Erlent

Trump fundinn sekur um að ljúga til um ríki­dæmi sitt

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Donald Trump vildi að málið yrði fellt niður en honum verður ekki að ósk sinni.
Donald Trump vildi að málið yrði fellt niður en honum verður ekki að ósk sinni. AP/Alex Brandon

Donald Trump fyrrverandi Bandaríkjaforseti laug til um ríkidæmi sitt í fjölmörgum tilvikum og plataði þannig banka og tryggingafyrirtæki á löngu tímabili, eða frá árinu 2011 til 2021.

Dómari í málinu hefur nú komist að þessari niðurstöðu en réttarhöld í málinu hefjast á mánudaginn kemur í New York en lygarnar voru til að fá hagstæðari lán og tryggingar. Auk forsetans eru synir hans tveir, Donald yngri og Eric ákærðir í málinu.

Dómarinn, segir að feðgarnir hafi ofmetið virði fyrirtækis síns um allt að 2,2 milljarða dollara sem hefði á móti fært þeim milljónir dollara í sparnað. Málsaðilar, það er að segja verjendur Trump feðga og saksóknarinn höfðu farið fram á að dómari myndi úrskurða í málinu áður en réttarhöldin hæfust, en þeim er ætlað að skera úr um hversu háa sekt feðgarnir þurfa að greiða fyrir svindlið.

Saksóknarinn, Letitia James,  krefst hárrar sektargreiðslu eða 250 milljóna dollara og að Trump feðgarnir missi stjórnina á veldi sínu að hluta.


Tengdar fréttir

„Þessi yfirlýsing er virðislaus“

Letitia James, ríkissaksóknari New York-ríkis, hefur beðið dómara um að kanna hvort Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hafi ofmetið háhýsi sín, golfvelli og aðra eignir í ríkinu um meira en tvo milljarða dala. James hefur sakað Trump og börn hans um umfangsmikil fjársvik.

Vill að dómarinn stígi til hliðar

Lögmenn Donalds Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, hafa lagt fram kröfu um að dómarinn Tanya Chutkan stígi til hliðar. Það á hún að gera á þeim grundvelli að hún hafi sýnt fram á óhlutlægni í garð Trumps.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×