Lífið

Stjörnu­lífið: Jólin nálgast og Bríet seiðandi með vindil

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Stjörnur landsins höfðu í nógu að snúast í liðinni viku.
Stjörnur landsins höfðu í nógu að snúast í liðinni viku.

Jólaundirbúningur landsmanna hefur gert vart við sig með tilheyrandi jólaveislum, tónleikum og gleði. Stjörnur landsins voru duglegar að njóta lífsins í liðinni viku að vanda. 

Áhrifavaldarnir Sunneva Einars og Tanja Ýr eyddu helginni á Akureyri og sömuleiðis fjöllistamaðurinn Kolbeinn Arnbjörnsson, sem opnaði listasýningu í galleríinu Kaktus. Leikkonan og kærasta Kolbeins Aldís Amah lét sig að sjálfsögðu ekki vanta í opnunina. 

Þá virðast áhrifavaldarnir taka hátíðunum fagnandi, með því meðal annars að klæða sig í hátíðleg föt og fara á jólahlaðborð.

 Ef Instagram-færslurnar birtast á ekki þá er ráð að endurhlaða (e. refresh) síðunni.

Jóla-skvísa

Ásdís Rán Gunnarsdóttir skellti sér í gervi jólasveinsins. 

Listasýning á Akureyri

Kolbeinn Arnbjörnsson hélt listasýningu á Akureyri um helgina í sýningarrýminu Kaktus.

Helgi með covid

Helgi Ómars fer yfir liðna daga þar sem hann lá meðal annars í rúminu með Covid.

Seiðandi í Skógarböðunum 

Sunneva Einars birti seiðandi myndir af sér í Skógarböðunum á Akureyri. Hún var þar í tilefni af opnun Ginu Tricot verslunarinnar á Glerártorgi. 

Ráðherra rýir kindur

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir ráðherra birti myndskeið af sér að rýja kindur. 

Glæsileg í sólinni

Áhrifavaldurinn og athafnakonan Birgitta Líf Björnsdóttir spókar sig um í sólinni á Spáni ásamt sambýlismanni sínum Enoki Jónssyni.

Í hælum með vindil

Tónlistarkonan Bríet Isis fór í myndatöku, fáklædd í hælum með vindil.

Flytur heim frá London

Áhrifavaldurinn Hildur Sif Hauksdóttir flytur til Íslands eftir tvö ár í London. 

Notalegir orlofsdagar

Dansarinn Ástrós Traustadóttir rifjar upp síðastliðna daga sem hafa einkennst af ljúfum orlofsdögum með dóttur sinni Nóru.

Stefnumót í Aþenu

Móeiður Lárusdóttir og knattspyrnukappinn Hörður Björgvin Magnússon fóru á stefnumót í gærkvöldi en þau eru búsett í Aþenu, Grikklandi. 

Aron Can árinu eldri

Tónlistarmaðurinn Aron Can fagnaði 24 árum á dögunum.

„Finndu einhvern sem fer harðar

Alltof ungur

Til þess að vera alveg sama

Ég á ennþá eftir að vinna

Ég á ennþá eftir að tapa

Ég á ennþá eftir að missa fleiri vini og eignast aðra,“
 

skrifaði Aron við færsluna.

Forsetahjón Íslands fengu sér ís í Skalla

Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands og eiginkona hans Eliza Reid fóru í opinbera heimsókn til Reykavíkur í vikunni. Hjónin fengu sér meðal annars ís í Skalla í Hraunbæ. 

Mamma fer á jólahlaðborð

Förðunarfræðingurinn og vörumerkjastjórinn Erna Hrund Hermannsdóttir var glæsileg í silfurlituðum kjól á jólahlaðborði um helgina.

Hekluð listaverk

Viktor Andersen hjúkrunarfræðingur fagnaði nýrri bók vinkonu sinnar Elsu Harðardóttur um helgina. 

Jólavertíðin hafin

Tískudrottningin Elísabet Gunnars fagnar jólavertíðinni með fallegum blómum. 

Magnús Geir Þórðarson Þjóðleikhússtjóri og Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir forstöðumaður hjá Samtökum atvinnulífsins héldu heljarinnar partý á heimili sínu við Ægissíðu á föstudagskvöldið. Þangað mætti fjöldi fólks úr leikhúsheiminum auk annarra vina en hjónin eru annáluð fyrir að halda flottar veislur.

Þá bauð Selma Björnsdóttir í jólaskvísuboð í gær þar sem hún er annáluð mikið jólabarn. Meðal gesta voru Björk Eiðsdóttir, Nína Dögg Filippusdóttir, Salka Sól Eyfeld, Friðrik Ómar Hjörleifsson, Regína Ósk Óskarsdóttir, Sigga Beinteins, Stefanía Svavarsdóttir, Þuríður Blær Jóhannsdóttir og Jógvan Hansen, svo fáir einir séu nefndir. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.