Refsing Vilhjálms þyngd fyrir að nauðga og svipta vændiskonu frelsi Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 8. mars 2024 15:02 Vilhjálmur Freyr hlaut fjögurra ára fangelsisdóm fyrir margvíslegt ofbeldi í héraði. Dómurinn var þyngdur um hálft ár í Landsrétti. Omega Vilhjálmur Freyr Björnsson þrítugur karlmaður hefur verið dæmdur í fjögurra og hálfs árs fangelsi fyrir nauðgun, kaup á vændi, sérlega hættulega líkamsárás og frelsissviptingu í kjallara húss í Reykjavík í apríl 2021. Karlmaðurinn braut bein í andliti konu sem hafði selt honum vændisþjónustu í klukkustund.
Dómur var kveðinn upp í Landsrétti í dag sem þyngdi refsingu Vilhjálms Freys úr héraði um hálft ár. Málið vakti töluverða athygli þar sem nafn Vilhjálms Freyr var fyrir mistök ekki birt þegar dómurinn var í fyrstu birtur í héraði. Það var þó leiðrétt. Þá bendir allt til þess að fregnir af ofbeldi Vilhjálms Freys hafi leitt til útbreiddrar slúðursögu um Sölva Tryggvason sem var upphafið að umtöluðum hlaðvarpsþætti. Í framhaldinu kærðu þrjár konur hann til lögreglu. Kærurnar voru allar felldar niður. Ástæða er til að vara lesendur við lýsingum úr héraðsdómi hér að neðan. Öskraði en enginn heyrði til hennar Konan lagði þann 19. apríl 2021 fram kæru á hendur Vilhjálmi Freyr. Hún útskýrði að hún starfaði sem vændiskona og færi heim til viðskiptavina sinna. Karlmaður hefði hringt í hana, lagt tíu þúsund krónur inn á hana fyrir leigubíl og svo fjörutíu þúsund til viðbótar fyrir klukkustundarþjónustu. Hún hefði veitt Vilhjálmi þjónustu í klukkustund en eftir fimmtíu mínútur hefði hann fengið sáðlát. Hann hefði svo krafið konuna um endurgreiðslu en hún logið því að peningarnir hefðu farið á reikning vinkonu sem hún hefði ekki aðgang að. Hún gæti útvegað peningana daginn eftir. Vilhjálmur hefði ekki trúað henni heldur barið hana og tekið af henni símann. Hún taldi hann hafa ætlað að drepa hana, tekið ítrekað um háls hennar með báðum höndum og voru áverkar á hálsi til merkis um það. Í eitt skiptið hefði takið varað í eina til fimm mínútur og hún talið að sekúndu hefði munað að hún hefði dáið. Hún hefði ekki misst meðvitund en verið við það og ekki getað andað. Hún hefði öskrað hátt en það ekki orðið til neins. Enginn hefði heyrt í henni. Fann mikinn sársauka í endaþarmi Konan lýsti miklum stærðar- og þyngdarmun á þeim Vilhjálmi. Hann hefði tekið af henni símann, komist inn í hann og reynt að millifæra peningana til baka en hún logið að hún vissi ekki leyninúmerið til millifærslu. Hann hefði þá slegið hana ítrekað með krepptum hnefa. Hann hefði misst alla stjórn. Í eitt skiptið hefði það verið mjög sársaukafullt, vinstra megin í andliti sem hefði dregið úr henni allan mátt. Þá átti eftir að koma í ljós að bein hafði brotnað í andliti hennar. Eftir það hefði hann nauðgað henni í endaþarm og leggöng. Hún hefði fundið fyrir miklum sársauka en ekki haft orku til að gera neitt. Þá hefði hann ekki leyft henni að fara út. Hún hefði þurft að pissa í fötu á gólfinu því hann hefði ekki hleypt henni á klósett á ganginum. Þá hefði hann látið hana veita sér munnmök og sleikja rassinn á honum þess á milli. Hún hefði gert allt það sem hann hefði sagt henni að gera. Lota eftir lotu Konan upplifði að Vilhjálmur hefði viljað láta hana þjást. Það hefði gert hann mjög graðan og hann notið þess að kvelja hana. Samræði um endaþarm hefði verið sérstaklega sárt. Þá hefði hann kyrkt hana þrisvar. Nóttin hefði öll verið eins, hann hefði ýmist verið að beita hana kynferðisofbeldi eða lemja hana og þess á milli hefðu þau talað saman og hann þá verið að biðja hana um að millifæra peningana. Hefðu þetta verið þrjár eða fjórar lotur. Hann hefði verið með símann hennar allan tímann og hefði vitað PIN-númer hennar án þess að hún vissi hvernig. Þá hafði hann alltaf beðið hana um leyninúmerið til að millifæra peninga áður en hann barði hana. Leigubílstjóranum brá Konan mætti til Vilhjálms um hálf þrjú að nóttu til. Um sexleytið hefði hann sagt henni að hringja í vinkonuna og láta hana millifæra. Hún hefði hringt í sjálfa sig og spunnið þá niðurstöðu að hún fengi peningana hjá vinkonu sinni og myndi afhenda honum. Hann hafi ekki viljað leyfa henni að fara án símans en gefið eftir á endanum því hún þyrfti símann til að fá peningana aftur. Konan kvaðst hafa verið edrú um nóttina en Vilhjálmur neitt fíkniefna og bjór hefði verið úti um allt herbergi. Ofbeldið hefði ekki hafist fyrr en að lokinni kynlífsþjónustunni. Hann hefði þó verið mjög árásargjarn meðan á þjónustunni stóð og hún beðið hann um að vera blíðari. Ofbeldið hafi hafist eftir að hann vildi fá endurgreiðslu. Konan sagðist hafa hringt á leigubíl eftir að hún komst út. Á meðan hún beið hefði Vilhjálmur komið út að athuga hvað hún væri að gera. Hún hefði sýnt honum staðfestingu á að hún hefði hringt í leigubíl. Hann hefði þá farið. Hann hefði sagt henni að það væri allt í lagi með andlit hennar en hún hefði ekki haft tök á að skoða það í spegli. Leigubílstjórinn spurði um leið og hún settist í bílinn hvað hefði komið fyrir hana. Ók hann konunni fyrst heim til sín þar sem þau reyndu að finna út hver árásarmaðurinn væri. Fundu þau myndir af honum á Facebook. Þaðan lá leiðin á lögreglustöðina, sem reyndist lokuð, og svo á slysadeild. Fjöldi áverka tilgreindur í ákæru Vilhjálmur var ákærður fyrir nauðgun, kaup á vændi, sérstaklega hættulega líkamsárás og frelsissviptingu, með því að hafa umrædda nótt greitt konu fyrir vændi, og eftir að kynlífsþjónustunni lauk varnað henni útgöngu úr herberginu og svipt hana frelsi sínu í að minnsta kosti þrjár klukkustundir. „Á þeim tíma þvingaði ákærði hana endurtekið, án samþykkis, til samræðis, endaþarmsmaka, munnmaka og til að sleikja á honum endaþarminn, með því að beita hana ofbeldi og ólögmætri nauðung. Ákærði tók hana að minnsta kosti tvisvar sinnum hálstaki og sló hana endurtekið í andlit og búk með þeim afleiðingum að konan hlaut brot á augntóttargólfi og á vanga-og kinnkjálkabeinum vinstra megin. Auk þess mar í andliti, á hálsi og á vinstri upphandlegg, húðblæðingar á hálsi og punktblæðingar í andliti og í slímhúðum augna og í munnslímhúð, og yfirborðsáverka í andliti og á búk,“ segir í ákæru. Tak sem truflaði blóðflæði til heila Vilhjálmur játaði fyrir dómi að að hafa greitt fyrir vændi, að hafa tekið hana hálstaki einu sinni og að hafa slegið hana einu sinni eða tvisvar í andlitið með handarbaki. Krafðist hann sýknu að öðru leyti því annað sem konan héldi fram væri ósannað. Hann sagði að eftir kynlífsþjónustuna hefði farið að renna af honum og hann áttað sig á því að kona hans myndi komast að því að hann hefði eytt síðustu peningunum og haldið fram hjá henni. Hann hefði óttast að missa fjölskylduna, orðið svakalega reiður og hræddur. Því hefði hann ætla að reyna að fá brotaþola til að endurgreiða honum. Í niðurstöðu héraðsdóms kemur fram að framburður mannsins hafi að mörgu leyti verið ótrúverðugur og ekki samræmst öðrum hlutum sem komið hefðu fram í málinu. Læknir sem bar vitni fyrir dómi taldi töluvert afl hafa þurft að valda brotum á andlitsbeinum, ekki eitt til tvö högg með handarbaki. Taldi dómurinn ljóst að Vilhjálmur hefði slegið konuna að minnsta kosti tvisvar sinnum í andlitið og sömuleiðis í búk. Réttarmeinafræðingur taldi einnig að áverka á hálsi bentu eindregið til þess að konan hefði verið tekin hálstaki, að minnsta kosti einu sinni og jafnvel tvisvar. Af framburði réttarmeinafræðingsins mátti ráða að takið hefði truflað blóðflæði til heilans og áverkar verið töluverðir. Ekki væri hægt að fullyrða hvort takið hefði verið lífshótandi. Ótrúverðugt að hann hefði ekkert pissað Konan lýsti því í skýrslutöku að Vilhjálmur hefði tekið hana tvisvar til þrisvar hálstaki. Fyrir dómi sagði hún það hafa verið tíu til tuttugu sinnum. Karlmaðurinn játaði að hafa gert það einu sinni og taldist sannað að hann hefði gert það einu sinni. Það hefði verið sérstaklega hættulegt og var hann því sakfelldur fyrir líkamsárás eins og sagði í ákæru nema að um eitt hálstak hefði verið að ræða. Þá taldi dómurinn líka hafið yfir skynsamlegan vafa að Vilhjálmur hefði svipt konuna frelsi sínu í þrjár klukkustundir. Leit dómurinn til þess að þvag fannst í ruslafötu sem karlmaðurinn sagði konuna hafa pissað í að eigin frumkvæði. Sjálfur hefði hann ekkert þurft að fara á klósettið. Taldi dómurinn afar ótrúverðugt að Vilhjálmur hefði ekki kastað af sér vatni þennan tíma, miðað við að hafa tekið spítt og drukkið áfengi. Þá hefði ákærðir viðurkennt að hafa haldið síma konunnar á meðan hann krafðist endurgreiðslu. Sýknaður af endurteknum kynferðisbrotum Þá neitaði Vilhjálmur því alfarið að hafa haft kynmök við konuna að þjónustu lokinni. Konan lýsti endurteknu samræði um leggöng og endaþarm auk munnmaka. Í skýrslutöku lýsti hún því að hafa verið látin sleikja endaþarm mannsins en minntist þess þó ekki fyrir dómi. Hún lýsti ítrekuðum sársaukamiklum endaþarmsmökum fyrir dómi. Taldi dómurinn ekki sannað svo hafið væri yfir skynsamlegan vafa að Vilhjálmur hefði þvingað konuna endurtekið til samræðis um leggöng, til að hafa við hann munnmök og til að sleikja á honum endaþarminn, eins og lýst var í ákæru. Var hann sýknaður af þeim brotum. Dómurinn taldi þó sannað að Vilhjálmur hefði þvingað konuna til samræðis með ofbeldi og ólögmætri nauðung, án samþykkis. Hann hefði þó þegar verið búinn að brjóta bein í andliti hennar, krafið hana um endurgreiðslu, tekið af henni símann og verið í yfirburðastöðu vegna líkamlegra burða. Fjögurra ára fangelsi Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi Vilhjálmur í fjögurra ára fangelsi. Frá refsingunni dróst nokkurra daga gæsluvarðhald frá handtöku í apríl 2021. Í niðurstöðu dómsins var litið til þess að atlaga mannsins hefði verið ofsafengin og gróf. Hann hefði valdið alvarlegum áverkum og brotið gegn kynfrelsi og trúnaði sem konan sýndi með komu sinni. Mætti telja mildi að ekki urðu enn alvarlegri afleiðingar fyrir konuna. Vilhjálmur hefði framið brot sín af eigingjörnum hvötum og skeytt engu um heilsu og velferð brotaþola. Ásetningur hafi verið sterkur og frelsissvipting varað í um þrjár klukkustundir. Á þeim tíma hafi hann beitt konuna bæði líkamlegu og kynferðislegu ofbeldi. Landsréttur þyngdi dóminn í fjögurra og hálfs árs fangelsi sem fyrr segir. Viðtal um atburðina á Omega Í sama mánuði og Vilhjálmur framdi umrætt brot veitti hann viðtal í þættinum Dýrðar Frelsi Guðs: Hefur Guð bjargað þér? á sjónvarpsstöðinni Omega. „Við erum með góðan gest í kvöld, maður sem hefur svolítið farið út af brautinni en komið inn á hana aftur, en svo farið út af henni og inn á hana aftur. Þetta er búið að vera svolítið ströggl hjá honum. Maður hefur verið að fylgjast með honum og stundum hefut maður brosað yfir því hve vel gengur hjá honum, en svo er hann dottinn út af brautinni aftur,“ sagði þáttastjórnandinn Magnús Sigurðsson í upphafi þáttar. Vilhjálmur Freyr kvaðst vera fæddur og uppalinn á Akranesi á ástríku heimili með foreldrum sínum og fjórum systkinum. Þar hefði verið gott að alast upp á tíunda áratugnum, þegar enginn læsti heimili sínu og engir glæpir voru framdir. Fljótlega hefði farið að halla undan fæti hjá honum og hann farið að fremja smáglæpi þegar hann var unglingur. Snemma hafi hann svo leiðst í neyslu áfengis og annarra vímuefna. Leigði kjallaraíbúðina af systur sinni Vilhjálmur Freyr sagðist hafa farið í sex mánaða meðferð í Svíþjóð eftir að hann hafði verið farinn að neyta harðra fíkniefna um æð. Þegar heim var komið úr meðferðinni hafi hann leigt herbergi af systur sinni í kjallaranum í Breiðholti, þar sem hann framdi brotin, á meðan verið væri að standsetja íbúð fjölskyldu hans. Vilhjálmur Freyr á eiginkonu og tvö börn. „Ég var einmana þetta kvöld, ég man eftir því, og Covid var þarna nýbyrjað. Ég fer út í Iceland þarna í Breiðholtinu og ég kaupi mér þrjá sprittbrúsa og ég drekk þá. Og það kvöld, þá framdi ég ljótasta hlut sem ég hef gert. Ég beitti ofbeldi sem varð til þess að ég varð síðan handtekinn,“ sagði Vilhjálmur Freyr en ræddi ofbeldið ekkert frekar. Hann sagðist þá hafa ákveðið að hefja kannabisreykingar í stað þess að neyta annarra vímuefna. „Af því að ég vissi að þá væri ég ekki að gera þessa skandala,“ sagði hann.
Kynferðisofbeldi Dómsmál Tengdar fréttir Þrjú mál á hendur Sölva felld niður Lögregla hefur hætt rannsókn í þremur málum sem jafnmargar konur höfðuðu gegn fjölmiðlamanninum Sölva Tryggvasyni og sökuðu um ofbeldi. Tvö og hálft ár er liðið síðan hann fór í umtalað viðtal í eigin hlaðvarpsþætti eftir útbreidda slúðursögu um að hafa gengið í skrokk á vændiskonu. Sagan átti ekki við rök að styðjast. 3. október 2023 07:01 Vilhjálmur Freyr steig fram á Omega: „Ég var einmana þetta kvöld“ Vilhjálmur Freyr Björnsson, maðurinn sem var í desember dæmdur fyrir margvísleg brot gegn konu sem hann hafði greitt fyrir vændi, var til viðtals á kristilegu sjónvarpsstöðinni Omega í apríl síðastliðnum. Hann kveðst hafa verið einmana umrætt kvöld og búinn að drekka þrjá sprittbrúsa þegar hann braut á konunni. 7. janúar 2023 10:38 Fjölskyldumaður hélt vændiskonu í gíslingu og nauðgaði í kjallara í Reykjavík Fjölskyldumaður nokkur hefur verið dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir nauðgun, kaup á vændi, sérlega hættulega líkamsárás og frelsissviptingu í kjallara húss í Reykjavík í apríl í fyrra. Karlmaðurinn braut bein í andliti konu sem hafði selt honum vændisþjónustu í klukkustund. Hann þarf að greiða henni þrjár milljónir króna í miskabætur. 23. desember 2022 13:12 Nafngreindi manninn sem hélt vændiskonu og nauðgaði Héraðsdómur Reykjavíkur birti nafn manns sem var dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir að nauðga vændiskonu og halda henni í gíslingu í dag. Nafn mannsins var upphaflega afmáð úr dómnum en dómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu að rétt væri að birta það samkvæmt reglum. 