Stjörnulögfræðingur í kossaflensi á rauðu ljósi Svava Marín Óskarsdóttir skrifar 6. febrúar 2024 20:01 Erlendir ferðamenn hafa fengið að kynnast íslenskum vetraraðstæðum undanfarna daga og vikur. Íslendingar hafa ráð undir rifi hverju á þessum árstíma. Meðal annars að flýja til Tenerife eða hlýja sér með ástinni sinni. Vísir/Vilhelm Þótt að kuldinn hafi ráðið ríkjum á landi íss undanfarna daga þá kunna Íslendingar ráð við því. Eitt er að knúsa ástina sína og jafnvel kyssa á rauðu ljósi, sem skyndilega breytist í grænt.
Katrín Oddsdóttir lögmaður og hvalavinur greip tækifærið á rauðu ljósi á Eiríksgötu og smellti kossi á sína heittelskuðu Þorgerði Ásu Aðalsteinsdóttur í gær. Ástin getur yfirtekið stund og stað og áður en varði var komið grænt ljós og bílstjórinn fyrir aftan þrýsti á flautuna til að stöðva augablikið fallega, og komast sína leið. Te og kaffi við Suðurlandsbraut er vinsæll staður fyrir pör og vini til skrafs og ráðagerða. Silfurdrengirnir Björgvin Páll Gústavsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson fengu sér bolla og spáðu í spilin í liðinni viku. Líklegt er að handbolti hafi komið við sögu í spjalli þeirra. Eftirlíkingar af limum silfurdrengjanna eru meðal sýningargripa á Hinu ízlenska reðursafni en stofnandinn Sigurður Hjartarson lést á dögunum. Körfuboltakappinn Ragnar Nathanaelsson var á vappinu á Háskólatorginu í Háskóla Íslands síðastliðinn fimmtudag. Þaðan er stutt á Reykjavíkurflugvöll þaðan sem lið Hamars flaug til keppni við Hött í Subway-deild karla. Ragnar hefur mögulega lesið yfir sig í skólanum fyrri part dags því hann hitti ekki á sinn besta dag. Nýliðar Hamars eru enn án stiga í deildinni en þekkjandi Ragnar þá á hann ráð undir rifi hverju. Krónan á Arnarneshæðinni er orðin afar vinsæl þar sem Garðbæingar og Kópavogsbúar semja frið um stundarsakir og kaupa í matinn. Pétur Jóhann Sigfússon grínisti og Ármann Höskuldsson eldfjallafræðingur eru meðal þeirra sem venja komur sínar í búðina. Spurning hvort Pétur Jóhann fari ekki að bjóða Ármanni í bíltúr með Sveppa í hlaðvarpi þeirra félaga og taka rúntinn um Reykjanesið. Ármann ætti að geta frætt þá félaga um möguleg eldgos framtíðarinnar og jafnvel gefa góð ráð hvar best sé að búa. Ef Sveppi og Pétur vilja halda sig við Krónugesti þá gætu þeir boðið Diljá Péturs með en hún sækir reyndar Krónuna á Granda. Knattspyrnukonan Elín Metta Jensen og Sigurður Tómasson, verkefnastjóri hjá VEX kunna að gera vel við sig í mat og drykk. Hlemmur mathöll var vettvangur funheits stefnumóts parsins á föstudagskvöldið. Leikaraparið Hilmir Snær Guðnason og Vala Kristín Eiríksdóttir voru líka á svæðinu. Greinilega vinsæll staður hjá heitum pörum en bæði pörin urðu til árið 2023. Talandi um leikara þá hefur Björn Hlynur Haraldsson verið á ferð og flugi. Leikarinn sást á Reykjavíkurflugvelli með fararsnið á sér í liðinni viku og var svo mættur í feiknastuði á þorrablót Laugardalsins á laugardagskvöld ásamt eiginkonunni Rakel Garðarsdóttur. Björn Hlynur er mikill Þróttari en þeir rauðu og hvítu skipulögðu veisluna. Íris Tanja Jónsdóttir leikkona skellti sér í Kringluna á laugardaginn. Mögulega að leita að glaðningi fyrir unnustuna Elínu Eyþórsdóttur en parið fagnaði í gær tveggja ára sambandi. Sushi Social í Þingholtsstræti tók vel á móti Ólafi Ragnari Grímssyni fyrrverandi forseta