Kjartan Henry leggur skóna á hilluna Valur Páll Eiríksson skrifar 15. desember 2023 15:08 Kjartan Henry lék lengst af með uppeldisfélaginu KR. Vísir/Hulda Margrét Kjartan Henry Finnbogason hefur lagt fótboltaskóna á hilluna. Í gær var tilkynnt að Kjartan væri nýr aðstoðarþjálfari FH og mun hann ekki leika með liðinu samhliða því.
Kjartan Henry staðfesti þetta við Vísi í dag en þá er einnig greint frá þessu í hlaðvarpsþætti FH. Kjartan Henry lék lungann úr sínum leikmannaferli hér heima með KR, hvar hann er alinn upp. Hann hélt ungur út til Celtic í Skotlandi árið 2004 og lék með Queen's Park, Åtvidabergs FF, Sandefjord og Falkirk áður en hann kom aftur heim í KR árið 2010. Hann varð Íslandsmeistari með liðinu 2011 og 2013 og vann bikarkeppnina í þrígang, 2010, 2011 og 2014. Eftir sumarið 2014 fór Kjartan til Horsens í Danmörku og lék þar við góðan orðstír til ársins 2018 þegar hann reyndi fyrir sér með Ferencvaros í Ungverjalandi. Eftir stutt stopp þar lék hann með Vejle, Esbjerg og aftur með Horsens áður en hann kom heim í KR 2021. Önnur heimkoma hans fór ekki að óskum og var samningi hans rift eftir tímabilið 2022. Þá samdi hann við FH og lék það sem reyndist sitt síðasta tímabil með FH nýliðið sumar. Kjartan skoraði ellefu mörk í 24 leikjum með FH sem hafnaði í fimmta sæti. Kjartan spilaði 13 landsleiki fyrir Íslands hönd og skoraði í þeim þrjú mörk. Nýr kafli tekur nú við hjá Kjartani Henry sem tekur við af Sigurvini Ólafssyni sem aðstoðarþjálfari Heimis Guðjónssonar hjá Hafnfirðingum. Kjartan Henry verður til viðtals í Sportpakkanum á Stöð 2 í kvöld.
Besta deild karla FH KR Mest lesið Sótillur eftir tapið: „Sóa fyrirhöfn heillar þjóðar“ Fótbolti Arnar tók upp hanskann fyrir FIFA: „Þetta virkar ekki þannig“ Fótbolti „Hreinlega spilling í gangi ítrekað“ Fótbolti FIFA styður dómarann sem Trump sagði að væri grunsamlegur Fótbolti Hvers vegna tekur Halldór ekki strax við Val? Íslenski boltinn Evrópuþingmenn kalla eftir rannsókn á Infantino Fótbolti Veikindi herja á norska liðið Fótbolti Sölvi reiður þrátt fyrir sigur Fótbolti Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Körfubolti Óábyrgt að láta leikmenn spila á hættulegum velli Sport Fleiri fréttir Ungu strákar Blika að leggja lóð sín á vogarskálarnar Styrktarleikur á Selfossi þegar vinaliðin mætast í fyrsta sinn Blikar fá Hlyn heim frá Svíþjóð Hvers vegna tekur Halldór ekki strax við Val? Elías Már sárþjáður og fór af velli Tók upp hanskann fyrir Sigurpál: „Gerir það sem markmenn KR eiga að gera“ Segir að Ungverjarnir hafi verið óheppnir að fá Víking í drættinum Sjáðu enn eitt markið hjá Kennie og Stefan koma Keflavík í efri hlutann Uppgjörið: Keflavík - Fram 1-1 | Heimamenn upp í efri hlutann Amin Cosic orðinn leikmaður Noregsmeistaranna Fór betur en áhorfðist hjá Aroni Snæ Með sitt eigið HM í Bestu deildinni Þór yngri en þegar báðir bræður hans skoruðu sitt fyrsta mark Alex Freyr: „Það er kominn hundur í menn” Völsungsliðin skoruðu sex mörk en fengu bara eitt stig Uppgjörið: ÍBV-Valur 1-0 | Alex Freyr í aðalhlutverki í enn einum Eyjasigri Uppgjörið: ÍA – Breiðablik 1-2 | Endurkomusigur Blika sem spilltu gleðinni á Akranesi Uppgjörið: FH - Stjarnan 2-2 | Jafnt í Krikanum Hafa ekki unnið nágrannana hinum megin við hraunið í þrjú ár Fyrsti markvörðurinn til að skora utan af velli í 48 ár Sjáðu skrautlegu mörkin fyrir norðan og dramatíkina í Víkinni Sumarmótin: Æfir út í dómarann þrátt fyrir sigur Átti Amin að sjá rautt? Uppgjörið: Víkingur - KA 3-2 | Endurkomusigur hjá Víkingum sem þurfti að hafa vel fyrir því „Stundum þarf bara að vinna að alvöru fyrir þessu“ Uppgjörið: Þór - KR 3-3 | Endurkoma hjá KR „Mér leið svipað í 3-0 eins og í 0-0“ Markvörður Þórs skoraði ótrúlegt mark gegn KR Sjáðu skemmtileg og mismunandi fagnaðarlæti strákanna á Orkumótinu KR-ingar mæta eina liðinu sem er búið að fá á sig fleiri mörk en þeir Sjá meira