Viðskipti innlent

Guð­björg kaupir þrjú fyrir­tæki

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Guðbjörg hringdi bjöllunni í Kauphöllinni í desember þegar viðskipti með bréf í Ísfélaginu hófust þar.
Guðbjörg hringdi bjöllunni í Kauphöllinni í desember þegar viðskipti með bréf í Ísfélaginu hófust þar. Nasdaq

Guðbjörg Magnea Matthíasdóttir útgerðarkona í Eyjum hefur keypt fyrirtækin Expert, Expert kæling og GS Import í gegnum félag sitt Fastus ehf sem sérhæfir sig í heildsöluverslun. Hið sameinaða fyrirtæki ber heitið Fastus ehf., en starfsemi þess skiptist nú í tvö meginsvið; Fastus heilsu og Expert. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Fastus.

Sameiningin kom í kjölfarið á kaupum hins rótgróna þjónustufyrirtækis Fastus á hinum félögunum. Að sameiningu lokinni var farið í gagngera endurskoðun á útliti og heildarásýnd á hinu nýja, sameinaða félagi. Guðbjörg Magnea Matthíasdóttir útgerðarkona í Vestmannaeyjum á rúmlega níutíu prósenta hlut í Fastus.

Fyrirtækið er flutt í nýjar höfuðstöðvar að Höfðabakka 7 í Reykjavík en þar er glæsileg verslun, sýningareldhús, skrifstofur, verkstæði og vörulagerar fyrir bæði svið, auk varahlutalagers. Áætluð ársvelta samstæðunnar er u.þ.b. sjö milljarðar króna.

Guðrún Gunnarsdóttir framkvæmdastjóri, Þórir Örn Ólafsson, deildarstjóri Expert, Ásta Rut Jónasdóttir vörustýring og Arnar Bjarnason framkvæmdastjóri.Fastus

Expert sérhæfir sig í ráðgjöf og sölu á tækjum og vörum fyrir stóreldhús, hótel og veitingastaði. Þar er einnig eitt stærsta tæknisvið landsins sem sér um viðhald og ýmsa þjónustu við eldhús- og kælitæki og sérhæfðan tækjabúnað fyrir heilbrigðisgeirann. Hjá Fastus heilsu er áherslan á sölu ýmissa sérhæfðra lækningatækja, búnaðar og rekstrarvöru fyrir heilbrigðisstofnanir og einstaklinga.

Arnar Bjarnason og Guðrún Gunnarsdóttir eru framkvæmdastjórar Fastus. Að þeirra sögn er sameiningin gerð svo viðskiptavinir fái betri þjónustu.

„Bæði fyrirtækin, Fastus og Expert, eru þekkt á sínum sviðum, en með sameiningu þeirra náum við betur að tvinna saman sölu og þjónustu, meðal annars með því að bjóða upp á þjónustusamninga sem viðskiptavinir eru að kalla eftir. Með þessu eykst rekstraröryggi viðskiptavina og fyrirsjáanleiki,“ segir Guðrún Gunnarsdóttir.

„Með því að komast öll undir eitt þak þá eykst ekki bara framleiðni starfsmanna heldur geta viðskiptavinir nú nálgast allar vörur og þjónustu á einum stað; eldhúsvörur, heilbrigðisvörur, varahluta- og viðgerðarþjónustu. Sameiningin gefur okkur líka tækifæri til að betrumbæta ferla, sem mun koma viðskiptavinum okkar til góðs,“ segir Arnar Bjarnason í tilkynningu.


Tengdar fréttir

Fastus innkallar spaða vegna arómatísks amíns

Fyrirtækið Fastus hefur innkallað „Paderno World Cuisine“ eldhússpaða úr plasti. Ástæðan er að flæði arómatísks amíns fer yfir leyfileg mörk samkvæmt reglugerðum. Viðskiptavinir eru beðnir um að hætta notkun vöru hennar og farga henni eða skila.

Guð­björg hringdi bjöllunni

Viðskipti með hlutabréf Ísfélags hf. á aðalmarkaði Nasdaq Iceland hófust í morgun. Guðbjörg Matthíasdóttir, eigandi Ísfélags, hringdi af því tilefni Kauphallarbjöllunni um borð í Sigurði VE í Vestmannaeyjahöfn í morgun og naut hún þar aðstoð barnabarna sinna, þeim Magnúsi og Sigurði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×