á laugardagskvöldið. Engin Dorrit var með í för en af samfélagsmiðlum hennar má telja líklegt að hún sé stödd í Bretlandi. Inga Auðbjörg Straumland formaður Siðmenntar var í góðra vinkvenna hópi á sama stað. Sushi-ið greinilega vinsælt og þó það kosti skildinginn geta fáir þrætt fyrir gæðin. Ebba Katrín Finnsdóttir fór enn einu sinni á kostum í einleiknum Orð gegn orði í Þjóðleikhúsinu um helgina. Meðal gesta á laugardagskvöldinu voru Friðrik Larsen auglýsingamaður og Illugi Jökulsson fjölmiðlamaður og rithöfundur. Illugi er kominn í fantaform en hann kvaddi 45 kíló á síðasta ári eftir að hafa að vandlega ígrunduðu máli gengist undir hjáveituaðgerð. Illugi er mikill unnandi leikhús og lista. Ragnar Jónasson rithöfundur skemmti sér á Irishman Pub á laugardagskvöldið. Söngelskir landsmenn skella sér þangað til að ýmist syngja í karókí eða með þeim trúbador sem stendur vaktina hverju sinni. Bergþór Ólason þingmaður Miðflokksins var mættur á American bar á sunnudeginum til að fylgjast með boltanum. Ágúst Borgþór Sverrisson blaðamaður á DV og KR-ingur með meiru var líka í banastuði. Þar voru líka feðgarnir Pétur Gautur og Starkaður Pétursson sem sló í gegn í einhleypunni á Vísi á dögunum.
Frægir á ferð Ástin og lífið Mest lesið Fyrsta súperstjarna Íslands stendur á tímamótum Lífið Breyta reglum um atkvæðagreiðslu og kynningu laga í Eurovision Lífið Vonlaust í víkinni Gagnrýni „Sjónvarpssonur“ John Travolta látinn Lífið Feginn að losna við kvíðann sem fylgdi drykkjunni Lífið Var úthúðuð af skipuleggjanda en sigraði í Ungfrú alheimi Lífið Grunaði alltaf að hann væri ekki sonur föður síns Lífið Allt um brjóstastækkun Simone Biles Lífið Þessi hús og lóðir hlutu fegrunarviðurkenningar Reykjavíkurborgar Lífið „Skref í rétta átt“ en ekki útséð um þátttöku Íslands Lífið Fleiri fréttir Feginn að losna við kvíðann sem fylgdi drykkjunni Allt um brjóstastækkun Simone Biles „Skref í rétta átt“ en ekki útséð um þátttöku Íslands Breyta reglum um atkvæðagreiðslu og kynningu laga í Eurovision Samfélagsmiðlastjörnur máluðu Akureyri rauða Þessi hús og lóðir hlutu fegrunarviðurkenningar Reykjavíkurborgar Var úthúðuð af skipuleggjanda en sigraði í Ungfrú alheimi Fyrsta súperstjarna Íslands stendur á tímamótum „Sjónvarpssonur“ John Travolta látinn Tilkynntu hver jólagjöf ársins væri Halla átti ánægjulegan fund með Karli Bretakonungi Edwald-feðgar kaupa hlið við hlið Grunaði alltaf að hann væri ekki sonur föður síns Óhuggulegt fall fegurðardrottningar Sonur tónlistarparsins fæddur og nefndur Óttaðist um líf sitt: „Það var erfiðasti dagur lífs míns“ Játaði sig sigraða: „Mér fannst það algjört tabú áður“ Mobb Deep kemur fram í KR-höllinni í mars Nýsloppin við vinstra vókið þegar það hægra mætti Ætluðu að taka þakið í gegn en urðu óvænt að byrja á kjallaranum Opnar sig um dulið fósturlát RAX hlýtur verðlaun Konunglega ljósmyndafélagsins Æskuheimili Bríetar til sölu: „Epic staður til að alast upp“ Landsliðið réðst á Fannar: „Þó að þið gerið ekkert annað en að tapa“ „Ég elska þig í dag eins og ég gerði þá“ Innlit í ævintýralega baðlónið Laugarás Lagoon Sjö ár frá örlagaríkum kossi á fullu tungli Úr 101 í miðbæ Hafnar: „Búið að bjóða mér á alla fundi Kiwanis, kótilettukvöld og hvaðeina“ „Bannað að reikna hvað Aron var gamall þegar við byrjuðum saman“ Ekki meira en bara vinir Sjá meira