaður 54 milljónir króna Samkvæmt þeim upplýsingum sem Ríkiskaup hafa um fyrirhuguð kaup Ríkislögreglustjóra á rafbyssum fela fyrstu kaup í sér 120 rafbyssur fyrir um 54 milljónir króna án virðisaukaskatts. 15. júní 2023 08:33 Ríkisstjórnin hangi saman af ótta við kjósendur Stjórnmálafræðiprófessor segir allt leika á reiðiskjálfi í ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur. Flokkarnir eigi erfitt með að ná saman um einstök mál. Þetta leiði til þess að hver ráðherra vinni í sínu horni. Þingmaður Samfylkingarinnar segir ríkisstjórnina hanga saman af ótta við kjósendur. 6. júlí 2023 13:18 Rafbyssur og slys á lögreglumönnum: Ráðherra mátti vita betur Það kemur skýrt fram í minnisblaði ríkislögreglustjóra til dómsmálaráðuneytisins að prófanir og rannsóknir á notkun norsku lögreglunnar á rafbyssum hafi leitt í ljós að notkun vopnanna hefur ekki áhrif á fjölda meiðsla hjá lögreglu eða „mótaðila“. 30. mars 2023 09:10 Pallborðið: Rafbyssuvæðing lögreglunnar á Íslandi Rafbyssuvæðing lögreglunnar á Íslandi verður til umfjöllunar í Pallborðinu í beinni útsendingu á Vísi klukkan 14 í dag. Gestir verða Fjölnir Sæmundsson, formaður Landssambands lögreglumanna, og Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata. 3. apríl 2023 13:22 Undirbúningur hafinn fyrir notkun rafbyssa Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri segir undirbúning hafin fyrir notkun lögreglunnar á rafbyssum. Ágreiningur var milli ráðherra Vinstri grænna og dómsmálaráðherra um reglugerð sem hann gaf út og heimilaði notkun rafbyssa. Sigríður Björk segir að nú standi yfir undirbúningur útboðs á vopnunum fyrir lögreglu og hvaða tæknimöguleikar væru bestir. 21. mars 2023 13:13 Mest lesið Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent Margmenni fyrir utan höllina og blómvendir uppseldir Innlent „Þetta er ekki alveg óvænt“ Innlent Almenningur hafi aldrei átt séns Innlent Uppsagnirnar hafi líka áhrif á þá sem eftir verða Innlent Einn makrílfarmur skilar yfir 400 milljóna króna verðmæti Innlent Ungt hægrifólk tekst á um ESB: „Stutt á milli stöðnunar og stöðugleika“ Innlent Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Innlent Vissu ekki að þeir yrðu í auglýsingu fyrir Áfram Ísland Innlent Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Innlent Fleiri fréttir Uppsagnirnar hafi líka áhrif á þá sem eftir verða Ungt hægrifólk tekst á um ESB: „Stutt á milli stöðnunar og stöðugleika“ „Þetta er ekki alveg óvænt“ Einn makrílfarmur skilar yfir 400 milljóna króna verðmæti ESB geti hvorki tekið yfir orkuauðlindir né skipað Íslandi að leggja sæstreng Margmenni fyrir utan höllina og blómvendir uppseldir Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Samræmdar reglur um símafrí settar EES án Íslands „ekki klúbbur sem maður vill vera í“ Nei-sinnar fleiri í fyrsta sinn „Hjákátlegt“ sé að ræða verð á kaffibollum í Búdapest Stungan leiddi til skurðar Vissu ekki að þeir yrðu í auglýsingu fyrir Áfram Ísland Beint streymi frá opnum fundi Áfram Ísland Beint streymi frá opnum fundi Já til að sjá Fer fram á allt að tíu ára fangelsi í Reykholtsmálinu „Við höfum gott af því að rífast aðeins“ Almenningur hafi aldrei átt séns Óákveðnir hallist jafnan að minni breytingum Ætlar ekki að láta kúga sig Pallborðið: Satt, logið og umdeildar auglýsingar Alvarlega staða kalli á sameiginlegt átak Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Forsendur brostnar og heilsu konungs hrakar Maðurinn sem lést í Stuðlagili sagður pólskur Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Beint streymi: Háskólamenntaðir á húsnæðismarkaði Málið vegna fjársöfnunar Solaris tekið fyrir í héraðsdómi Þrjú heimilisofbeldismál til rannsóknar eftir nóttina Mikilvægt að fatlaðir geti tekið þátt í umræðunni Sjá meira
Kostnaður við rafbyssurnar áætlaður 54 milljónir króna Samkvæmt þeim upplýsingum sem Ríkiskaup hafa um fyrirhuguð kaup Ríkislögreglustjóra á rafbyssum fela fyrstu kaup í sér 120 rafbyssur fyrir um 54 milljónir króna án virðisaukaskatts. 15. júní 2023 08:33
Ríkisstjórnin hangi saman af ótta við kjósendur Stjórnmálafræðiprófessor segir allt leika á reiðiskjálfi í ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur. Flokkarnir eigi erfitt með að ná saman um einstök mál. Þetta leiði til þess að hver ráðherra vinni í sínu horni. Þingmaður Samfylkingarinnar segir ríkisstjórnina hanga saman af ótta við kjósendur. 6. júlí 2023 13:18
Rafbyssur og slys á lögreglumönnum: Ráðherra mátti vita betur Það kemur skýrt fram í minnisblaði ríkislögreglustjóra til dómsmálaráðuneytisins að prófanir og rannsóknir á notkun norsku lögreglunnar á rafbyssum hafi leitt í ljós að notkun vopnanna hefur ekki áhrif á fjölda meiðsla hjá lögreglu eða „mótaðila“. 30. mars 2023 09:10
Pallborðið: Rafbyssuvæðing lögreglunnar á Íslandi Rafbyssuvæðing lögreglunnar á Íslandi verður til umfjöllunar í Pallborðinu í beinni útsendingu á Vísi klukkan 14 í dag. Gestir verða Fjölnir Sæmundsson, formaður Landssambands lögreglumanna, og Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata. 3. apríl 2023 13:22
Undirbúningur hafinn fyrir notkun rafbyssa Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri segir undirbúning hafin fyrir notkun lögreglunnar á rafbyssum. Ágreiningur var milli ráðherra Vinstri grænna og dómsmálaráðherra um reglugerð sem hann gaf út og heimilaði notkun rafbyssa. Sigríður Björk segir að nú standi yfir undirbúningur útboðs á vopnunum fyrir lögreglu og hvaða tæknimöguleikar væru bestir. 21. mars 2023 13:13