Velur Alvotech sem eina bestu fjárfestinguna í hlutabréfum á árinu 2024
![Hlutabréfaverð Alvotech í Kauphöllinni hér heima hefur hækkað um nærri helming frá því í byrjun nóvember í fyrra og er markaðsvirði félagsins núna á ný orðið meira en 500 milljarðar.](https://www.visir.is/i/AFEFE19886AEA337ED0C4815525B68CFBF725247F32F6521101AE5D27D363E57_713x0.jpg)
Alvotech er í „einstakri“ stöðu til að verða leiðandi í þróun og framleiðslu á líftæknilyfjum, að sögn bandarísks hlutabréfagreinenda, sem hefur útnefnt íslenska félagið sem einn besta fjárfestingakostinn á hlutabréfamarkaði á þessu ári. Hlutabréfaverð Alvotech hefur verið mikilli siglingu, upp um meira en þriðjung á innan við mánuði, en í vikunni mæta fulltrúar bandaríska Lyfjaeftirlitsins til landsins til gera úttekt á framleiðsluaðstöðu fyrirtækisins og mun niðurstaða hennar ráða miklu um framhaldið.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/721E607821B202E5B2955E285B139D6EFE1EE39E408A7493B6CE6A5076BF0B29_308x200.jpg)
Greinandi Citi hækkar verðmat sitt á Alvotech um hundrað prósent
Greinandi bandaríska fjárfestingabankans Citi, sem hefur mælt með sölu á bréfum í Alvotech frá því um haustið 2022, hefur nú uppfært verðmat sitt á íslenska líftæknilyfjafélaginu um hundrað prósent og ráðleggur fjárfestum að halda í bréfin. Hann er vongóður um að Alvotech verði fyrsta fyrirtækið til að komast inn á Bandaríkjamarkað með hliðstæðu við Humira, mesta selda lyf í heimi, í háum styrk og með útskiptileika.
![](https://www.visir.is/i/AB8F33BBDBCC81A8B09573CC5B07655FE4FC6439C9FA06500E435A5F8C6D1ACA_308x200.jpg)
Alvotech með nýja umsókn til FDA um markaðsleyfi fyrir sitt stærsta lyf
Verulegur samdráttur varð í sölutekjum Alvotech á öðrum fjórðungi ársins, sem námu um sjö milljónum Bandaríkjadala, borið saman við tekjur fyrsta ársfjórðungs en íslenska líftæknilyfjafélagið hætti meðal annars samstarfi sínu við STADA á tímabilinu. Alvotech hefur skilað inn endurnýjaðri umsókn til Matvæla- og lyfjaeftirlits Bandaríkjanna (FDA) um markaðsleyfi fyrir sitt stærsta hliðstæðulyf sem það væntir að verði komið á markað vestanhafs í ársbyrjun 2024.