Grunur um byrlun? Artasan 12. mars 2024 11:31 CYD drykkjarprófin eru notuð til að athuga hvort að byrlunarefni hafi verið sett út í drykki. Einn dropi úr drykk er settur á prófið og liturinn segir til um hvort að drykkurinn sé öruggur eða ekki. CYD drykkjarprófin eru komin í sölu í apótekum, á bensínstöðvum og fást fljótlega á fleiri stöðum. Fyrirtækið Varlega sérhæfir sig í innflutningi og sölu á vímuefnaprófum til einkanota. Þeim er ekki ætlað til að prófa fyrir um hvort einstaklingur hafi notað vímuefni heldur skima fyrir virkum efnum eða íblöndunarefnum auk þess sem boðið er upp á próf í nokkrum tilfellum sem mæla styrkleika efna. „
Varlega varð til þegar ég og Andri Einarsson, meðstofnandi minn, unnum saman í Gistiskýlinu á Grandagarði. Við vorum vaktfélagar þar og mótuðum saman hugmyndina og hrintum henni í framkvæmd,“ segir Kristinn Ingvarsson, annar eigenda Varlega. „Vímuefnapróf til einkanota hafa þekkst lengi víða um heim og við vorum einfaldlega þeirrar skoðunar að það væri kominn tími til að bjóða upp á þetta öryggisskref á íslenskum markaði.“ Kristinn Ingvarsson er annar eigenda Varlega. Vímuefnapróf eru sannreynd leið að hans sögn til að minnka skaðlegar afleiðingar vímuefnanotkunar eins og ofskammtanir eða neikvæðar aukaverkanir. „Okkar helsta markmið er að færa fólki þann möguleika að taka lítið viðbótar öryggisskref og vera þannig betur í stakk búið til að taka upplýsta ákvörðun um hvort það vilji yfir höfuð innbyrða tiltekin vímuefni eða þá í hvaða magni. Einnig er það markmið okkar að „normalæsa“ vímuefnaprófun, að fólk hugsi það sem sjálfgefið skref ef um er að ræða vímuefni af svörtum markaði.“ Nýlega hóf Varlega sölu á CYD drykkjarprófinu frá Artasan og hafa viðtökurnar verið mjög jákvæðar að hans sögn. „Við sjálfir og viðskiptavinir okkar erum sammála um að drykkjarprófin séu hin fullkomna viðbót við vöruúrval okkar þar sem við viljum jú bjóða fólki að auka eigið öryggi og annarra á skemmtanalífinu.“ Raunin er því miður sú að byrlun í drykki er allt of algeng. „Ég treysti mér til að fullyrða að flestir þekki til einhvers sem hefur lent í slíku á djamminu. Ég tel það geta skipt sköpum að fólk þekki einkenni byrlunar og hafi þann kost að athuga málið um leið og grunur kviknar.“ CYD drykkjarprófin eru notuð til að athuga hvort að byrlunarefni hafi verið sett út í drykki útskýrir Katrín Pétursdóttir, markaðsstjóri Artasan, sem flytur prófin inn. „Einn dropi úr drykk er settur á prófið og liturinn segir til um hvort að drykkurinn sé öruggur eða ekki. Prófið greinir efni á við GHB og ketamín. Sumir drykkir geta veitt rangar jákvæðar niðurstöður, t.d. þeir sem eru rauðir að lit en ekki má setja prófið sjálft í drykkinn.“ Katrín Pétursdóttir er markaðsstjóri Artasan. Einkenni byrlunar geta verið mismunandi eftir því hvaða lyf er um að ræða en þau geta verið eftirfarandi: Skyndilegt og mikið ölvunarástand Svimi Ógleði og uppköst Óskýrt tal Máttleysi í útlimum Ringlun Skert meðvitund Minnisleysi CYD drykkjarprófin eru komin í sölu í apótek, bensínstöðvar og eru á leiðinni inn á fleiri staði að hennar sögn. „Ég ráðlegg þeim sem ætla út á lífið að hafa með sér drykkjarpróf og prufa drykkinn ef minnsti grunur vaknar um að búið sé að setja byrlunarefni út í hann. Prófin eru fyrirferðarlítil og því auðvelt að hafa þau með sér í veskinu eða vasanum.“ Hvort sem um er að ræða byrlanir í drykki eða dauðsföll af völdum ofskömmtunar er tölfræðin fyrir hvort tveggja hér á landi að sögn Kristins mjög sláandi undanfarin ár. „Við trúum því, og vonum innilega, að áherslan verði í ríkari mæli lögð á að auka öryggi fólks frekar en að halda þessum málefnum í skugganum og láta eins og við sjáum ekki. Það hljóta flestir að sammælast á endanum um að það sé hið rétta í stöðunni.“
Heilsa Mest lesið „Þú getur ekki ráðist að mér þegar ég er að borða með ömmu minni“ Tónlist Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Lífið Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Lífið Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Lífið Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Lífið Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Lífið „Ég sef í gallabuxum“ Tíska og hönnun Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Lífið Ágústa Eva setur 170 milljónir á einbýlishúsið í Hveragerði Lífið Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Lífið Fleiri fréttir Sumarbókaveisla á Bylgjunni: Kemur alltaf gott samtal út frá bókum Topptjöldum fylgir nýtt frelsi á ferðalögum Bylgjulestin leggur af stað inn í sumarið Endurvekja límmiðaleik Bylgjunnar Celebrating George Michael kemur til Íslands Ormsson með sjónvarpsmarkað í beinni útsendingu í kvöld Útivistarfatnaðurinn sem gerir íslenska sumarið betra Díllinn er nýtt app þar sem notendur finna bestu dílana Fiskikóngurinn fagnar stækkun með glæsilegri opnunarhátíð Heather Mills heldur fyrirlestur í Hagkaup Stórkostleg stemning á glæsilegri forsýningu Star Wars Hugarafl skilar nærri hálfum milljarði í samfélagslegan ávinning Svona færðu pallinn í toppstand fyrir sumarið Fulleldað sous vide lambakjöt er spennandi nýjung frá Kjarnafæði Sumir sofa eins og englar – gæti sængin verið leynivopnið? Næsta kynslóð sólarvarna fyrir andlit Einn stærsti rafbílaviðburður sumarsins Sumarveisla hjá Toyota í Kauptúni á laugardag Moroccanoil sér um glamúrinn á Eurovision Stuðningur sem skiptir raunverulega máli Betri svefngæði með bambus Meltingin eins og klukka og brennslan kikkaði í gang Hinn goðsagnakenndi óperusöngvari Sir Bryn Terfel kemur til Íslands Sjálfbær þróun kaupmannsins á horninu Bílahátíð ársins á Kletthálsi: Ofurtilboð í þrjá daga Þetta hefur gefið mér nýtt líf Sjá meira