Lífið

Milljónir hafa horft á stikluna fyrir Snertingu

Lovísa Arnardóttir skrifar
Kvikmyndin segir sögu Kristófers, eldri manns sem stendur á tímamótum og leitar svara við áleitnum spurningum úr fortíð sinni.
Kvikmyndin segir sögu Kristófers, eldri manns sem stendur á tímamótum og leitar svara við áleitnum spurningum úr fortíð sinni. Mynd/Lilja Jóns fyrir RVK Studios

Stikla fyrir kvikmyndina Snertingu var heimsfrumsýnd í vikunni og hafa frá því nærri átta milljónir horft á stikluna, þar af tæpar fimm milljónir á YouTube og rest á samfélagsmiðlunum X, Facebook og Instagram. Þá hefur íslenska útgáfan af stiklunni fengið yfir tvö hundruð þúsund spilanir.

Til samanburðar horfðu um fimm milljónir á stikluna fyrir Dýrið þegar hún kom út árið 2021.

Í tilkynningu um málið kemur fram viðbrögð við stiklunni hafi verið afar jákvæð og að merkja megi mikinn áhuga meðal kvikmyndaáhugamanna og almennings, sem nefna helst fallega sjónræna veislu og tónlist ásamt því að fólk deilir spennu yfir „tilfinningaþrunginni“ og „grípandi“ ástarsögu.

Myndin er byggð á samnefndri skáldsögu Ólafs Jóhanns Ólafssonar, sem var mest selda bókin á Íslandi árið 2020 og hlaut mikið lof gagnrýnenda. Hún verður heimsfrumsýnd á Íslandi í Smárabíó, Laugarásbíó og völdum kvikmyndahúsum á landsbyggðinni 29.maí næstkomandi. Einnig verður myndin sýnd í Bíó Paradís, með enskum texta eða sjónlýsingu fyrir sjónskerta og blinda.

Baltasar Kormákur leikstýrir og RVK Studios er framleiðandi.

Kvikmyndin segir sögu Kristófers, eldri manns sem stendur á tímamótum og leitar svara við áleitnum spurningum úr fortíð sinni. Hvað varð um stúlkuna sem hvarf sporlaust úr lífi hans fimmtíu árum áður? Sagan teygir sig víða um heim og ferðalag Kristófer ber hann þvert yfir hnöttinn. Á leið sinni rifjar hann upp sælar minningar frá sumrinu sínu í London 1969. Egill Ólafsson fer með aðalhlutverkið sem Kristófer.

Focus Features og Universal hafa tryggt sér sýningarréttinn á heimsvísu og verður hún frumsýnd í Bandaríkjunum þann 12. júlí næstkomandi og í framhaldinu um allan heim


Tengdar fréttir

Frumsýning á Vísi: Fyrsta stiklan úr Snertingu

Stikla úr kvikmyndinni Snerting eftir Baltasar Kormák er komin út. Baltasar segist alltaf hafa verið meiri kitlumaður frekar en stiklumaður. Hann segist ekki geta beðið eftir að landsmenn fái loksins að bera myndina augum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.