Tíska og hönnun

„Mar­tröð“ að spila í of síðu goth pilsi

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Tatjana Dís er viðmælandi í Tískutali.
Tatjana Dís er viðmælandi í Tískutali. Aðsend

Tónlistarkonan Tatjana Dís, meðlimur hljómsveitarinnar ex.girls, hefur gaman að hverfulleika tískunnar, þar sem eitthvað sem telst ljótt eina stundina getur orðið flott stuttu síðar. Tatjana forðast það að klæðast úlpu við hælaskó, sækir tískuinnblástur til bestu vinkonu sinnar og er viðmælandi í Tískutali.

Tískutal er fastur liður á Vísi þar sem rætt er við ólíka einstaklinga um þeirra persónulega stíl og hvernig tíska nýtist þeim í daglegu lífi. Klæðaburður er sannarlega fjölbreytt listform en við fáum að skyggnast inn í ólíka fataskápa og fræðast nánar um það merkilega tjáningarform sem tíska er fyrir hverjum og einum viðmælanda.

Tatjana Dís er með einstakan stíl. Aðsend

Hvað finnst þér skemmtilegast við tískuna?

Að það sem mér þykir ljótt núna mun mér þykja flott seinna og það sem mér þykir flott núna mun mér þykja ljótt seinna.

Hver er uppáhalds flíkin þín og af hverju?

Grænblár munstraður jakki sem var keyptur í lítilli hönnunarbúð í Barcelona árið 2013 og ég elska alveg jafn mikið í dag. Og Pokémon buxurnar mínar sem ég keypti ári síðar en hætti að ganga í því allir héldu að þær væru náttbuxur.

Pokemon buxurnar voru ekki náttbuxur! Aðsend
Græni jakkinn er enn í uppáhaldi hjá Tatjönu. Aðsend

Eyðirðu miklum tíma í að velja föt hverju sinni?

Ekki dagsdaglega, en þegar að ég kem fram þá pæli ég í hverju ég ætla að vera með fyrirvara.

Tatjana gefur sér góðan tíma til að velja föt áður en hún kemur fram með hljómsveitinni ex.girls. Aðsend

Hvernig myndirðu lýsa stílnum þínum?

Fer eftir skapi.

Tatjana klæðir sig eftir skapi. Aðsend

Hefur stíllinn þinn breyst mikið í gegnum tíðina og hvernig þá?

Í dag pæli ég meira í því hvort að flíkin sé klæðileg og hvort hún sé í mínum lit. Ég var vön því að kaupa bara eitthvað sem mér þótti flott burt séð frá því hvort það klæddi mig eða ekki.

Tatjana segist velja flíkur út frá klæðileika og litapallettu. Aðsend

Nýturðu þess að klæða þig upp?

Já, þegar það liggur vel á mér. Og ég reyni samt að klæða mig vel þó svo það geri það ekki. 

Manni gengur betur og líður betur þegar maður er vel klæddur.
Tatjana leyfir tískunni að hafa jákvæð áhrif á líðan sína. Aðsend

Hvaðan sækirðu innblástur í tískunni?

Frá Margréti Unni Guðmundsdóttur og Jonathan Davis.

Ertu með einhver boð og bönn þegar það kemur að klæðaburði?

Ekki úlpa við hælaskó! Ekki of sterkir og kaldir litir því þeir fara mér ekki.

Tatjana fílar ekki of sterka eða kalda liti. Aðsend

Hver er eftirminnilegasta flík sem þú hefur klæðst og af hverju?

Goth pilsið sem ég keypti í Hertex fyrir ex.girls tónleika á Lunga. Það var martröð að spila í því, ég var alltaf að hrasa um það.

Tatjana segir að það hafi verið martröð að spila í goth pilsinu. Aðsend

Býrðu yfir einhverju góðu ráði þegar það kemur að tísku?

Að þekkja sína árstíð getur skipt sköpum, þ.e.a.s. hvaða árstíðarpalletta fer þér best. 

Fólk getur litið út eins og lík í röngum lit á meðan það lifnar við í öðrum. 

Kaupa notað, ekki nýtt. Nema að þú eigir skítnóg af peningum og getir keypt hágæða flíkur.

Litapallettan spilar veigamikið hlutverk í stíl Tatjönu. Aðsend

Hér má fylgjast með Tatjönu á samfélagsmiðlinum Instagram. 


Tengdar fréttir

Ekki sérlega litaglöð en glaðlynd að eðlisfari

Innanhússarkitektinn Stella Birgisdóttir er mikill fagurkeri bæði þegar að það kemur að heimilinu og að klæðaburði. Hún lærði hönnun á Ítalíu og sækir innblástur þangað en Stella er viðmælandi vikunnar í Tískutali.

Sparks peysan og brúnkukremið eftirminnilegt tímabil

Tískan spilar hlutverk í daglegu lífi förðunarfræðingsins, meistaranemans og samfélagsmiðla ofurskvísunnar Sara Linneth. Sara er í sambúð með Árna Páli, jafnan þekktur sem Herra Hnetusmjör, og þykja þau með smartari pörum bæjarins. Sara hefur farið í gegnum fjölbreytt tískutímabil en hún er viðmælandi vikunnar í Tískutali.

„Leyfðu öðrum að njóta lífsins og klæða sig eins og það vill“

Samfélagsmiðlastjórinn Mariane Sól Úlfarsdóttir elskar tískuna og tileinkar sér vistvænar leiðir í fatavali. Hún er í hópi kvenna sem standa fyrir forritinu Regn sem selur notuð föt, elskar að klæða sig upp og 35 ára gamall jakki er í algjöru uppáhaldi hjá henni. Mariane er viðmælandi í Tískutali.

Finnur flottari flíkur í kvenmannsdeildunum

Plötusnúðurinn Egill Ásgeirsson setti sér þá reglu að ganga alltaf um í góðum skóm og vellíðan er lykillinn að stílnum hans. Hann elskar að klæða sig upp og sækir tískuinnblástur á samfélagsmiðla. Egill er viðmælandi vikunnar í Tískutali.

Klæðir sig upp í þema fyrir öll möguleg tilefni

Lífskúnstnerinn Guðný Björk Halldórsdóttir hefur gríðarlega gaman að tískunni og er óhrædd við að fara eigin leiðir. Hún nýtir hvert tilefni til að klæða sig upp í skemmtileg og frumleg föt og segir að með árunum sé hún farin að taka meiri áhættu. Guðný Björk er viðmælandi vikunnar í Tískutali.

Nýtur þess að setja sig í fyrsta sætið

Tískuskvísan og lífskúnstnerinn Tinna Aðalbjörnsdóttir er annar eiganda módelskrifstofunnar Ey Agency og segir tískuna alltaf hafa verið eitt af sínum uppáhalds áhugamálum. Hún er viðmælandi vikunnar í Tískutali.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.