Dauðsfall konu í rassastækkun orðið milliríkjamál Hólmfríður Gísladóttir skrifar 21. nóvember 2023 11:33 Kerr var aðeins 31 árs þegar hún lést í aðgerðinni í Tyrklandi. Melissa Kerr Embættismenn frá Bretlandseyjum munu funda með kollegum sínum í Tyrklandi eftir að bresk kona lést þegar hún gekkst undir rassastækkun á einkaspítala í Istanbúl.
Melissa Kerr, 31 árs, ferðaðist til Tyrklands árið 2019 til að undirgangast það sem oft er kallað „Brazilian Butt Lift“, eða BBL, árið 2019. Hún lést þegar hennar eigin fitu var sprautað í æð í annarri rasskinninni. Rannsókn á Bretlandseyjum leiddi í ljós að Kerr hefði látist þegar fitan stíflaði lungnaæð. BBL, sem er framkvæmd til að lyfta og stækka rassinn, er meðal áhættusömustu lýtaaðgerða sem framkvæmdar eru en það þótti sannað að Kerr hefði ekki verið upplýst um áhættuna né dánartíðni aðgerðanna. Dánardómstjórinn Jacqueline Lake ritaði Mariu Caulfield, heilbrigðisráðherra Bretlands, erindi í kjölfar þess að niðurstöðurnar lágu fyrir og lýsti áhyggjum af ásókn Breta í aðgerðir erlendis. Í svörum Caulfield sagði ráðherrann að til stæði að funda með ráðamönnum í Tyrklandi um málið og ræða meðal annars það regluverk sem þar væri í gildi og hvernig ríkin gætu unnið saman að því að takmarka áhættu sjúklinga í framtíðinni. Ráðherrann sagði yfirvöld meðvituð um að reglur erlendra ríkja væru oft ekki á pari við reglur á Bretlandseyjum. Mikilvægt væri að vinna að samræmingu þeirra. Sagði hún þetta ekki síst eiga við um BBL, þar sem dánartíðnin væri allt að tíu sinnum hærri en við aðrar aðgerðir.
Bretland Tyrkland Lýtalækningar Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Lækkar eigin laun Innlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Fleiri fréttir Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Sjá meira