Skaginn 3X hefur tapað 4,5 milljörðum eftir kaup Baader
![Sigsteinn Grétarsson, forstjóri Skagans 3X, hefur sagt að rekstur fyrirtækisins hafi verið þungur síðustu misseri og fyrirtækið hafi þurft að fara í viðamikið endurmat á skuldbindingum sínum í kjölfar eigendaskipta og erfiðra rekstrarskilyrða.](https://www.visir.is/i/994098DE906FED947BB155206A4218BEE25DAB255332359645DAA008FCCE47FC_713x0.jpg)
Hátæknifyrirtækið Skaginn 3X hefur tapað 4,5 milljörðum króna frá því að þýska félagið Baader fjárfesti fyrst í félaginu árið 2021. Tapið var 845 milljónum króna minna á árinu 2022 en árið áður eða 1,8 milljarðar króna.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/2FFEB0CDBBD448AA5D4780351F85F96FEC902C14F852097A8FE5CC94A0F649C5_308x200.jpg)
Allir 27 starfsmenn missa vinnuna í hópuppsögn á Ísafirði
Stjórn hátæknifyrirtækisins Skagans 3X hefur ákveðið að leggja niður starfsstöð fyrirtækisins á Ísafirði og hefur öllum 27 starfsmönnum fyrirtækisins þar verið sagt upp störfum. Í tilkynningu segir að ákvörðunin sé þungbær en byggi á umfangsmikilli endurskipulagningu. Öll framleiðsla verður samþætt á Akranesi.
![](https://www.visir.is/i/994098DE906FED947BB155206A4218BEE25DAB255332359645DAA008FCCE47FC_308x200.jpg)
Ráðinn forstjóri Skaginn 3X og BAADER Ísland
Sigsteinn Grétarsson hefur verið ráðinn í stöðu forstjóra Skaginn 3X og BAADER Ísland.
![](https://www.visir.is/i/C111AE1C96CAEF7F3998AEDBA6B6DDB0201B65BAE2A8ABB84F9B2DC1C4EBA4B2_308x200.jpg)
Baader kaupir restina af hlutfé Skagans 3X
Þýska fyrirtækið Baader hefur samið um kaup á 40 prósent hlutafjár í hátæknifyrirtækinu Skaganum 3X. Árið 2020 keypti Baader 60 prósent hlutafjár í fyrirtækinu.
![](https://www.visir.is/i/730AB6F300395681C3DC11BE824686D05C183CB07EE94D21800ACC15CEA716AA_308x200.jpg)
Baader kaupir Skagann 3X
Baader hefur gengið frá samningum um kaup á meirihluta í Skaganum 3X. Þetta kemur fram í tilkynningu. Viðskiptin eru háð venjubundnum fyrirvörum um samþykki opinberra aðila. Ráðgert er að þeim fyrirvörum verði aflétt í ársbyrjun 2021.