Samfélagsmiðlastjörnur og skákgoðsagnir á Reykjavíkurskákmótinu Jón Ísak Ragnarsson skrifar 13. mars 2024 17:45 Skákmót í Hörpu árið 2018. VÍSIR/BJÖRN ÞÓR Reykjavíkurskákmótið 2024 hefst á föstudaginn í Hörpu. 414 keppendur frá 49 löndum eru skráðir til leiks, en þar af eru 93 íslenskir. Aldrei hafa fleiri keppendur verið skráðir, en loka þurfti fyrir skráningu vegna plássleysis í Hörpu, slík var aðsóknin. Gamla metið frá í fyrra var 401 keppandi. 28 keppendur eru stórmeistarar, átta þeirra íslenskir.
Tefldar verða níu umferðir á sjö dögum dagana 15. - 21. mars. Stigahæsti keppandi mótsins er rúmenska ungmennið Bogdan-Daniel Deac, sem er 22 ára með 2690 ELO stig. Úkraínska skákgoðsögnin Vasyl Ivanchuk er einnig meðal keppanda og er sennilega þekktastur þátttakenda. Frægt er viðtal þar sem Ivanchuk þuldi upp svo gott sem alla mögulega leiki og útkomur í nýafstaðinni skák sinni við Lei Tingjie. Skákkonur láta að sér kveða Enginn skortur verður á sterkum skákkonum. Jiner Zhu (2467 ELO) verður stigahæst kvenna á mótinu og jafnframt sú eina sem er stórmeistari í opnum flokki. Aðrar þekktar skákkonur verða til dæmis hin indverska Tania Sachdev, og hin búlgarska Nurguyl Salimova sem er eitt heitasta nafnið í kvennaskákinni þessi misserin. Sterkir íslenskir þátttakendur Stigahæstur íslenskra keppenda er Hjörvar Steinn Grétarsson stórmeistari (2530 ELO), sá 14. stigahæsti á mótinu. Aðrir íslenskir stórmeistarar á mótinu eru Hannes Hlífar Stefánsson, Héðinn Steingrímsson, Guðmundur Kjartansson, Vignir Vatnar Stefánsson, Jóhann Hjartarson, Bragi Þorfinsson og Þröstur Þórhallsson. Lenka Ptácníková margfaldur Íslandsmeistari kvenna tekur þátt, sem og Olga Prudnykova flóttamaður frá Úkraínu og nýkrýndur Íslandsmeistari kvenna. Hjörvar Steinn Grétarsson situr að tafli.Arnar Halldórsson Enskt undrabarn tekur þátt Átta ára stúlka að nafni Bodhana Sivanandan (2088 ELO), sem er að margra mati eitt mesta efni sem skákheimar hafa séð, er einnig skráð til leiks. Lesa má um afrek hennar til dæmis í þessari frétt Guardian. Skákáhrifavaldar í Hörpu Einnig á meðal keppenda eru systurnar Alexandra og Andrea Botez, sem standa fyrir vinsælli rás á Youtube með næstum eina og hálfa milljón áskrifenda. Á þeirri rás má finna ýmiss konar myndbönd sem öll snúa að skák með einhverjum hætti. Þær njóta einnig mikils fylgis á Instagram með samanlagðan fylgjendafjölda upp á næstum eina og hálfa milljón. View this post on Instagram A post shared by Alexandra Botez (@missbotez) Skákmenn verða stjörnur á Youtube Færst hefur í aukana síðustu ár að skákmenn séu virkir á samfélagsmiðlum, svo mikið að suma væri jafnvel hægt að kalla skákáhrifavalda. Vinsæl iðja skákáhugamanna er að fylgjast með öðrum skákmönnum tefla í gegnum streymissíður eins og til dæmis Twitch. Þá hefur fjöldinn allur af skákmönnum sinnt myndbandagerð á Youtube af miklu kappi og borið af því góðan ávöxt. Í því tilliti má nefna til dæmis skákofurstjörnuna Hikaru Nakamura og Levy Rozman sem heldur úti rásinni GothamChess, sem er eftir bestu vitund blaðamanns vinsælasta skákrásin á youtube með hátt í fimm milljón áskrifendur. Reykjavíkurskákmótið hefst föstudaginn 15. mars kl 15:00, og stendur yfir í sjö daga.
Reykjavík Skák Reykjavíkurskákmótið Tengdar fréttir Hjörvar sigurvegari eftir æsispennandi viðureign Hjörvar Steinn Grétarsson er sigurvegari skákmótsins Ísland gegn áhrifavöldunum, útsláttarhraðskákmóti sem fram fór í dag. 4. apríl 2023 22:22 Mest lesið Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ Innlent Tígrisdýrið verður ekki aflífað Erlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Innlent Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Erlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Fleiri fréttir Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Sjá meira
Hjörvar sigurvegari eftir æsispennandi viðureign Hjörvar Steinn Grétarsson er sigurvegari skákmótsins Ísland gegn áhrifavöldunum, útsláttarhraðskákmóti sem fram fór í dag. 4. apríl 2023 22:22