Handbolti

Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Freyr Aronsson kom að sextán mörkum Haukanna í kvöld.
Freyr Aronsson kom að sextán mörkum Haukanna í kvöld. Vísir/Anton

Haukarnir héldu sigurgöngu sinni áfram í Olís deild karla í handbolta í kvöld með fimmtán marka stórsigri á HK á Ásvöllumn, 37-22.

Haukaliðið var sex mörkum yfir í hálfleik, 18-12, en vann svo seinni hálfleikinn 19-10.

Haukarnir hafa unnið alla átta leiki sína í Olís deildinni til þessa og eru með fjögurra stiga forskot á næstu lið sem eru KA og Valur.

Haukar hafa unnið þessa átta leiki með 67 marka mun eða með 8,4 mörkum að meðaltali.

Haukamaðurinn Freyr Aronsson skoraði 12 mörk úr aðeins 13 skotum þar af komu þrjú markanna af vítalínunni. Hann átti einnig fjórar stoðsendingar og kom því að sex mörkum í leiknum.

Össur Haraldsson nýtti öll sex skotin sín og Skarphéðinn Ívar Einarsson var með fjögur mörk. Birkir Snær Steinsson, Sigurður Jefferson Guarino og Ólafur Ægir Ólafsson skoruðu síðan allir þrjú mörk. Aron Rafn Eðvarðsson varði átta skot í kvöld eða fimmtíu prósent skotanna sem komu á hann.

Andri Þór Helgason var markahæstur hjá HJK með fjögur mörk en þeir Kári Tómas Hauksson, Bjarki Freyr Sindrason og Gunnar Dan Hlynsson skoruðu allir þrjú mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×