Benedikt spilaði sig inn í landsliðið í bikarúrslitaleiknum: Tvær breytingar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. mars 2024 13:33 Benedikt Gunnar Óskarsson fór á kostum í Laugardalshöllinni í gær. Vísir/Diego Valsmaðurinn Benedikt Gunnar Óskarsson fær ekki langan tíma til að fagna bikarmeistaratitlinum með Hlíðarendafélaginu því strákurinn er á leiðinni út með íslenska landsliðinu.
Landsliðsþjálfarinn Snorri Steinn Guðjónsson hefur þurft að gera tvær breytingar til viðbótar á landsliðshóp sínum sem er á leiðinni á morgun til Grikklands. Íslenska liðið spilar þar tvo æfingarleiki við heimamenn í undirbúningi sínum fyrir undankeppni EM: Benedikt Gunnar Óskarsson hjá Val og Andri Rúnarsson hjá Leipzig koma nú inn í hóp Snorra vegna forfalla. Benedikt Gunnar skoraði sautján mörk í bikarúrslitaleiknum í gær og setti nýtt markamet. Ástæða breytinganna er þó að Þorsteinn Leó Gunnarsson úr Aftureldingu og Gísli Þorgeir Kristjánsson úr SC Magdeburg þurftu báðir að draga sig út úr leikmannahópnum. Áður hafði markvörðurinn Viktor Gísli Hallgrímsson dregið sig út úr hópnum vegna meiðsla. Þegar hópurinn var valinn þá kom fram að Kristján Örn Kristjánsson sé frá vegna meiðsla og að Snorri Steinn hafi ákveðið að gefa Bjarki Már Elíssyni og Aron Pálmarssyni frí í þessu verkefni landsliðsins. Snorri Steinn Guðjónsson, hefur gert eina breytingu á A landsliði karla sem heldur á morgun til Grikklands. Þorsteinn Leó Gunnarsson og Gísli Þorgeir Kristjánsson, hafa dregið út úr leikmannahópnum og koma í þeirra stað þeir Benedikt Gunnar Óskarsson og Andri Rúnarsson. pic.twitter.com/1WGex1TViA— HSÍ (@HSI_Iceland) March 10, 2024
Landslið karla í handbolta Mest lesið Konurnar aftur fleiri og sex fædd eftir 2000: Topp tíu listinn í ár Sport Martröð hjá Manchester United í leikhúsi draumanna Enski boltinn Útsalah á mörkum í Lundúnum Enski boltinn Luke Littler grét eftir leik Sport Látnir æfa á jóladag Enski boltinn Skallaði þjálfara andstæðinganna eftir leik Fótbolti Jackson komst upp fyrir Eið Smára Enski boltinn Rashford á lausu yfir jólin Fótbolti Óvænt úrslit á HM í pílu í kvöld Sport Everton hjálpaði sér og nágrönnunum í Liverpool Enski boltinn Fleiri fréttir Stórsigur í toppslag og Melsungen með fjögurra stiga forystu Gísli fyrr heim í frí eftir árásina í Magdeburg Viktor Gísli góður þegar Wisla Plock fór á toppinn Negla Elínar Klöru eitt af flottustu mörkum EM Kolstad vann toppslaginn Dana áberandi í síðasta leik ársins Leik Gísla og félaga í Magdeburg frestað vegna árásarinnar Rosalegur hæðarmunur á liðsfélögum íslensku strákanna Lærisveinar Guðmundar fara í frí með góðan sigur að baki Arnór frá Gumma til Arnórs Ósáttir Harðarmenn stofnuðu kröfu í heimabanka dómara Staðfesta 10-0 sigur ÍBV gegn Haukum Íslendingaliðið heldur áfram í undanúrslit Lærisveinar Guðjóns Vals úr leik í bikarkeppninni „Jólin eru ekki alveg eins afslöppuð“ Þyrfti kraftaverk til að Ómar yrði með á HM Þetta eru strákarnir sem spila fyrir Ísland á HM Snorri kynnti HM-hóp Íslands Lofaði konunni að flytja ekki til Íslands Framarar slógu út bikarmeistarana Afturelding í bikarúrslitin Dana Björg næstmarkahæst í sigri í toppslag Þórir gæti orðið þjálfari ársins í tveimur löndum „Ég er bara búinn að vera að jafna mig“ Stelpurnar hans Þóris tryggðu sér tvær milljónir hver Kvaddi á sama tíma og Þórir en sagði liðsfélögunum ekki frá því Guðmundur Bragi og félagar verða með á bikarúrslitahelginni Stjörnumenn fyrstir í bikarúrslitin Lærisveinar Gumma Gumm úr leik í bikarnum Bræðurnir góðir en Kolstad saknaði Sigvalda í tapi í Íslendingaslag Sjá meira