Albert skoraði beint úr aukaspyrnu í jafntefli Siggeir Ævarsson skrifar 5. janúar 2024 21:48 Albert var á skotskónum í kvöld Vísir/Getty Mark Alberts var raunar eina marktilraun Genoa sem rataði á rammann í kvöld en heimamenn í Bologna sóttu nánast án afláts allan leikinn en Josep Martínez markvörður Genoa varði eins og berserkur. Það var ekki fyrr en á 5. mínútu uppbótartíma sem varnarmaðurinn Lorenzo De Silvestri náði að koma boltanum í netið og bjargaði stigi fyrir heimamenn. Bologna menn líta eflaust á úrslitin sem töpuð stig en liðið er í hörku baráttu í efri helmingi deildarinnar, í 5. sæti með 32 stig eftir 19 leiki og hefði getað komast yfir Fiorentina með sigri í kvöld. Genoa aftur á móti siglir nokkuð lygnan sjó um miðja deild í 12. sæti. Ítalski boltinn
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti