Ólöf valin nýliði ársins í Ivy League Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. nóvember 2023 10:31 Ólöf Sigríður Kristinsdóttir í leik með Þrótti í Bestu deildinni. Vísir/Hulda Margrét Íslenska knattspyrnukonan Ólöf Sigríður Kristinsdóttir var heiðruð með flottum verðlaunum eftir fyrsta tímabil sitt með Harvard-háskólanum.
Auk þess að vera valin nýliði ársins þá komst hún einnig í annað úrvalsliðið. Ólöf varð markahæsti leikmaður Harvard-háskólaliðsins með sjö mörk í fimmtán leikjum en hún gaf einnig tvær stoðsendingar. Hún endaði næstmarkahæst í allri Ivy League. Ólöf yfirgaf Þrótt á miðju tímabili til að hefja sína fyrstu önn í Harvard en þar er hún á fótboltastyrk. Hún hafði skorað í sínum fyrsta A-landsleik síðasta vor og hafði raðað inn mörkum á undirbúningstímabilinu. Það gekk ekki eins vel hjá henni að skora í Bestu deildinni þar sem meiðsli settu líka strik í reikninginn. Ólöf fann aftur á móti skotskóna þegar hún kom út til Cambridge í Massachusetts fylki. Ivy League háskólar hafa á sér það orð að vera með bestu háskólum Bandaríkjanna en þeir eru líka með elstu háskólum í Bandaríkjunum. Harvard-háskóli er sá elsti en hann var stofnaður 1636. Skólarnir eru allir einkareknir og eru með auðugustu menntastofnunum heims. View this post on Instagram A post shared by Harvard Women's Soccer (@harvardwsoccer)
Bandaríski fótboltinn Þróttur Reykjavík Mest lesið Harmur hrokagikksins Haaland Enski boltinn Þrír boðaðir í viðtal: Víkingar gáfu KSÍ grænt ljós á að ræða við Arnar Fótbolti Gary sem stal jólunum Enski boltinn Þakið ætlaði að rifna af Ally Pally eftir níu pílna leik Heta Sport Tveir látnir úr sitthvorri áhöfninni í siglingakeppni í Sydney Sport Enginn verið jafn fljótur að tapa fjórum deildarleikjum Enski boltinn Telur daga McGregor í UFC talda Sport „Ég var að skjóta“ Enski boltinn Víkingur má ekki spila í Kópavogi og leitar vallar erlendis Fótbolti Komnir með upp í kok: „Seldu liðið“ Sport Fleiri fréttir Veit að starfið gæti verið í hættu ef liðið fer ekki að vinna Freyr einnig í viðtal og einn erlendur Þrír boðaðir í viðtal: Víkingar gáfu KSÍ grænt ljós á að ræða við Arnar Emilía til Leipzig Skilaboð frá Klopp minntu hann á áfangann: „Við elskum hann“ „Ég var að skjóta“ Víkingur má ekki spila í Kópavogi og leitar vallar erlendis Harmur hrokagikksins Haaland Eftirmaður Amorims rekinn eftir átta leiki City ætlar að kaupa í janúar Gary sem stal jólunum Liverpool hefur áhuga á framherja PSG Amorim hefur ekki hugmynd um hversu lengi hann verður að laga United Ættingi Endricks skotinn til bana Enginn verið jafn fljótur að tapa fjórum deildarleikjum Liverpool í litlum vandræðum eftir að hafa lent undir Andri skoraði fyrir Gent í fyrsta sinn síðan í september Ætla að áfrýja rauða spjaldinu Skoraði beint úr hornspyrnu eftir að United missti mann af velli Jason Daði sneri aftur í lið Grimsby og skoraði Willum í byrjunarliðinu er Birmingham tók toppsætið Slæmur skellur fyrir gestina á St. James Park Stefndi allt í sigur Chelsea en Fulham hafði aðrar hugmyndir Sáu ekki til sólar en unnu samt Hafa tvisvar áður mæst: „Gakpo er sem betur fer í mínu liði núna“ Haaland klúðraði víti og City tapaði stigum Tók „erfiðustu ákvörðun ævinnar“ og fór til Valencia Látnir gista líka á æfingasvæðinu Fimm hlutu dóm fyrir ólætin í Amsterdam Botnliðin eiga von og meistararnir geta fallið Sjá meira