Frakkar fyrstir í undanúrslit Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 12. desember 2023 17:57 Frakkar eru komnir í undanúrslit HM kvenna í handbolta. EPA-EFE/Beate Oma Dahle NORWAY OUT Frakkland varð í dag fyrsta þjóðin til að tryggja sér sæti í undanúrslitum heimameistaramóts kvenna í handbolta með öruggum ellefu marka sigri gegn Tékkum, 33-22.
Ólympíumeistarar Frakklands eru af flestum taldir ein af tveimur sigurstranglegustu þjóðum mótsins og vann liðið nauman sigur gegn ríkjandi heimsmeisturum Noregs í lokaleik milliriðlanna um helgina. Frakkar höfðu yfirhöndina frá upphafi til enda í leik dagsins og náðu fjögurra marka forskoti þegar fyrri hálfleikur var um það bil hálfnaður. Tékkarnir klóruðu þó í bakkann fyrir hlé og staðan var 18-16 þegar flautað var til hálfleiks og liðin gengu til búningsherbergja. Frönsku stelpurnar reyndust þó mun sterkari í síðari hálfleik og náðu fljótt upp fimm marka forskoti. Þær juku forskot sitt jafnt og þétt það sem eftir lifði leiks og unnu að lokum öruggan ellefu marka sigur, 33-22. Frakkar eru þar með á leið í undanúrslit HM þar sem liðið mætir annaðhvort Svíum eða Þjóðverjum. Tékkar eru hins vegar úr leik í baráttunni um heimsmeistaratitilinn, en munu leika um 5.-8. sæti.
HM karla í handbolta 2023 Mest lesið Mainoo tryggði sigur eftir að United gaf tvö mörk Enski boltinn Læti í göngunum og Hermann sakaður um að slá til KR-ings Íslenski boltinn Ferguson fluttur á spítala Enski boltinn „Eins og stúdentsprófin í MR“ Íslenski boltinn Golfsveifla Sigmundar Davíðs heldur hægri sinnuð Golf „Það fer í taugarnar á mér“ Íslenski boltinn ÍBV - Breiðablik | Hvernig koma Blikar undan þyrluflugi? Íslenski boltinn Isak aftur meiddur Enski boltinn Fullkomnuðu endurkomuna og hentu Boston út Körfubolti Eyjakonan lagði Sveindísi Fótbolti Fleiri fréttir Orri Freyr portúgalskur meistari þriðja árið í röð Óðinn með ellefu mörk á leið í úrslit „Ég þarf meira frá mínum reynslumestu mönnum en þetta“ Valur - ÍBV 39-33 | Fyrsta högg Valskvenna í markaleik „Hefði haldið að það væri stefna HSÍ að vernda unga leikmenn“ Haukur allt í öllu hjá Löwen Guðjóni Val líkt við íslenskt eldfjall eftir eldræðu á blaðamannafundi Magnús kominn heim af sjúkrahúsi en tímabilinu líklega lokið Kærastan 31 ári yngri: „Ég fékk mikil viðbrögð í upphafi“ Magnús í sjúkrabíl af Hlíðarenda Viktor varði fleiri en Nielsen í sigri í Frakklandi Andri fékk ekki að hjálpa pabba og lið Guðjóns Vals vann upp mikið forskot Uppgjörið: Valur - FH 32-30 | Aftur komnir með frumkvæðið Þrettán frá Gidsel en Bjarki og félagar fögnuðu Gríðarlegt áfall ÍBV fyrir úrslitin Lætur formanninn og framkvæmdastjóra HSÍ finna fyrir því Tefldu á tæpasta vað en leika áfram í Olís-deildinni Kraftaverk Einars Braga og félaga dugði skammt Gísli, Ómar og Elvar tóku stórt skref í átt til Kölnar Verður Elvar liðsfélagi Hauks? „Það væri óskastaðan“ Evrópskt stórlið með augu á Degi Arnar Freyr öflugur í evrópskum Íslendingaslag Uppgjörið: ÍBV - Haukar 36-31 | Eyjakonur tryggðu sér sæti í úrslitum Stjörnurnar fá frí gegn Egyptum Uppgjörið: FH - Valur 31-25 | FH jafnaði einvígið í Krikanum Stórsigur Stjörnunnar knúði fram oddaleik Magdeburg aftur á sigurbraut eftir erfiða bikarhelgi Haukar fá enn frekari liðsstyrk frá HK Elvar og félagar luku tímabilinu með sigri Sjá meira