„Mögulega stærstu skipti ökumanna og liða í sögu Formúlunnar“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 2. febrúar 2024 23:31 Bragi Þórðarson segir að skipti Lewis Hamilton frá Mercedes til Ferrari séu mögulega þau stærstu í sögunni. samsett „Ég náttúrulega bara trúði þessu ekki,“ sagði Bragi Þórðarson um vistaskipti sjöfalda heimsmeistarans Lewis Hamilton frá Mercedes til Ferrari.
Þegar félagsskiptaglugginn í stærstu deildum Evrópu í knattspyrnu stóð sem hæst í gær bárust fréttir af skiptum úr annarri íþrótt. Fréttir bárust af því að Lewis Hamilton, sjöfaldur heimsmeistari í Formúlu 1, myndi færa sig yfir til Ferrari frá Mercedes að komandi tímabili loknu. Þrátt fyrir að félagsskiptaglugginn í fótboltanum hafi verið heldur bragðdaufur er óhætt að segja að fátt úr þeim efnum hefði getað varpað skugga á þessa sprengju sem birtist upp úr engu úr heimi Formúlunnar. Bragi Þórðarson, sem lýst hefur Formúlu 1 á Vodafone Sport og Viaplay undanfarin ár, var eins og margir, steinhissa á fréttunum. „Ég náttúrulega bara trúði þessu ekki. Þetta er samt svo gott sem staðfest, þó liðin sjáf hafi ekki staðfest þetta þá eru stærstu miðlarnir búnir að staðfesta þetta að Lewis Hamilton fari 2025 yfir til Ferrari,“ sagði Bragi, en fljótlega eftir þessi ummæli hans barst vissulega staðfesting frá liðunum tveimur. „Hann klárar þetta tímabilð núna - hans tólfta tímabil - með Mercedes. Þetta lið sem hann er búinn að vera með nánast frá byrjun því hann byrjar með McLaren með Mercedes mótor aftan í bílnum. Það hefur enginn ökumaður keppt jafn margar keppnir með sama vélaframleiðanda. En það er allt að fara að hætta núna eftir ár.“ Hefur ekki allan heimsins tíma Áður hafði heyrst hvísl um að mögulega væri Hamilton á leið til Ferrari frá Mercedes, en eftir að hann skrifaði undir framlengingu á smningi sínum fyrr á þessu ári virtst sá orðrómur vera úr sögunni. „Hann náttúrulega verður fertugur í janúar á næsta ári þannig hann hefur ekkert allan tíma í heimi. Það virðist alltaf vera frétt á hverju einasta ári hvort Hamilton sé að fara að framlengja eða ekki og þetta hefur alltaf legið svolítið í loftinu. Það að hann fari núna þýðir náttúrulega ekki bara það að hann vill verða geitin, Greatest of all Time, heldur bara einhverskonar goð í Formúlunni. Ef hann nær að verða heimsmeistari með Ferrari þá er hann búinn að verða heimsmeistari með þremur mismunandi liðum, mun rífa Ferrari úr eyðimerkurgöngu sem hefur staðið síðan 2007, þá er ekki hægt að segja neitt annað en að Lewis Hamilton sé sá allra, allra besti. En þá verður hann líka að gjöra svo vel að vinna eitt stykki Max Verstappen.“ „Alveg hægt að láta þetta ganga“ Þá segir Bragi að það geti brugðið til beggja vona þegar ökumenn eru búnir að ákveða að keyra fyrir annað lið. „Við höfum séð mikið af svona hryllingssögum hvað þetta varðar, en við höfum líka séð þetta virka. Frægasta atvikið er ábyggilega Fernando Alonso árið 2006. Hann vinnur titilinn með Renault, vitandi fyrirfram að hann er að fara til McLaren árið eftir.“ „Þannig að það er alveg hægt að láta þetta ganga, en hvað ætlar Hamilton að gera ef hann verður heimsmeistari í desember og Ferrari verður í þriðja sæti? Það lýtur ekkert allt of vel út fyrir hann, en vissulega þá orðinn áttfaldur meistari og getur sagt bara bless.“ Klippa: Bragi um vistaskipti Lewis Hamilton Bragi segir einnig að mögulega séu þetta stærstu skipti í sögu Formúlunnar. „Þetta er án efa í því samtali að þetta eru mögulega stærstu skipti ökumanna og liða í sögu Formúlunnar. Ég vil meina að Alain Prost árið 1990 að fara frá McLaren yfir til Ferrari, McLaren þá verandi besta liðið og Alain Prost verandi besti ökumaður heims ásamt Ayrton Senna á þeim tíma er mögulega stærra en þetta.“ „Hamilton er að gera þetta það seint - hann verður orðinn fertugur þegar hann mun keyra Ferrari-bílinn - en Hamilton er bara svo stórt nafn og Formúlan er náttúrulega miklu stærri en hún var þá. Þannig að jú, ég held að við getum alveg sagt að þetta séu risafréttir,“ sagði Bragi, en viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Akstursíþróttir Mest lesið Sjáðu lætin í lokin: „Þetta var algjörlega til skammar“ Enski boltinn Jóhann í leyfi frá þjálfun Grindavíkurliðsins Körfubolti Alfreð hafði betur gegn Degi í troðfullu húsi Handbolti „Ísland hafi aldrei átt jafn góða möguleika á að komast í undanúrslit“ Handbolti „Gabi vildi ekki gera honum neitt slæmt“ Enski boltinn Svona var stórleikurinn: Átti Liverpool að fá víti? Enski boltinn Rúnar Ingi: „Kæfðu okkar stemningu og völtuðu yfir okkur“ Sport „Algjör karakter og þú lýstir upp hvert sem þú fórst“ Fótbolti Steinar: Virðingarleysi sem smitast Körfubolti Mikael krækti í víti og var grátlega nærri sigri á Milan Fótbolti Fleiri fréttir F1-ökumaður gagnrýndur fyrir vanvirðingu við Schumacher Komst við er hann ræddi Schumacher Þá fáum við að vita meira um líf Schumacher eftir slysið Telur samstarf Hamilton og Ferrari nálgast þolmörk Portúgal í stað Hollands í Formúlu 1 Valin kona ársins í akstursíþróttum á sautján ára afmælisdaginn Stórar breytingar og tímamót hjá Red Bull Heimsmeistarinn vill gleyma því að hann keyri í Formúlu 1 Sjáðu hamaganginn þegar Norris varð heimsmeistari í fyrsta sinn Klökkur Norris: „Ég er ekki að gráta“ Lando Norris er Formúlu 1 heimsmeistari í fyrsta sinn Svona verða Norris, Verstappen eða Piastri heimsmeistarar í dag Verstappen á ráspól og allt opið í lokakeppninni McLaren ætlar að nota heilbrigða skynsemi í ákvörðunum sínum Verstappen fær nýjan liðsfélaga Hótað lífláti eftir mistökin Reiður eftir ásakanir um svindl: „Hversu heilalaus þarftu að vera?“ Sjá meira