Real tapaði stigum án Bellingham 18. febrúar 2024 15:13 Luka Modric í hörðum slag í dag. Vísir/Getty Real Madrid mistókst að auka forskot sitt á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar en liðið mætti Real Vallecano á útivelli í dag. Jude Bellingham var frá vegna meiðsla en hann meiddist í leik Real um síðsutu helgi. Fyrir leikinn var Real með fimm stiga forskot á Getafe og sjö stigum á undan Barcelona sem vann sigur í sínum leik í gær eftir dramatískar lokamínútur. Leikurinn byrjaði heldur betur vel fyrir lærisveina Carlo Ancelotti. Joselu skoraði strax á 3. mínútu en markið var skoðað í VAR eftir að hafa upphaflega verið dæmt af vegna rangstöðu. Á 27. mínútu fengu heimamenn í Vallecano hins vegar vítaspyrnu sem Raul De Thomas skoraði úr og jafnaði metin. Federico Valverde átti skot í stöng skömmu síðar en staðan í hálfleik var 1-1. Real ógnaði fremur lítið í síðari hálfleik en Toni Kroos átti aukaspyrnu á 80. mínútu sem Stole Dimitirevski varði í horn. Í uppbótartíma fékk Dani Carvajal sitt annað gula spjald og þar með rautt en tíminn var skammur fyrir heimamenn að nýta sér liðsmuninn. Lokatölur 1-1 og Real Madrid nú með fimm stiga forskot á toppi La Liga. Spænski boltinn
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti