Keflavíkurflugvöllur
1 2 3 4 5 6 … 52 ›
Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Smáríkið hefur áfrýjað niðurstöðu Héraðsdóms Reykjaness í dómi um netsölu áfengis sem féll í gær. Forsvarsmaður segir dóminn rangan og ekki skýra viðvarandi óvissu sem er í áfengissölu á Íslandi. Viðskipti innlent 9.4.2026 11:01
Þriðja flugbrautin í Keflavík „rosalega dýr framkvæmd“ Isavia hefur frestað áformum um að bæta við þriðju flugbrautinni á Keflavíkurflugvelli vegna kostnaðar. Þá hafa hugmyndir um að taka aflagða flugbraut í notkun á ný verið slegnar út af borðinu. Innlent 8.4.2026 22:00
Dönsk þyrla með franskri herflutningavél til Íslands Óvenjuleg heræfing fór fram á um páskana í samstarfi danska og franska hersins. Frönsk herflutningavél ferjaði þá danskar herþyrlur milli Danmerkur og Íslands. Verkefnið reyndist krefjandi og þurfti útsjónarsemi til að koma þyrlunum í flutningavélina. Miðað við mælistærðir eru þær of stórar til að rúmast um borð, jafnvel þótt spaðarnir séu teknir af. Innlent 8.4.2026 13:39
Keflavíkurflugvöllur á varaafli vegna eldingar Rafmagnið sló út á Keflavíkurflugvelli í gærkvöldi vegna eldingar sem laust niður á Búrfellslínu. Flugvöllurinn var keyrður á varaafli. Innlent 7.4.2026 10:47
Fyrirhugað flugfélag vekur athygli en engar leyfisumsóknir liggja fyrir Vefur undir nafninu Yelo Air hefur vakið athygli innan flugbransans og kallað fram spurningar um hvort nýtt íslenskt flugfélag sé í burðarliðnum. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu liggja þó hvorki fyrir umsóknir hjá Samgöngustofu um flugrekstrarleyfi né hjá Ferðamálastofu um ferðaskrifstofuleyfi vegna verkefnisins. Viðskipti innlent 31.3.2026 11:04
Ekki hægt að fá bílastæði án bókunar Frá og með deginum í dag og fram yfir páska verður aðeins hægt að leggja bílum í almennum stæðum, á P3, við Keflavíkurflugvöll ef búið er að bóka stæði fyrir fram. Ekki er hægt að aka inn á bílastæðið nema bókun sé til staðar. Neytendur 27.3.2026 14:39
Verslun opnar á varnarsvæðinu en viðveran stendur í stað Ný matvöruverslun frá Navy Exchange Service Command, NEX, hefur verið opnuð á varnarsvæðinu við Keflavíkurflugvöll. Um er að ræða svonefndan Micro Market-sölustað, sem var tekinn í notkun 10. mars og er ætlaður bandarískum hermönnum og öðru liði Atlantshafsbandalagsins á svæðinu. Innlent 27.3.2026 06:46
Aflýsa og seinka flugferðum Morgunflugi Icelandair frá Keflavíkurflugvelli á morgun hefur ýmist verið aflýst eða því seinkað vegna veðurs. Komuflugi Icelandair frá Norður-Ameríku hefur verið seinkað frá morgni til hádegis og búist er við að veðrið muni hafa áhrif á innanlandsflug fyrri partinn. Innlent 25.3.2026 17:41
Bandarískt flugfélag í vetrarflug í fyrsta skipti eftir faraldur Beint áætlanaflug á milli Keflavíkur og Chicago á vegum United Airlines heldur áfram í vetur. Þetta er í fyrsta skipti sem bandarískt flugfélag hefur áætlanaflug á vetraráætlun frá því fyrir heimsfaraldur kórónuveirunnar. Viðskipti innlent 25.3.2026 09:54
„Þið komið ekki til Íslands til að brjóta af ykkur“ Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra segir mikið hafa áunnist í baráttu við glæpi á Íslandi en alltaf sé hægt að gera betur. Hún segir íslenskan lagaramma eiga að senda skýr skilaboð til glæpamanna um að Ísland sé ekki góður áfangastaður. Innlent 24.3.2026 10:59
