Fótbolti

Gullsending Dags í fyrsta sigrinum

Sindri Sverrisson skrifar
Ætli Dagur Dan Þórhallsson hafi komið skilaboðum áleiðis til Åge Hareide, með stoðsendingu sinni í nótt?
Ætli Dagur Dan Þórhallsson hafi komið skilaboðum áleiðis til Åge Hareide, með stoðsendingu sinni í nótt? Getty/Rich von Biberstein

Þrátt fyrir landsleikjahlé í flestum deildum fótboltans þá var leikið í MLS-deildinni í Bandaríkjunum um helgina. Dagur Dan Þórhallsson og Nökkvi Þeyr Þórisson voru á ferðinni.

Dagur og félagar í Orlando City fögnuðu sínum fyrsta sigri á leiktíðinni, í fimmtu umferð, þegar þeir unnu Austin 2-0.

Dagur átti stóran þátt í sigrinum því hann átti frábæra fyrirgjöf í fyrra marki Orlando, svo Jack Lynn gat skallað auðveldlega í netið. Markið má sjá hér að neðan.

Markið kom skömmu fyrir hálfleik og Úrúgvæinn Nicolás Lodeiro bætti svo við marki í seinni hálfleik, beint úr aukaspyrnu. Þrátt fyrir sigurinn er Orlando í 13. sæti af 15 liðum í austurdeildinni, með fjögur stig.

Nökkvi Þeyr lék svo síðustu tíu mínúturnar fyrir St. Louis City í 2-2 jafntefli við D.C. United. Belgíski framherjinn Christian Benteke kom D.C. United í 2-1 Joao Klauss jafnaði metin á 70. mínútu úr vítaspyrnu.

St. Louis hefur því enn ekki tapað leik á tímabilinu, en gert fjögur jafntefli, og er liðið í 8. sæti vesturdeildarinnar með sjö stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×