Einhverfa og hinseginleiki í forgrunni Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 10. október 2023 10:01 Eva Ágústa verður með fyrirlesturinn Ljósmyndun í einhverfu ljósi annað kvöld. Eva Ágústa Ljósmyndarinn Eva Ágústa Aradóttir heldur fyrirlesturinn „Ljósmyndun í einhverfu ljósi“ annað kvöld. Þar fer hún yfir fjölbreytt verkefni sín en minnihlutahópar eru í forgrunni hjá henni og er málefnið henni kærkomið.
Eva Ágústa er á einhverfurófi og er trans. Hún hefur séð hvernig minnihlutahópar eiga til að gleymast í ljósmyndun og hefur einblínt á þær hliðar. „Í ljósmynduninni skiptir mig mestu máli að segja sögur og skapa. Ég var til dæmis með sýningu í vor sem fjallaði um hinsegin einhverfa einstaklinga. Við sem erum á rófinu sjáum hlutina oft öðruvísi og dýpri. Þeir birtast okkur oft myndrænt og þetta snýst oft ekki um það hvað við lesum heldur hvernig við skynjum,“ segir Eva í samtali við blaðamann. Eva byrjaði að æfa sig í ljósmyndun árið 2004. Hún lauk svo námi úr Tækniskólanum í Reykjavík jólin 2009 og sveinsprófi í ljósmyndun haustið 2011. „Ég var að falla í framhaldsskóla og þurfti að taka mér pásu til að finna hvað mig langaði að gera. Ég prófaði ljósmyndun og þá var ekki aftur snúið, síðan þá hefur þetta alltaf verið það sem ég hef gaman að. Mér leið lengi vel eins og ég væri alltaf nýliði í þessu og ég yrði kannski ekki eins flott og hinir. En svo gengur mér rosa vel í dag og það er ótrúlega skemmtilegt. “ Á fyrirlestrinum mun Eva sýna frá verkefnum sínum í tengslum við hinseginleikann og einhverfu ásamt öðrum verkefnum undanfarin ár. Eva Ágústa er trans og er hinseginleikinn gjarnan í forgrunni verka hennar. Eva Ágústa Ljósmyndarafélag Íslands hefur staðið fyrir fagkvöldum einu sinni í mánuði fyrir áhugasama ljósmyndara og unnendur ljósmynda og annan miðvikudag hvers mánaðar yfir vetrartímann. Fyrirlesturinn fer fram í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35, á morgun klukkan 20:00.
Ljósmyndun Menning Einhverfa Mest lesið Justin Timberlake með Lyme-sjúkdóm Lífið Útskúfaður úr Hollywood vegna kossareglunnar Lífið Mannblendnir refir slá í gegn á Snæfellsnesi Lífið Þrettán bestu lög Ozzy Osbourne Lífið Nýja Kardashian-gríman breytir Hopkins aftur í Lecter Lífið Einar og Milla eignuðust dreng Lífið Dularfullur veðurbreytir Jakobs Frímanns og maðurinn á bak við hann Lífið Uppljóstrar um síðustu skilaboðin sem hann fékk frá Ozzy Lífið Forseti Alþingis snæddi kvöldverð með Michael Douglas Lífið Draumabrúðkaup í sextíu ára gömlum kjól frá ömmu Lífið Fleiri fréttir Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira