Að velja draumasteininn er upplifun – ekki verkefni Steinlausnir 22. nóvember 2023 08:30 Ægir Ólafsson er einn stofnenda og eigandi Steinlausna. Hann hefur starfað við steinsmíði síðan 2003 og býr því yfir mjög mikilli þekkingu. Steinlausnir er nýleg steinsmiðja en fyrirtækið var stofnað seinni hluta árs 2021. Þrátt fyrir ungan aldur eru Steinlausnir öflugt og eftirtektarvert fyrirtæki sem skortir síður en svo reynslu. Í því sambandi má nefna að einn stofnenda og eigandi Steinlausna, Ægir Ólafsson, hefur starfað við steinsmíði síðan 2003 og býr því yfir mjög mikilli þekkingu. Við ræddum við Ægi og reyndum aðeins að kynnast Steinlausnum betur. Guðdómlegur Arabescato orobico grigio marmari. Hvers konar fyrirtæki er Steinlausnir? „Steinlausnir er steinsmiðja sem sérhæfir sig í sérsmíði á eldhús- og baðplötum, sólbekkjum, ásamt margskonar öðrum verkefnum.“ Hver er ykkar sérstaða á markaði? „Það er markmið Steinlausna að afgreiða gæðavöru og veita framúrskarandi þjónustu þar sem þarfir viðskiptavina eru í fyrirrúmi. Við skiljum að það að velja stein er stór ákvörðun og yfirleitt ekki skyndiákvörðun. Við leggjum þess vegna mikið upp úr því að þetta ferli verði sem ánægjulegast og sé í raun upplifun frekar en verkefni.“ Montblanc quartzite er einn vinsælasti steinninn hjá Steinlausnm í dag. Hægt er að skoða heimasíðu Steinlausna, Facebook og Instagram. Næsta skref er að mæta í verslunina, skoða þá steina sem eru til og fá fagmannlega ráðgjöf um það sem hentar heimilinu. „Við höfum auk þess bætt við nýrri þjónustuleið en nú gefst viðskiptavinum kostur á að fá innanhússstílista heim til sín með prufur. Þar fá þeir aðstoð við að átta þig á því hvað passar best inn á heimilið og tónar best við það. Þar sem að allt ferlið á að vera þægileg upplifun er okkur umhugað að allt gangi smurt fyrir sig og að öllum sé haldið upplýstum frá upphafi til enda verksins.“ Klassískt og einstaklega fallegt Quartz Vittoria white. Verslun Steinlausna er einstök þar sem heilar steinplötur eru til sýnis, en ekki fullklár vara á innréttingu. Af hverju? „Ég vil ekki sýna þér vöru sem ég á ekki til. Náttúrusteinn er ekki bara náttúrusteinn en æðarnar í steininum eru mjög fjölbreyttar. Plöturnar sem ég fæ í hverri sendingu eru einstakar og engin sending nákvæmlega eins. Ég vil frekar geta sýnt þér steininn sem er til hverju sinni og hjálpað þér að móta lausnina/eldhúsið eftir steininum sem er fyrir framan þig.“ Hér sjást Glacier Tesla quartzite og Obsidianus quartzite til sýnis en þeir eru meðal þess efnis sem er til sýnis í í versluninni í dag. Hvernig á að velja stein? „Það sem skiptir mestu máli er að steinninn passi þínu heimili. Bæði hvað varðar stíl og hvernig hann tónar við annað á heimilinu en líka hvaða eiginleikum þú ert að leita af og hvers konar álag er á heimilinu.“ Efnin sem eru í boði hjá okkur eru Quartzite, Marmari, Granít og Quartz. Hvert efni hefur mismunandi eiginleika og því er mikilvægt að velja rétta efnið sem hentar þínu heimili. Quartzite – Náttúrusteinn, hitaþolinn og rispast ekki Án efa vinsælasti steinninn á markaðnum í dag! Við tölum oft um að Quartzite beri fegurð marmarans og hörku granítsins. Þetta er gífurlega fallegur náttúrusteinn með miklum og djúpum æðum. Hins vegar er hann laus við þær áskoranir sem fylgja marmaranum. Marmari – Náttúrusteinn, hitaþolinn Gífurlega tignarlegur og fallegur steinn. Steinninn er samt gljúpur sem þýðir að það þarf að verja hann og sýna honum ákveðna ást og umhyggju. Marmarinn er hins vegar hitaþolinn sem er stór kostur þegar unnið er í eldhúsinu. Granít – Náttúrusteinn, hitaþolinn og rispast ekki Minimalískur og harðgerður náttúrusteinn þar sem litamöguleikarnir eru miklir. Þrátt fyrir að hægt sé að fá granít í ótal litum má segja að útlit steinsins sé klassískst og tímalaust. Quartz – viðhaldsfrír, rispast ekki og er blettafrítt Ertu ástríðukokkur eða ofurbakari? Með barnmargt heimili? Tími fyrir viðhald takmarkaður? Þá gæti quartz verið steinninn fyrir þig en steinninn er viðhaldsfrír. „Það er okkur sönn ánægja að aðstoða þig við valið á efni sem hentar þér,“ segir Ægir að lokum. Nánari upplýsingar á steinlausnir.is. Hús og heimili Tíska og hönnun Mest lesið Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Lífið Lét drauminn rætast á Ítalíu Lífið Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Lífið Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Lífið Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lífið Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Lífið „Kjóllinn markaði nýtt upphaf í mínu lífi“ Tíska og hönnun Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Lífið Hvað veistu um... Ross í Friends? Lífið Sex íslenskir söngvarar ráðnir til Þjóðaróperunnar Menning Fleiri fréttir Nýr grillþáttur fer í loftið á þriðjudag Orion tannlæknastofa stækkar og opnar stofu á 5 stjörnu hóteli í miðbæ Búdapest Bylgjulestin mætir á Hjarta Hafnarfjarðar á laugardag Bylgjulestin lét sig ekki vanta í eina af stærstu veislum ársins á Þingvöllum Kallar próteinið gull og segir kreatín leyndan lykil að betri líðan Kerlingarfjöll: Ævintýri á hálendi Íslands Stofnhús með opið hús í Hnjúkamóa í Þorlákshöfn Klassíkin heldur velli en ný bragðævintýri ryðja sér til rúms Bylgjulestin mætir á Þingvelli á laugardag Smáhlutirnir frá JYSK gefa heimilinu nýtt líf Bylgjulestin: Veðurblíða, góðar minningar og sannkölluð hátíðarstemning Bylgjulestin í Fjölskyldu og húsdýragarðinum Glansandi hár er nýi lúxusinn – af hverju eru allir að tala um „Gloss Hair“? Ung húð þarf ekki tíu skrefa húðrútínu Áhugi leshringja svo mikill að Salka stækkar Skandinavíska merkið Ninepine komið til Lín Design Góð tannheilsa styður við betra líf: Kristjana Ben tannlæknir gefur ráð Bylgjulestin: Sólskin og stemning í Grindavík Sumarbókaveisla á Bylgjunni: Kemur alltaf gott samtal út frá bókum Fjarfundaþjónusta Hugarafls er lífsbjörg fyrir fólk Topptjöldum fylgir nýtt frelsi á ferðalögum Bylgjulestin leggur af stað inn í sumarið Endurvekja límmiðaleik Bylgjunnar Celebrating George Michael kemur til Íslands Ormsson með sjónvarpsmarkað í beinni útsendingu í kvöld Útivistarfatnaðurinn sem gerir íslenska sumarið betra Díllinn er nýtt app þar sem notendur finna bestu dílana Fiskikóngurinn fagnar stækkun með glæsilegri opnunarhátíð Heather Mills heldur fyrirlestur í Hagkaup Stórkostleg stemning á glæsilegri forsýningu Star Wars Sjá meira
