
Akstursíþróttir

Hamilton dæmdur úr leik í Kína
Sjöfaldi heimsmeistarinn Lewis Hamilton hefur verið dæmdur úr leik í kínverska kappakstrinum ásamt tveimur öðrum.

Piastri vann Kínakappaksturinn
McLaren byrjar tímabilið í Formúlu 1 vel en liðið hefur unnið fyrstu tvær keppnirnar. Í dag hrósaði Oscar Piastri sigri í kínverska kappakstrinum.

Hamilton vann sprettkeppnina en Piastri á ráspól
Lewis Hamilton á Ferrari fagnaði sigri í sprettkeppni næturinnar í Formúlu 1 í Sjanghæ í Kína. Oscar Piastri á McLaren varð annar en hann verður jafnframt á ráspól í keppni morgundagsins eftir góða tímatöku í morgun.

Fyrsti ráspóll Hamiltons í rauðu
Sjöfaldi heimsmeistarinn Lewis Hamilton verður á ráspól í sprettkeppni helgarinnar í Formúlu 1 kappakstrinum sem fram fer í Kína. Hann hefur því náð sínum fyrsta ráspól hjá nýju liði.

Eddie Jordan látinn
Eddie Jordan, sem var eigandi Jordan í Formúlu 1, lést í morgun, 76 ára að aldri. Banamein hans var krabbamein.

Formúlan gæti farið til Bangkok
Svo gæti farið að Formúlu 1 keppni færi fram í Bangkok, höfuðborg Taílands, á næstu árum.

„Þetta tímabil verður ekki fyrir hjartveika“
Christian Horner, liðsstjóri Red Bull liðsins í Formúlu 1, segir að komandi tímabil verði stærsta áskorun liðsins til þessa.

F1 2025: Guð gefðu okkur besta tímabil sögunnar
Tuttugu og fjórar keppnishelgar, tíu lið, tuttugu framúrskarandi ökumenn en aðeins einn þeirra stendur uppi sem heimsmeistari. Þetta er krúnudjásn akstursíþróttanna, Formúla 1.

Lofaði Hamilton að ræða ekki við Verstappen
Toto Wolff, liðsstjóri Formúlu 1 liðs Mercedes, gaf sjöfalda heimsmeistaranum Lewis Hamilton loforð þess efnis að hann myndi ekki reyna að fá Max Verstappen til liðs við Mercedes frá Red Bull Racing á meðan að Bretinn væri ökumaður liðsins.

Sár Verstappen hótar sniðgöngu
Ríkjandi Formúlu 1 heimsmeistarinn Max Verstappen er allt annað en sáttur með móttökurnar sem hann fékk í O2 höllinni í Lundúnum á eins konar frumsýningarkvöldi mótaraðarinnar á dögunum. Baulað var hressilega á Hollendinginn er hann var kynntur til leiks á umræddu kvöldi.

Dómur fallinn: „Þetta var viðbjóðslegt af mér og ég tek fulla ábyrgð“
Þrír menn hafa verið dæmdir í Þýskalandi fyrir að hafa reynt að kúga fé frá fjölskyldu Formúlu 1 goðsagnarinnar Michael Schumacher með því að hóta því að birta viðkvæmar upplýsingar úr sjúkraskrám hans sem og myndir af honum.

Hamilton klessti Ferrari-inn á fyrsta degi
Lewis Hamilton, einn þekktasti og sigursælasti ökumaður Formúlu 1 frá upphafi, gekk í raðir Ferrari fyrir komandi tímabil í F1. Hann vonar að fall sé fararheill eftir að klessa á þegar hann keyrði Ferrari-bíl sinn í fyrsta skipti.

Arftaki Hamiltons fékk bílprófið sex vikum fyrir fyrstu keppni tímabilsins
Andrea Kimi Antonelli, sem tekur við af Lewis Hamilton hjá Mercedes, er kominn með bílpróf, sex vikum fyrir fyrstu keppni hans í Formúlu 1.

Skælbrosandi Sofia snæddi með Lewis
Vel fór á með leikkonunni Sofiu Vergara og ökuþórnum Lewis Hamilton á stefnumóti í New York á þriðjudag.

Hamilton gæti ekki verið spenntari fyrir komandi tímabili
Lewis Hamilton, einn besti ökumaður Formúlu 1 frá upphafi, gæti ekki verið spenntari fyrir nýju upphafi en á næsta keppnistímabili mun hann keppa fyrir hönd Ferrari.

