InstaVolt, brautryðjandi í hraðhleðslustöðvum, hefur opnað aðra hraðhleðslustöð sína á Íslandi InstaVolt 11. október 2023 12:21 Fjögur sérlega hraðvirk 160 kW hleðslutæki eru nú staðsett við garðyrkjustöðina Friðheima. Garðyrkjustöðin Friðheimar hefur nú gangsett fjögur sérlega hraðvirk 160 kW hleðslutæki við þennan geysi vinsæla ferðamannastað sem er algengur viðkomustaður þegar Gullni hringurinn er farinn.
Friðheimar eru í aðeins 20 mínútna fjarlægð frá Gullfossi og 30 mínútur frá hinum heimsfrægu goshverum í Haukadal. Hleðslustöðvarnar við veitingastað Friðheima verða knúnar með 100% endurnýjanlegri orku. Þetta kemur í kjölfar einstaklega vel heppnaðrar opnunar á stærstu hleðslustöð landsins í júní við Courtyard by Marriott hótelið sem er í einungis fimm mínútna fjarlægð frá Keflavíkurflugvelli. InstaVolt, sem er þekkt fyrir áreiðanleika og er auðvelt í notkun þar sem hægt er að greiða með snertilausum debet- eða kreditkortum, er með áætlanir um að setja upp 200 stöðvar á Íslandi á næstu tveimur árum. Adrian Pike, stjórnarformaður InstaVolt, segir: „Við hjá InstaVolt erum stolt af því að hafa opnað aðra hleðslustöð á Íslandi.“ „Þetta var einstakt tækifæri til að taka þátt í því að skapa innviði fyrir hraðhleðslu á Íslandi. Þetta hafði í för með sér umtalsverða fjárfestingu af hálfu InstaVolt og hefur leitt af sér einstakt samstarf þar sem 100% endurnýjanleg orka verður notuð til að knýja rafmagnsbíla á Íslandi. Við hlökkum til að bæta við fleiri hleðslustöðvum vítt og breitt um landið.“ Þessi nýjasta hleðslustöð er mikilvæg í stærra samhengi þar sem Ísland leitast við að ná fram markmiðum sínum um að banna skráningu nýrra bensín- og dísilökutækja árið 2030. Um leið er verið að vinna að hleðsluneti rafknúinna ökutækja, bæði fyrir íbúa landsins og ferðafólk, sem er hvatt til þess að ferðast á sjálfbæran hátt um landið.
Orkuskipti Orkumál Bílar Vistvænir bílar Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eigin samastaður í Reykjavík án þess að kaupa heila íbúð Ný bók varpar ljósi á réttindabrot og skaðlega vinnustaðamenningu Ný tækni gjörbreytir öryggi heimila og fyrirtækja Nýr iX3: Tæknibomba sem kann gamla BMW-takta EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Nýr kafli hafinn hjá NOMY Ert þú með hugmynd sem gæti bætt heilsu fólks? Sjá meira