Stjarnan lagði KA og fer í Höllina Smári Jökull Jónsson skrifar 11. febrúar 2024 18:00 Tandri Már Konráðsson átti frábæran leik fyrir Stjörnuna í dag. Vísir/Hulda Margrét Stjarnan er komin í undanúrslit Powerade-bikars karla í handbolta eftir þriggja marka sigur á KA á heimavelli í dag.
Þremur stigum munaði á liðunum í Olís-deildinni fyrir leikinn í dag. Stjarnan var með 13 stig í 7. sæti deildarinnar og KA með 10 stig í 9. sæti. Nokkuð jafnt var á með liðunum í fyrri hálfleik en Stjarnan þó skrefinu á undan. Garðbæingar leiddu 12-10 að loknum fyrri hálfleik og komust fjórum mörkum yfir í stöðunni 17-13 snemma í þeim síðari. KA-menn náðu þó vopnum sínum á ný og jöfnuðu í 18-18 og þegar innan við tíu mínútur lifðu leiks var staðan 20-20. En Garðbæingar voru sterkari á endasprettinum. Þeir náðu 3-0 kafla, komust í 23-20 og það bil náðu Akureyringar ekki að brúa. Stjarnan vann að lokum 23-20 sigur og fer því í undanúrslitin sem spiluð verða í Laugardalshöll. ÍBV er einnig komið í undanúrslit en á morgun ræðst hvaða lið ná síðustu tveimur sætunum. Þá mætast Haukar og FH í Hafnarfjarðarslag og Valur tekur á móti Selfyssingum. Tandri Már Konráðsson fór á kostum hjá Stjörnunni í dag og skoraði ellefu mörk úr fjórtán skotum. Adam Thorstensen var með tæplega 40% markvörslu í markinu líkt og Bruno Bernat í marki KA. Jens Bragi Bergþórsson og Einar Rafn Eiðsson voru markahæstir hjá KA með átta mörk.
Powerade-bikarinn Stjarnan KA Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Fótbolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti Fyrri hálfleikur Bandaríkjanna sá besti sem hann hefur séð Fótbolti Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Fótbolti Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Fótbolti Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Handbolti Maður dagsins á HM: Ólst upp í Englandi en valdi Bandaríkin Fótbolti Braut nálgunarbann með því að heimsækja kærustu sína Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Sjá meira