Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni.
Hvenær vaknar þú á morgnana?
„Stilli vekjarann á símanum klukkan 6.30 en er yfirleitt kominn í sturtuna um klukkan 6.45. Það er nokkuð mikið átak fyrir mig að vakna snemma því ég er mikil B-týpa að eðlisfari.“
Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana?
„Ég byrja daginn á engiferskoti, tvöföldum expresso og ristaðri brauðsneið með osti og loka svo morgunverðinu með einu haustkexi. Ég reyni svo eins oft og ég get að drífa mig niður í vinnu og hitta á leiðsögumennina og aðra starfsmenn áður en þeir fara af stað með ferðamenn í að njóta ævintýra Íslands. Ef ég er seinna á ferðinni þá hringi ég gjarnan í Eystein Pétur Lárusson framkvæmdastjóra Breiðabliks og fer yfir stöðuna á Breiðablik, en ég er formaður félagsins.“
Skemmtilegasti útileikurinn þegar þú varst lítill?
„Þegar ég var lítil var ég heltekinn af fótbolta og það komst ekkert annað að, þannig að það var eiginlega eini útileikurinn. Ég var með vinum í fótbolta alla daga frá morgni til kvölds.
Ég ólst upp í vesturbænum í Kópavogi og var öllum stundum að leika mér á Rútstúni við sundlaug Kópavogs eða á Vallargerðivelli.
Mamma þurfti oft að sækja mig í mat, því tímaskynið var ekkert þegar við vorum á fullu mikilvægum í leikjum.“

Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana?
„Helstu verkefni mín hjá Arctic Adventures er að byggja upp fyrirtækið bæði með innri og ytri vexti. Við erum á síðustu misserum búin að vera að endurskipuleggja hjá okkur sölu- og markaðsstarfið, en erum einnig að undirbúa stækkun á hótelsstarfsemi okkar. Þá höfum við verið að leggja lokahönd á stefnumótun félagsins og nú liggur fyrir að fara innleiða hana stefnuna.“
Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu?
„Ég mætti svo sannarlega vera skipulagðari, en ég er að reyna að tileinka mér að nota Asana. Almennt reyni ég að renna yfir dagskrá morgundagsins kvöldið áður, þannig að ég komi sæmilega undirbúinn fyrir fundi og verkefni dagsins.“
Hvenær ferðu að sofa á kvöldin?
„Ég er með þann vonda eiginleika að framleiðni mín er hvað mest milli klukkan ellefu og eitt á kvöldin og því fer ég iðulega alltof seint að sofa.
Í staðinn freistast ég oft til að vinna upp uppsafnaða svefnþörf í flugvélum, leikhúsi, tónleikum, kirkjum og öðrum stöðum þar maður getur komið sér þægilega fyrir og fólk þarf ekki að tala við mig.“