Flutti kókaínið og ketamínið innvortis og í fatnaði Atli Ísleifsson skrifar 1. mars 2024 07:50 Konan kom til landsins með flugi frá Amsterdam í Hollandi í desember síðastliðinn. Vísir/Vilhelm Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt konu í fjórtán mánaða fangelsi fyrir að hafa reynt að smygla umtalsverðu magni af kókaíni og ketamíni til landsins.
Konan var ákærð fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot, en hún flutti efnin til landsins með flugi frá Amsterdam í Hollandi í desember síðastliðinn. Var um að ræða tæp 300 grömm af kókaíni og rúm 600 grömm af ketamíni sem hún hafði falið innvortis og í fatnaði sem hún klæddist. Konan játaði brot sitt afdráttarlaust fyrir dómi. Í dómi kemur fram að af fyrirliggjandi gögnum verði ekki ráðið að konan hafi verið eigandi efnanna eða tekið þátt í skipulagningu á kaupum og innflutningi þeirra til Íslands. Hennar hlutverk hafi einvörðungu verið fólgið í því að koma efnunum hingað til lands og fá þau öðrum í hendur. Við ákvörðun refsingar var litið til þessa og sömuleiðis að hún hafi verið samvinnufús við rannsókn málsins og gert sér far um að upplýsa um aðild annarra að málinu. Mat dómari í málinu hæfilega refsingu vera fjórtán mánaða fangelsi, en til frádráttar kemur gæsluvarðhald sem hún hafði setið í frá komunni til landsins. Konunni var jafnframt gert að greiða þóknun og önnur gjöld til skipaðs verjanda, auk sakarkostnað, samtals rúmar tvær milljónir króna.
Dómsmál Fíkniefnabrot Mest lesið Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Kornabarn reyndist á lífi í líkhúsi Erlent Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Innlent „Ef það gerist aftur mun þetta versna til muna!“ Erlent Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Innlent Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Innlent Ætla aftur að mála regnbogafánann Innlent Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Innlent Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Innlent Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Innlent Fleiri fréttir Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Ætla aftur að mála regnbogafánann Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Jón Ingvar vildi níutíu milljónir en fær ekki krónu Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Ríkisútvarpið braut ekki gegn siðareglum Trump, hóteldeilur og VestFest í kvöldfréttum Evrópusambandið sé verkfæri til að ná stöðugleika Stjórnandi drónans taldi sér ógnað og byssumaðurinn dæmdur Aukin framlög til varnarmála og öflugur stuðningur við Úkraínu á leiðtogafundi NATO Talið að tveir hafi staðið að meintum hatursglæp Gæsluvarðhald framlengt í Straumsvíkurmálinu Lögreglan leitar þessara manna Ísland skari fram úr ESB á flestum mælikvörðum Rannsaka málið sem hatursglæp Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Eldsvoði á Siglufirði nam þriðjungi bættra tjóna Ekki jákvætt þegar lögregla tekur af manni launin Fara áfram fram á varðhald yfir öllum níu Fær mál vegna sáðláts í andlit ekki tekið upp á ný Raforkueftirlitið fylgist með að lægri raforkukostnaður skili sér til neytenda Spenna á ráðstefnu NATO, raforkukostnaður og biskup um regnbogafánann „Líkist meira fána Grænhöfðaeyja heldur en þeim íslenska“ Lokuð akrein á Suðurlandsvegi og kvikmyndatökur á Krýsuvíkurleið Ummæli Trump um Grænland þurfi ekki að koma á óvart Skemmdarvargar máluðu yfir regnbogafánann Bjóða 250 þúsund krónur fyrir staðsetningu hvalveiðiskipanna Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Hættuástand skapist eftir fráhvarf 3G Sjá meira