„Okkar bestu menn valdir í afísinguna“ Afísing flugvéla er einhver þýðingarmesti öryggisþáttur flugsins í vetrarveðrum eins og núna ganga yfir landið. Afísingarsérfræðingur á Keflavíkurflugvelli segir þá sem annast verkið vel meðvitaða um hvað sé í húfi. Innlent 23.3.2026 22:14
Fluginu aflýst eftir að vélin rann út af akbraut Flugi Icelandair til London hefur verið aflýst eftir að flugvélin rann út af akbraut á Keflavíkurflugvellinum í dag. Farþegar hafa setið í vélinni síðan um klukkan 16 en illa hefur gengið að koma dráttarvélum á staðinn. Þá þykir ekki líklegt að það takist að fljúga til Heathrow-flugvallar fyrir lokun. Innlent 23.3.2026 20:23
Flugvél fór út af og öllum brautum lokað Öllum brautum á Keflavíkurflugvelli var tímabundið lokað í kvöld en flugvél Icelandair fór út af akbraut á vellinum þegar henni var ekið frá hliði upp úr klukkan 17. Engan sakaði. Innlent 23.3.2026 17:47
Fríhöfnin gjörsamlega galtóm Öllu flugi til og frá landinu var aflýst í dag vegna óveðursins sem gengið hefur yfir landið. Tíu þúsund farþegar sem áttu bókað flug með Icelandair voru á meðal þeirra sem sátu fastir. Innlent 20.3.2026 20:32
Sextíu flugferðum aflýst vegna veðurs Vegna veðurs hefur Icelandair aflýst öllum brottförum sínum fyrir hádegi á morgun og öllum komuflugum nema tveimur. Fleiri flugfélög hafa þurft að aflýsa flugferðum en gul viðvörun tekur gildi víða um land. Innlent 19.3.2026 21:01
Aflýsa tólf flugferðum frá Ameríku Á annað þúsund farþega eru strandaglópar í Ameríku þar sem Icelandair hefur aflýst tólf flugferðum í fyrramálið vegna veðurs. Gular viðvaranir taka gildi í kvöld. Innlent 19.3.2026 18:27
Einstefna komumegin við Keflavíkurflugvöll Hluti af vegi sem liggur á milli flugstöðvarbyggingar Keflavíkurflugvallar og langtímabílastæða norðan við hana verður einstefna með framkvæmdum sem hófust í dag. Breytingarnar eru sagðar eiga að auka öryggi vegfarenda og bæta umferðarflæði. Innlent 18.3.2026 11:02
Rammagerðin fari með fleipur í fjölmiðlum og beri sjálf ábyrgð á stöðunni Sveinbjörn Indriðason forstjóri Isavia segir forsvarsfólk Rammagerðarinnar hafa farið með rangfærslur í fjölmiðlum og að staðan sem upp er kominn sé vegna ákvarðana sem Rammagerðin hafi tekið í sjálf í rekstri sínum. Innlent 15.3.2026 15:07
„Skapaði mikla ringulreið hjá okkur og við erum hrædd“ Isavia lokaði í fyrrinótt öllum þremur verslunum Rammagerðarinnar á Keflavíkurflugvelli þrátt fyrir að félagið hafi að eigin sögn fengið greiðsluskjól vegna vangreiddrar leigu samkvæmt dómsúrskurði. Framkvæmdastjóri verslunarinnar kveðst hrædd og sakar rekstraraðila flugvallarins um lögbrot. Innlent 15.3.2026 13:17
Lokuðu aftur Rammagerðinni þrátt fyrir úrskurð um greiðsluskjól Isavia lokaði í nótt öllum þremur verslunum Rammagerðarinnar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar, þrátt fyrir að félagið hafi fengið greiðsluskjól samkvæmt dómaraúrskurði. Gerðist þetta í kjölfar þess að framkvæmdastjóri verslunarinnar gagnrýndi framferði flugvallarins og sagðist ætla að fara fram á lögbann á hendur ríkisfyrirtækinu. Innlent 14.3.2026 19:28
Fara fram á lögbann á Isavia Verslunarmenn í Rammagerðinni segjast ætla að fara fram á lögbann á Isavia þar sem ríkisfyrirtækið hafi lokað verslun Rammagerðarinnar á Keflavíkurflugvelli í leyfisleysi. Isavia telur Rammagerðina skulda í leigu en Rammagerðin segir forsendur leigusamningsins löngu brostnar. Viðskipti innlent 13.3.2026 23:23
Ekki í forgangi hjá Isavia að smíða bílastæðahús Smíði bílastæðahúss við Leifsstöð er ekki forgangsmál hjá Isavia á næstum árum. Yfirmaður flugvallarþróunar og innviða Keflavíkurflugvallar hafnar því að Isavia okri á bílastæðum. Innlent 9.3.2026 20:19
Ekki nóg af sætum, salernum, mat eða upplýsingum Hafsteinn Karlsson var á leið til Íslands frá Kaupmannahöfn með konu sinni á fimmtudaginn þegar stefnan var óvænt tekin á Akureyri vegna veðuraðstæðna á Keflavíkurflugvelli. Við tóku um átta klukkustundir af óvissu í komusalnum á Akureyrarflugvelli þar sem mörghundruð manns var gert að bíða í fleiri klukkutíma. Innlent 1.3.2026 20:04
Trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli vegna meintrar sprengju Bandaríski trúðurinn Eric Broomfield, sem kallar sig Jelly Boy the Clown og býr á Íslandi, var handtekinn um borð í flugvél Icelandair í Keflavík á leið til Bandaríkjanna á þriðjudag. Ástæðan var rafmagnstæki, sem hann notar í sýningum sínum, sem lögreglan taldi vera heimagerða sprengju. Hann var yfirheyrður og dúsaði í fangaklefa í fimm klukkutíma áður en honum var sleppt. Hann hefur ferðast um allan heim með tækið og aldrei áður lent í öðru eins. Lífið 27.2.2026 15:36
Síðustu strandaglóparnir komust til Keflavíkur í nótt Síðustu farþegar Icelandair sem lentu í töfum vegna hríðarbyls við Keflavíkurflugvöll síðdegis í gær og var því lent á varaflugvöllum voru komnir til Keflavíkur um tvöleytið í nótt. Forstjóri segir leiðakerfi Icelandair hafa verið komið á réttan snúning í morgun og segir starfsfólk hafa unnið þrekvirki. Innlent 27.2.2026 12:03
Sex hundruð fastir á Akureyri eftir að áhafnir runnu út á tíma Um sex hundruð farþegar um borð í fjórum Icelandair-vélum eru enn fastir á Akureyri eftir að fimmtán vélum flugfélagsins var í dag vísað á varaflugvelli vegna óveðurs í Keflavík. Nú eru áhafnir vélanna runnar út á tíma og nýjar áhafnir á leið með flugi frá Reykjavík. Innlent 26.2.2026 21:50
Vaktin: Sautján vélar á röngum velli og flugferðum aflýst Sextán farþegaþotum og einni herþotu var síðdegis í dag lent á þremur varaflugvöllum Íslands vegna óveðurs á Keflavíkurflugvelli. Þetta hafði áhrif á tvö þúsund farþega Icelandair, sem hefur nú aflýst að minnsta kosti fimm flugferðum. Innlent 26.2.2026 15:35
Engin viðvarandi markaðssetning frá 2023 Viðvarandi markaðssetning stjórnvalda í ferðaþjónustu hefur ekki verið til staðar frá árinu 2023 og fjárframlög minnkuð, segir fagstjóri ferðaþjónustu hjá Íslandsstofu. Setja þurfi í samhengi hvernig ferðaþjónusta hér á landi hefur breyst á síðustu árum. Viðskipti innlent 20.2.2026 14:13
Á leið á flugvöllinn þegar fluginu var flýtt Aldísi Leoní Rebora brá heldur betur í brún í lok janúar þegar hún fékk tölvupóst um að hún hefði einungis fimmtíu mínútur til að ná flugi til London. Flugið var það fyrsta á löngu ferðalagi frá Íslandi til Ástralíu þar sem hún stundar nám. Sannarlega engin óskabyrjun. Lífið 20.2.2026 11:47
Allt að 57% lægra verð í Ísland Duty Free Undanfarið hefur verið mikið rætt um verð í verslun Iceland Duty Free á Keflavíkurflugvelli, nýlega í samanburði við tollfrjálsa verslunina í Alicante á Spáni. Umfjöllun Morgunblaðsins sýnir að verð á Íslandi er hærra í völdum tilfellum en í Alicante. Skoðun 19.2.2026 11:01