Lífið

Hamingju­söm og þakk­lát Katrín Tanja á splunku­nýjum jeppa

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Katrín Tanja er í skýjunum með nýja bílinn sinn.
Katrín Tanja er í skýjunum með nýja bílinn sinn. Instagram @katrintanja

Fyrrum CrossFit heimsmeistarinn og afreksíþróttakonan Katrín Tanja nýtur lífsins í Norður-Idaho í Bandaríkjunum þar sem hún er búsett ásamt unnusta sínum, íþróttamanninum Brooks Laich. Parið festi nýverið kaup á svörtum Land Rover Defender jeppa og birti Katrín Tanja mikla gleðifærslu á Instagram í tilefni af því. 

Þar skrifar Katrín Tanja: 

„Við keyptum okkur draumabílinn okkar. Þriðja myndin er þriggja ára gömul frá því þegar við vorum með bílinn í viðgerð og sáum alveg svartan Defender jeppa. Ég tók mynd af Brooks sitjandi í honum og hugsaði EINN DAGINN. 

Frá því við fluttum í Coeur d’Alene höfum við deilt einum bíl þannig að mér líður líka eins og ég hafi öðlast vængi. ÉG ER SVO HAMINGJUSÖM og þakklát og spennt fyrir öllum ævintýrunum sem framundan eru á þessum bíl með ástinni minni.“ 

Hérlendis kostar slíkur jeppi allt frá rúmum 20 milljónum íslenskra króna. 

Það er mikið um að vera hjá Katrínu Tönju þessa dagana sem er dugleg að deila frá lífi sínu á Instagram. Hún er hörkudugleg að æfa og tók nýverið þátt í undankeppni fyrir heimsleikana í CrossFit. 

Þá hafa hún og Annie Mist, annar fyrrum heimsmeistari í CrossFit, stofnsett verkefni sem hefur það markmið að hjálpa konum þegar þær fara í gegnum breytingaskeiðið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.