Erlent

Fjögur börn og tveir full­orðnir skotnir til bana í Kanada

Samúel Karl Ólason skrifar
Sex voru skotnir til bana í úthverfi Ottawa í Kanada í gær.
Sex voru skotnir til bana í úthverfi Ottawa í Kanada í gær. AP/Patrick Doyle

Sex manns, fjögur börn og tveir fullorðnir, voru skotnir til bana á heimili í úthverfi Ottawa í Kanada í gærkvöldi. Einn til viðbótar er særður og búið er að handtaka einn karlmann vegna atviksins. Hann er sagður hafa verið handtekinn á vettvangi.

Hinn særði er sagður alvarlega særður en ekki í lífshættu.

Ríkisútvarp Kanada hefur eftir lögreglustjóranum í Ottawa að málið sé ekki talið tengjast heimilisofbeldi og segir lögreglan að hættan sé yfirstaðin. Hann vildi annars ekkert segja um möguleg tengsl mannsins sem hefur verið handtekinn og hinna látnu.

Skömmu fyrir klukkan ellefu í gærkvöldi bárust tilkynningar til neyðarlínunnar í Kanada og var kallað eftir aðstoð til húss við Berrigan Drive í Barahaven og þegar viðbragðsaðila bar að garði tók við þeim ófögur sýn.

Lögreglan hefur að öðru leyti lítið gefið út um málið og segir frekari upplýsinga að vænta í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×