Mest borgað fyrir leigu í austurhluta Kópavogs Atli Ísleifsson skrifar 7. febrúar 2024 10:41 Heildarfjárhæð greiddrar leigu er hæst í póstnúmeri 203 í austurhluta Kópavogs, þar sem leigjendur greiða að meðaltali 293 þúsund krónur á mánuði. Vísir/Vilhelm Meðalleiguverð á höfuðborgarsvæðinu var hæst í póstnúmeri 203 á síðasta ári, en í því sama póstnúmeri voru íbúðir til leigu jafnframt stærri en annars staðar á höfuðborgarsvæðinu. Leiguverðið á hvern fermetra var hins vegar hæst í Vesturbænum.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í úttekt Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar sem unnin er upp úr nýrri leiguskrá sem er hluti af Húsnæðisgrunni HMS. Fram kemur að lesa megi úr gögnum leiguskrár að meðalleiga á hvern fermetra á höfuðborgarsvæðinu sé hæst í póstnúmeri 107 eða rúmlega 4.200 krónur og er fermetraverð þar 13 til 16 prósent hærra en í póstnúmerum 101, 102 og 105 sem koma þar á eftir. „Lægsta meðalfermetraverðið er í póstnúmerum 103 í Reykjavík og svo 201 og 203 í Kópavogi en í þessum þremur póstnúmerum er leiguverð undir 3.000 kr. á fermetra. HMS Heildarfjárhæð greiddrar leigu er hins vegar hæst í póstnúmeri 203, þar sem leigjendur greiða að meðaltali 293 þúsund krónur á mánuði. Til samanburðar er meðalleiga í póstnúmeri 107 207 þúsund krónur á mánuði. Í póstnúmeri 203 má einnig finna stærstu leiguíbúðirnar, en að meðaltali eru þær um 108 fermetrar, samanborið við 59 fermetra meðalstærð í póstnúmeri 107, líkt og sjá má á mynd hér að ofan. Líkt og myndin gefur til kynna er stærð leiguhúsnæðis ráðandi þáttur í leiguverði á höfuðborgarsvæðinu. Staðsetning leiguhúsnæðisins hefur þó einnig áhrif, en meðalleiguverð á hvern fermetra er hærra í póstnúmerum sem eru nálægt miðbæ Reykjavíkur. Ef litið er til höfuðborgarsvæðisins í heild sinni nemur miðgildi leiguverðs á hvern fermetra 3.269 kr. sem er 17% hærra en miðgildi fermetraverðs í nágrenni höfuðborgarsvæðisins. Annars staðar á landinu var miðgildi verðs á leigu rétt rúmlega 2.000 kr. á fermetra. Líkt og sjá má á mynd hér að neðan má sjá marktækan mun á verði á fermetra eftir stærð íbúða og er það t.d. yfir 3.500 kr. fyrir tveggja herbergja íbúð á höfuðborgarsvæðinu en undir 2.500 kr. fyrir fjögurra herbergja íbúð á sama svæði,“ segir á vef HMS. HMS
Leigumarkaður Húsnæðismál Kópavogur Reykjavík Mest lesið Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Viðskipti innlent Sviptingar í stjórn Amaroq Viðskipti innlent Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf Greiðsluáskorun Samstarf ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Sjá meira