6. janúar 2023 13:23 Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Vaktin: Totur farnar að teygja sig til norðurs Innlent Eldri maður á gamalli Corollu ógnaði ekki lífi hjóna á nýjum Ram Innlent Sigmundur hafi viljað í kennslustund með nemendum Innlent Hörð viðbrögð við vaxtahækkunum Innlent Segir íbúafundinn ekki hafa verið nægilega upplýsandi Innlent „Allt athafnasvæði Bláa lónsins er innan varnargarða“ Innlent Með hundruð kílóa af þýfi heima hjá sér Innlent Ákærður fyrir að nauðga og myrða þrettán ára stúlku Erlent Boða verkföll í tíu leikskólum í desember Innlent Fleiri fréttir Ætla að opna Bláa lónið 29. nóvember Rafmagnsmastur í hættu vegna hraunflæðis Segist svikin af Viðreisn og segir sig úr flokknum Tilbúin að aflýsa verkföllum í fjórum leikskólum Hörð viðbrögð við vaxtahækkunum Boða verkföll í tíu leikskólum í desember Í beinni frá gosstöðvum, undrun á vegferð seðlabankans og lokasprettur Atburðarás gærdagsins í myndum Eldri maður á gamalli Corollu ógnaði ekki lífi hjóna á nýjum Ram Virkni í þremur gígum og mest í miðjunni Mikill meirihluti vill ekki sjá sjókvíaeldi í Seyðisfirði Segir íbúafundinn ekki hafa verið nægilega upplýsandi FA klagar Willum Þór til umboðsmanns Með hundruð kílóa af þýfi heima hjá sér Bílar og byggingariðnaður losar mest í Reykjavík „Allt athafnasvæði Bláa lónsins er innan varnargarða“ Rokk og ról í Rockville holunni frestast fram í janúar Framsókn með þriggja prósenta fylgi í borginni Gist í um tuttugu húsum í Grindavík Njarðvíkuræðin heldur sem stendur og vaxtakjörin útskýrð á mannamáli Útkall vegna reyks við Borgarholtsbraut Ekki þörf enn á að stækka varnargarða við Bláa lónið Bein útsending: Heilbrigðisstarfsfólk grillar frambjóðendur Meirihluti styður verkfallsaðgerðir kennara Jafnast ekki út að vera með annan fótinn í hrauni og hinn í ís Stöðug virkni í nótt og og litlar breytingar Hótaði heimilismönnum með skærum Sigmundur hafi viljað í kennslustund með nemendum Gætu kosið strategískt þegar svo margir flokkar eru á mörkunum Funda áfram hjá sáttasemjara á morgun Sjá meira
Þrjú mál á hendur Sölva felld niður Lögregla hefur hætt rannsókn í þremur málum sem jafnmargar konur höfðuðu gegn fjölmiðlamanninum Sölva Tryggvasyni og sökuðu um ofbeldi. Tvö og hálft ár er liðið síðan hann fór í umtalað viðtal í eigin hlaðvarpsþætti eftir útbreidda slúðursögu um að hafa gengið í skrokk á vændiskonu. Sagan átti ekki við rök að styðjast. 3. október 2023 07:01
Vilhjálmur Freyr steig fram á Omega: „Ég var einmana þetta kvöld“ Vilhjálmur Freyr Björnsson, maðurinn sem var í desember dæmdur fyrir margvísleg brot gegn konu sem hann hafði greitt fyrir vændi, var til viðtals á kristilegu sjónvarpsstöðinni Omega í apríl síðastliðnum. Hann kveðst hafa verið einmana umrætt kvöld og búinn að drekka þrjá sprittbrúsa þegar hann braut á konunni. 7. janúar 2023 10:38
Fjölskyldumaður hélt vændiskonu í gíslingu og nauðgaði í kjallara í Reykjavík Fjölskyldumaður nokkur hefur verið dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir nauðgun, kaup á vændi, sérlega hættulega líkamsárás og frelsissviptingu í kjallara húss í Reykjavík í apríl í fyrra. Karlmaðurinn braut bein í andliti konu sem hafði selt honum vændisþjónustu í klukkustund. Hann þarf að greiða henni þrjár milljónir króna í miskabætur. 23. desember 2022 13:12
Nafngreindi manninn sem hélt vændiskonu og nauðgaði Héraðsdómur Reykjavíkur birti nafn manns sem var dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir að nauðga vændiskonu og halda henni í gíslingu í dag. Nafn mannsins var upphaflega afmáð úr dómnum en dómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu að rétt væri að birta það samkvæmt reglum. 6. janúar 2023 13:23