Í því sambandi má nefna að einn stofnenda og eigandi Steinlausna, Ægir Ólafsson, hefur starfað við steinsmíði síðan 2003 og býr því yfir mjög mikilli þekkingu. Við ræddum við Ægi og reyndum aðeins að kynnast Steinlausnum betur. Guðdómlegur Arabescato orobico grigio marmari. Hvers konar fyrirtæki er Steinlausnir? „Steinlausnir er steinsmiðja sem sérhæfir sig í sérsmíði á eldhús- og baðplötum, sólbekkjum, ásamt margskonar öðrum verkefnum.“ Hver er ykkar sérstaða á markaði? „Það er markmið Steinlausna að afgreiða gæðavöru og veita framúrskarandi þjónustu þar sem þarfir viðskiptavina eru í fyrirrúmi. Við skiljum að það að velja stein er stór ákvörðun og yfirleitt ekki skyndiákvörðun. Við leggjum þess vegna mikið upp úr því að þetta ferli verði sem ánægjulegast og sé í raun upplifun frekar en verkefni.“ Montblanc quartzite er einn vinsælasti steinninn hjá Steinlausnm í dag. Hægt er að skoða heimasíðu Steinlausna, Facebook og Instagram. Næsta skref er að mæta í verslunina, skoða þá steina sem eru til og fá fagmannlega ráðgjöf um það sem hentar heimilinu. „Við höfum auk þess bætt við nýrri þjónustuleið en nú gefst viðskiptavinum kostur á að fá innanhússstílista heim til sín með prufur. Þar fá þeir aðstoð við að átta þig á því hvað passar best inn á heimilið og tónar best við það. Þar sem að allt ferlið á að vera þægileg upplifun er okkur umhugað að allt gangi smurt fyrir sig og að öllum sé haldið upplýstum frá upphafi til enda verksins.“ Klassískt og einstaklega fallegt Quartz Vittoria white. Verslun Steinlausna er einstök þar sem heilar steinplötur eru til sýnis, en ekki fullklár vara á innréttingu. Af hverju? „Ég vil ekki sýna þér vöru sem ég á ekki til. Náttúrusteinn er ekki bara náttúrusteinn en æðarnar í steininum eru mjög fjölbreyttar. Plöturnar sem ég fæ í hverri sendingu eru einstakar og engin sending nákvæmlega eins. Ég vil frekar geta sýnt þér steininn sem er til hverju sinni og hjálpað þér að móta lausnina/eldhúsið eftir steininum sem er fyrir framan þig.“ Hér sjást Glacier Tesla quartzite og Obsidianus quartzite til sýnis en þeir eru meðal þess efnis sem er til sýnis í í versluninni í dag. Hvernig á að velja stein? „Það sem skiptir mestu máli er að steinninn passi þínu heimili. Bæði hvað varðar stíl og hvernig hann tónar við annað á heimilinu en líka hvaða eiginleikum þú ert að leita af og hvers konar álag er á heimilinu.“ Efnin sem eru í boði hjá okkur eru Quartzite, Marmari, Granít og Quartz. Hvert efni hefur mismunandi eiginleika og því er mikilvægt að velja rétta efnið sem hentar þínu heimili. Quartzite – Náttúrusteinn, hitaþolinn og rispast ekki Án efa vinsælasti steinninn á markaðnum í dag! Við tölum oft um að Quartzite beri fegurð marmarans og hörku granítsins. Þetta er gífurlega fallegur náttúrusteinn með miklum og djúpum æðum. Hins vegar er hann laus við þær áskoranir sem fylgja marmaranum. Marmari – Náttúrusteinn, hitaþolinn Gífurlega tignarlegur og fallegur steinn. Steinninn er samt gljúpur sem þýðir að það þarf að verja hann og sýna honum ákveðna ást og umhyggju. Marmarinn er hins vegar hitaþolinn sem er stór kostur þegar unnið er í eldhúsinu. Granít – Náttúrusteinn, hitaþolinn og rispast ekki Minimalískur og harðgerður náttúrusteinn þar sem litamöguleikarnir eru miklir. Þrátt fyrir að hægt sé að fá granít í ótal litum má segja að útlit steinsins sé klassískst og tímalaust. Quartz – viðhaldsfrír, rispast ekki og er blettafrítt Ertu ástríðukokkur eða ofurbakari? Með barnmargt heimili? Tími fyrir viðhald takmarkaður? Þá gæti quartz verið steinninn fyrir þig en steinninn er viðhaldsfrír. „Það er okkur sönn ánægja að aðstoða þig við valið á efni sem hentar þér,“ segir Ægir að lokum. Nánari upplýsingar á steinlausnir.is.