Meistarinn með nýjan félaga eftir að Perez var sparkað
Nú er orðið ljóst hver mun aka fyrir Red Bull liðið ásamt heimsmeistaranum Max Verstappen, eftir að ákveðið var að reka Sergio Perez.

Norris vann og tryggði McLaren fyrsta titilinn í 26 ár
Lando Norris hrósaði sigri í Abú Dabí kappakstrinum, síðustu keppni tímabilsins í Formúlu 1. Með sigrinum tryggði hann McLaren heimsmeistaratitil bílasmiða.

McLaren langt komið með að tryggja sér heimsmeistaratitil bílasmiða
Lando Norris verður fyrstur af stað og liðsfélagi hans, Oscar Piastri, annar í síðasta kappakstsri tímabilsins í Formúlu 1 sem fer fram í Abú Dabí á morgun. McLaren er langt komið með að tryggja sér heimsmeistaratitil bílasmiða.

Russell segir að Verstappen hafi hótað að klessa á hann
George Russell, ökumaður Mercedes, hefur svarað Max Verstappen. Hann segir að heimsmeistarinn hafi hótað að klessa á hann í kappakstrinum í Katar og meiða hann.

Heimavöllur heimsmeistarans tekinn af dagskrá
Hollenski kappaksturinn í Formúlu á Zandvoort brautinni verður tekinn af keppnisdagatali mótaraðarinnar eftir tímabilið 2026.

Dagar Perez hjá Red Bull virðast taldir
Það bendir allt til þess að dagar Mexíkóans Sergio Perez hjá Red Bull racing verði taldir eftir lokakeppni tímabilsins í Abu Dhabi um komandi helgi.

Hill hneykslaður: „Er Schumacher harmleikurinn ekki nóg fyrir sumt fólk?“
Damon Hill segir fjárkúgun fyrrverandi lífvarðar Michaels Schumacher ógeðslega og spyr hvort fjölskylda hans hafi ekki þjáðst nóg.

Lætur Bretann heyra það: „Mín virðing fyrir honum er engin“
Max Verstappen, nýkrýndur heimsmeistari ökuþóra í Formúlu 1 og liðsmaður Red Bull Racing, segist hafa misst alla virðingu fyrir George Russell, ökuþór Mercedes eftir nýliðna keppnishelgi mótaraðarinnar í Katar.

Fyrrverandi lífvörður Schumachers reyndi að fjárkúga hann
Markus Fritsche, fyrrverandi lífvörður Michaels Schumacher, og tveir aðrir eru til rannsóknar hjá þýsku lögreglunni vegna gruns um að hafa ætlað að hafa af honum fé.

Launaði greiðann og gaf liðsfélaganum sigurinn
Oscar Piastri fagnaði sigri í sprettkeppni katarska kappakstursins í Formúlu 1 í dag. Það var hins vegar liðsfélagi hans hjá McLaren, Lando Norris, sem leiddi frá upphafi til enda. Nánast.

Jenas missir annað starf
Jermaine Jenas, sem var rekinn frá BBC fyrir að senda samstarfskonum óviðeigandi skilaboð, hefur misst annað starf. Jenas mun nefnilega ekki lengur kynna Formúlu E.

Segir að Verstappen ætti að byrja með uppistand
Lando Norris segir að Max Verstappen ætti að byrja með uppistand eftir að hann sagði að hann hefði getað unnið heimsmeistaratitilinn í Formúlu í McLaren bíl Norris.

Segir að Schumacher hafi ekki mætt í brúðkaupið
Ökuþórinn fyrrverandi, Johnny Herbert, segir ekkert hæft í fréttum þess efnis að Michael Schumacher hafi mætt í brúðkaup dóttur sinnar í síðasta mánuði.

Verstappen áfram hjá Red Bull
Max Verstappen, sem landaði sínum fjórða heimsmeistaratitli í Formúlu 1 í morgun, hefur tekið af allan vafa um framtíð sína í íþróttinni.

Verstappen heimsmeistari fjórða árið í röð
Hollendingurinn Max Verstappen tryggði sér í gær sinn fjórða heimsmeistaratitil í Formúlu 1, þegar kappaksturinn í Las Vegas fór fram.