Samstarf

Jaguar kynnir fyrsta tengiltvinnbílinn F-Pace PHEV

Jaguar á Íslandi
Rafhlaðan er 17,1 kWh sem gerir kleift að aka eingöngu á rafmagni allt að 65 km við bestu kjöraðstæður samkvæmt WLTP.
Rafhlaðan er 17,1 kWh sem gerir kleift að aka eingöngu á rafmagni allt að 65 km við bestu kjöraðstæður samkvæmt WLTP.

Jaguar við Hestháls kynnir nk. laugardag, 14. október milli kl. 12 og 16, aldrifna jepplinginn F-Pace SE R-DYN í tengiltvinnútfærslu (PHEV) sem margir aðdáendur F-Pace hér á landi hafa beðið eftir með óþreyju.

 Jaguar F-Pace PHEV, sem er að langmestu leyti smíðaður úr áli, er ríkulega búinn þæginda- og öryggisbúnaði og ber allur frágangur farþegarýmisins vott um afar fágað handbragð hönnuða Jaguar.

Mikil hröðun og skjót hleðsla

Tengiltvinnútgáfan F-Pace SE R-DYN PHEV er búin kraftmikilli fjögurra strokka bensínvél og 105 kW rafmótor sem saman framleiða 404 hestöfl og hafa 640 Nm tog við 8 gíra sjálfskiptinguna, enda er hröðunin frá 0-100 km/klst. aðeins 5,3 sekúndur. Rafhlaðan er 17,1 kWh sem gerir kleift að aka eingöngu á rafmagni allt að 65 km við bestu kjöraðstæður samkvæmt WLTP. Aðeins tekur um 30 mínútur að hlaða rafhlöðuna frá 0-80%.

Vandaður búnaður

Meðal ríkulegs staðalbúnaðar Jaguar F-Pace SE R-DYN PHEV má nefna tólf mismunandi stillingar á upphitanlegum framsætunum, Meridan hljómflutningskerfi sem m.a. er stjórnað á rúmlega 11 tommu PiVi afþreyingarsnertiskjá, hita í stýri, framrúðu, rúðupissi og hliðarspeglum, nálgunarvara framan og aftan auk þess sem bíllinn er búinn 20 tommu tvílitum álfelgum, rafdrifnum afturhlera og sjálfvirkum Premium LED-aðalljósum með einkennandi dagljósum. Auk staðalbúnaðar er hægt að panta ýmsan aukabúnað með bílnum, svo sem glerþak, 360° myndavélakerfi, langboga og fleira.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×