Efnin sem eru í boði hjá okkur eru Quartzite, Marmari, Granít og Quartz. Hvert efni hefur mismunandi eiginleika og því er mikilvægt að velja rétta efnið sem hentar þínu heimili. Quartzite – Náttúrusteinn, hitaþolinn og rispast ekki Án efa vinsælasti steinninn á markaðnum í dag! Við tölum oft um að Quartzite beri fegurð marmarans og hörku granítsins. Þetta er gífurlega fallegur náttúrusteinn með miklum og djúpum æðum. Hins vegar er hann laus við þær áskoranir sem fylgja marmaranum. Marmari – Náttúrusteinn, hitaþolinn Gífurlega tignarlegur og fallegur steinn. Steinninn er samt gljúpur sem þýðir að það þarf að verja hann og sýna honum ákveðna ást og umhyggju. Marmarinn er hins vegar hitaþolinn sem er stór kostur þegar unnið er í eldhúsinu. Granít – Náttúrusteinn, hitaþolinn og rispast ekki Minimalískur og harðgerður náttúrusteinn þar sem litamöguleikarnir eru miklir. Þrátt fyrir að hægt sé að fá granít í ótal litum má segja að útlit steinsins sé klassískst og tímalaust. Quartz – viðhaldsfrír, rispast ekki og er blettafrítt Ertu ástríðukokkur eða ofurbakari? Með barnmargt heimili? Tími fyrir viðhald takmarkaður? Þá gæti quartz verið steinninn fyrir þig en steinninn er viðhaldsfrír.
Hús og heimili Tíska og hönnun Mest lesið Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Lífið Lét drauminn rætast á Ítalíu Lífið Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Lífið Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Lífið Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lífið Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Lífið „Kjóllinn markaði nýtt upphaf í mínu lífi“ Tíska og hönnun Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Lífið Hvað veistu um... Ross í Friends? Lífið Sex íslenskir söngvarar ráðnir til Þjóðaróperunnar Menning Fleiri fréttir Nýr grillþáttur fer í loftið á þriðjudag Orion tannlæknastofa stækkar og opnar stofu á 5 stjörnu hóteli í miðbæ Búdapest Bylgjulestin mætir á Hjarta Hafnarfjarðar á laugardag Bylgjulestin lét sig ekki vanta í eina af stærstu veislum ársins á Þingvöllum Kallar próteinið gull og segir kreatín leyndan lykil að betri líðan Kerlingarfjöll: Ævintýri á hálendi Íslands Stofnhús með opið hús í Hnjúkamóa í Þorlákshöfn Klassíkin heldur velli en ný bragðævintýri ryðja sér til rúms Bylgjulestin mætir á Þingvelli á laugardag Smáhlutirnir frá JYSK gefa heimilinu nýtt líf Bylgjulestin: Veðurblíða, góðar minningar og sannkölluð hátíðarstemning Bylgjulestin í Fjölskyldu og húsdýragarðinum Glansandi hár er nýi lúxusinn – af hverju eru allir að tala um „Gloss Hair“? Ung húð þarf ekki tíu skrefa húðrútínu Áhugi leshringja svo mikill að Salka stækkar Skandinavíska merkið Ninepine komið til Lín Design Góð tannheilsa styður við betra líf: Kristjana Ben tannlæknir gefur ráð Bylgjulestin: Sólskin og stemning í Grindavík Sumarbókaveisla á Bylgjunni: Kemur alltaf gott samtal út frá bókum Fjarfundaþjónusta Hugarafls er lífsbjörg fyrir fólk Topptjöldum fylgir nýtt frelsi á ferðalögum Bylgjulestin leggur af stað inn í sumarið Endurvekja límmiðaleik Bylgjunnar Celebrating George Michael kemur til Íslands Ormsson með sjónvarpsmarkað í beinni útsendingu í kvöld Útivistarfatnaðurinn sem gerir íslenska sumarið betra Díllinn er nýtt app þar sem notendur finna bestu dílana Fiskikóngurinn fagnar stækkun með glæsilegri opnunarhátíð Heather Mills heldur fyrirlestur í Hagkaup Stórkostleg stemning á glæsilegri forsýningu Star Wars Sjá meira