Finnur var hinn rólegasti og var spurður að því hvort þessi leikur og niðurstaða hans hafi ekki verið hrikalega erfið.
„Það er hundfúlt að tapa. Við vorum bara daufir frá byrjun en það voru móment þarna í leiknum þar sem hefði verið hægt að taka leikinn og gera eitthvað.“
Þegar hér var komið við sögu þá gerðist eitthvað við bekk Valsmanna en Joshua Jefferson og Deandre Kane lentu í orðaskiptum sem dómararnir skoðuðu í skjánum. Það virðist ekkert hafa verið dæmt og líklega ekkert sett í skýrslu dómara eftir leik. Finnur gat þá haldið áfram eftir að vera spurður að því hvort hann vissi hvað væri í gangi.
„Það er bara hiti í þessu. Ég fíla áruna yfir þessu Grindavíkur liði. Það er dólgur í þeim og það er kjaftur í þeim og réttilega. Þetta er hörkulið. Það gerist eitthvað í upphafi annars leikhluta þar sem þeir taka af skarið á meðan við erum enn þá sofandi og eftir það áttum við ekki séns. Körfubolti er svo þannig eins og aðrar íþróttir að það er ekki hægt að kveikja allt í einu á sér. Við vorum ekki með kveikt á perunni, við fengum tækifæri í upphafi til að gera eitthvað en eftir það var þetta aldrei spurning.“
Sóknarleikur Valsmanna var ekki upp á marga fiska í fyrri hálfleik á löngum köflum en í seinni hálfleik þá var hann upp á enga fiska. Þeir skoruðu 27 stig í seinni hálfleik og Grindvíkingar læstu sínum varnarleik algjörlega. Var það meira upp á Valsara að klaga eða gerðu Grindvíkingar vel?
„Þeir voru góðir og við vorum lélegir. Komum illa inn í leikinn, frammistaðan slök og það kemur fyrir. Þetta sýnir okkur það að við getum unnið einhverja leiki í röð og ef við förum að hugsa um það eitthvað mikið færðu á baukinn. Eins og við vitum þá eru þetta 22 leikir og ef þú mætir ekki hvern einasta þá færðu á baukinn og við fengum á baukinn í kvöld.“
Meiðslavandræði Valsmanna eru öllum kunn en Taiwo Badmus fékk væna byltu í lok leiks og þurfti að fara útaf og virkaði sárþjáður. Finnur var spurður að því hvort hann vissi hvort meiðslin væru alvarleg.
„Hann datt á bakið. Við þekkjum það ekki en hann er mikið í háloftunum og þegar maður hoppar hátt þá getur fallið verið hátt en ég held að þetta verði allt í lagi.“
Að lokum var Finnur spurður að því hvort hann þyrfti að segja eitthvað sérstakt við sína menn eftir svona leik.
„Bara að læra af reynslunni. Áfram gakk. Við verðum að nýta bikarhléið vel, það er langt í næsta leik og það er fúlt að bíða lengi eftir næsta leik. Við verðum að nýta tilfinningarnar sem við finnum eftir þennan leik til að verða betri og vonandi fáum við að mæta þessu Grindavíkurliði í úrslitakeppninni, sama á hvaða tímapunkti það verður.“