Lille bannaði aðdáendum að ferðast af öryggisástæðum Ágúst Orri Arnarson skrifar 4. nóvember 2023 09:30 Stuðningsmenn Lille munu ekki gera sér ferð til Marseille fyrir leik kvöldsins. Franska knattspyrnufélagið Lille, sem Hákon Arnar Haraldsson leikur fyrir, hefur bannað aðdáendum sínum að ferðast á útileik liðsins gegn Marseille í dag af öryggisástæðum eftir árásir á rútur Lyon þegar liðið mætti Marseille síðustu helgi.
Leikur Marseille og Lyon átti að fara fram síðastliðinn sunnudag en var frestað eftir að stuðningsmenn heimaliðsins réðust að liðsrútu Lyon og slösuðu Fabio Grosso, þjálfara liðsins. Stuðningsmenn Marseille réðust einnig að rútum sem ferjuðu stuðningsmenn Lyon á völlinn. Lille hefur í kjölfarið ákveðið að ráðleggja stuðningsmönnum sínum að halda sig heima. Í yfirlýsingu félagsins segir „Ef að stjórnvöld geta ekki tryggt öryggi þeirra 250 Lille stuðningsmanna sem ætluðu sér að ferðast á völlinn til Marseille verðum við hjá Lille að grípa til þessara ráðstafana til að vernda aðdáendur okkur.“ Amelie Oudea-Castera, íþróttaráðherra Frakklands, sagði að sjö manns hafi verið handteknir eftir óeirðirnar á sunnudag. Marseille sagðist fordæma alla slíka hegðun. Leikr Marseille og Lyon hefur verið færður til 6. desember, en ekki hefur komið fram hvar leikurinn mun eiga sér stað. Leikur Marseille og Lille hefst kl. 20:00 í kvöld.
Franski boltinn Mest lesið Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Býst við skömmum frá KSÍ Íslenski boltinn Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Keppnin stoppuð eftir árekstur Leclerc Formúla 1 Landsliðsþjálfarinn á leið á spítalann: „Þetta er sjokk“ Fótbolti Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti Yngsti sigurvegari í sögu Mónakó Formúla 1 Fleiri fréttir „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Ödegaard skoraði í síðasta leiknum fyrir HM Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Landsliðsþjálfarinn á leið á spítalann: „Þetta er sjokk“ Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Verðandi leikmaður United kallaður inn í hópinn fyrir HM Forritaði HM getraunaleik og býður hundrað þúsund í verðlaun Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Skotar hættu við æfingaleik gegn Norðmönnum Ollie Kane kynntur til leiks Messi á bekknum í sigri Argentínu HM-minning: Átti draumamark Maradona líka að vera dæmt af? „Ég verð að spila“ Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Englendingar ósannfærandi í sigri Havertz aðalmaðurinn í sigri á Bandaríkjunum Slagsmál og tvö rauð spjöld hjá Portúgölum Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Vestri valtaði yfir Völsung Vonar að völlurinn verði ekki til vandræða Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Rauði djöfullinn Doku gerir varnarmenn gráhærða Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Landsliðsmenn Íran komnir með ferðaleyfi til Bandaríkjanna Borinn grátandi af velli viku fyrir HM Írarnir hans Heimis skemmdu kveðjupartý Kanada HM-minning: „Leyfið þeim að kyssast“ Sjá meira