Franski boltinn

Fréttamynd

Þurfti að yfir­gefa liðið fyrir úr­slita­leikinn

Ali Abdi þurfti að yfirgefa herbúðir franska liðsins OGC Nice nokkrum dögum fyrir úrslitaleik umspilsins gegn Saint-Étienne upp á sæti í frönsku úrvalsdeildinni. Félagið hefur komið honum til varna og sagt stuðningsmönnum að hætta öllum hótunum.

Fótbolti
Fréttamynd

Byrjaði níu leiki en valinn bestur

Ousmané Dembélé, leikmaður Paris Saint-Germain, hefur verið valinn leikmaður tímabilsins í frönsku úrvalsdeildinni þrátt fyrir að byrja aðeins níu leiki á tímabilinu.

Fótbolti
Fréttamynd

Lygi­leg níu marka veisla í París

Paris Saint-Germain er með eins marks forskot á Bayern München eftir ótrúlegan fyrri leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta í París.

Fótbolti
Fréttamynd

„Þetta eru tvö bestu lið Evrópu“

Luis Enrique, þjálfari Paris Saint-Germain, hlakkar til þess að takast á við Bayern München í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Fyrri leikur liðanna fer fram í París.

Fótbolti
Fréttamynd

Hákon á sínum stað er Lille vann mikil­vægan sigur

Íslenski landsliðsmaðurinn í fótbolta, Hákon Arnar Haraldsson, var í byrjunarliði Lille sem vann mikilvægan sigur á Paris í frönsku úrvalsdeildinni í dag. Lokatölur 1-0 sigur Lille, liðið er í harðri baráttu um Meistaradeildarsæti. 

Fótbolti
Fréttamynd

Hákon lagði upp í öruggum sigri

Lille fór upp í þriðja sæti frönsku úrvalsdeildarinnar eftir 4-0 útisigur á Toulouse síðdegis. Hákon Arnar Haraldsson lagði sitt að mörkum til sigursins.

Fótbolti
Fréttamynd

Cantona spreytir sig á ís­lenskunni

Franska fótboltagoðsögnin Eric Cantona hefur verið að störfum á Ströndum undanfarnar vikur við kvikmyndagerð. Íslenskukunnáttan virðist aðeins snúast fyrir leikaranum.

Fótbolti
Fréttamynd

Hákon reimaði á sig markaskóna í kvöld

Hákon Arnar Haraldsson skoraði fyrsta mark Lille í 3-0 sigri liðsins gegn Lens í frönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Með sigrinum saxar Lille á Lens í öðru sæti deildarinnar. 

Fótbolti
Fréttamynd

Há­kon fagnaði dýr­mætum sigri í Marseil­le

Hákon Arnar Haraldsson var á sínum stað í liði Lille þegar það vann dísætan 2-1 útisigur gegn Marseille í dag. Lille minnkaði þar með forskot Marseille í tvö stig í baráttunni um 3. sæti frönsku 1. deildarinnar í fótbolta.

Fótbolti
Fréttamynd

Dramatík hjá Hákoni

Hákon Arnar Haraldsson og félagar hans í Lille unnu mikilvægan og dramatískan 1-0 sigur á Nantes í frönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Fótbolti