Red Bull gaf það út á miðvikudag að rannsókn á óviðeigandi hegðun hans í garð samstarfskonu hjá Red Bull væri lokið og Horner hefði verið hreinsaður af öllum ásökunum.
Red Bull gaf það ekki út opinberlega hvað Horner var sakaður um að hafa gert eða sagt, einungis kom fram að samstarfskona ásakaði hann um óviðeigandi hegðun. Upplýsingar sem láku úr herbúðum Red Bull sögðu málið snúast um „stjórnsemi“ og „valdbeitingu“.
Aðeins um sólarhring síðar, á fimmtudag, láku á netið smáskilaboð og myndsendingar, kynferðislegar í eðli, sem Horner hafði sent samstarfskonunni.
Skilaboðunum var lekið með nafnlausum tölvupósti til fjölmiðla og fjölda aðila innan Formúlu 1 og Alþjóðaakstursíþróttasambandsins. Þau bárust til Mohammed Ben Sulayem, forseta FIA, sem sagði þetta „skaða íþróttina auk þess að vera skaðlegt frá mannlegu sjónarmiði“.
Horner hefur sjálfur neitað öllum ásökunum og ekki tjáð sig frekar. Toto Wolff og Zak Brown hjá Mercedes og McLaren hafa kallað eftir auknu gagnsæi og óskað eftir því að Red Bull opinberi rannsókn sína.
Greint hefur verið frá því að Geri Halliwell, fyrrum kryddpía og eiginkona Horner, hyggist skilja við eiginmann sinn.
Enn er óljóst hvað verður um Horner, hjónaband hans og hvort hann haldi stöðu sinni hjá Red Bull.
FIA og Formúla 1 munu nú sjálf rannsaka málið, finnist hann brotlegur verður Horner að öllum líkindum vikið úr starfi og bannað að starfa fyrir önnur aðildarfélög FIA.
Red Bull bílarnir bruna af stað í Barein, fyrsta kappakstri tímabilsins í Formúlu 1. Sýnt verður frá keppninni í beinni útsendingu á Vodafone Sport klukkan 14:30.