Lífið

„Draumur að verða að veru­leika“

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Sandra Björg og Hilmar gengu í hjónaband árið 2022 og virðist lífið leika við þau.
Sandra Björg og Hilmar gengu í hjónaband árið 2022 og virðist lífið leika við þau. Sandra Björg

Þjálfarinn Sandra Björg Helgadóttir og eiginmaður hennar Hilmar Arnarsson eiga von á sínu fyrsta barni saman í haust. Hjónin greina frá tímamótunum í sameiginlegri færslu á Instagram.

„Draumur að verða að veruleika. Hjartað er stútfullt af þakklæti. Settur dagur 28. september 2024,“ skrifar Sandra og birti fallega mynd af þeim hjónum á ströndinni í Malibu í Kaliforníu með sónarmynd í hönd.

Sandra og Hilmar kynntust í námi í Háskóla Íslands og útskrifuðust bæði tvö sem Iðnaðarverkfræðingar árið 2014. 

Parið lét pússa sig saman við hátíðlega athöfn í Háteigskirkju þann 22. júlí árið 2022 á blautum föstudegi. Veislan var stórglæsileg, haldin í veislusal Sjálands í Garðabæ þar sem gestum var boðið upp á alvöru partý.

Hjónin fluttu til Íslands síðastliðið haust eftir tveggja ára búsetu í Los Angeles. Sandra hefur vakið athygli fyrir þjálfun sína bæði í Absaloute Training og Barre og Hilmar hefur sömuleiðis verið að þjálfa í Crossfit undanfarin ár. 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.