Þetta segir í fréttatilkynningu frá Isavia. Þar segir að ChangeGroup sé alþjóðlegt fyrirtæki sem sérhæfir sig í fjármálaþjónustu á alþjóðaflugvöllum. Það hafi verið með samskonar rekstur í flugstöðinni á Keflavíkurflugvelli á tíunda áratug síðustu aldar.
Opnað hafi verið fyrir útboð fyrir fjármálaþjónustu á fyrra hluta þessa árs og þrjú fyrirtæki hafi sent inn lokatilboð. Boðinn hafi verið út, til fimm ára, rekstur gjaldeyrisþjónustu, hraðbanka og þjónustu vegna endurgreiðslu virðisaukaskatts á Keflavíkurflugvelli.
Við mat á tilboðunum hafi verið horft til tveggja meginþátta, annars vegar fjárhagslegra og hins vegar tæknilegra þátta sem snúa að þjónustu við viðskiptavini, hönnun og sjálfbærni. Sérfræðiteymi hafi verið á bak við matsflokkana.