Bíó og sjónvarp

Sorgin alls­ráðandi í fyrstu stiklunni úr Ljós­brot

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Elín Hall fer með aðalhlutverkið í myndinni.
Elín Hall fer með aðalhlutverkið í myndinni.

Fyrsta stiklan úr kvikmynd Rúnars Rúnarssonar, Ljósbrot er komin á netið. Myndin verður frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Cannes í Frakklandi á morgun og er ein af opnunarmyndum hennar.

Kvikmyndin verður sýnd í flokknum Official Selection, Un Certain Regard. Flokkurinn er í aðalkeppni hátíðarinnar og munu aðstandendur myndarinnar ganga rauða dregilinn fyrir heimsfrumsýningu Ljósbrots.

Myndin gerist á fallegum vordegi þegar líf Unu snýst á hliðina á svipstundu og upphefst rússibanaferð tilfinninga. Þar sem mörkin milli hláturs og gráturs, fegurðar og sorgar, verða stundum óskýr.

Leikarar eru Elín Hall, Mikael Kaaber, Katla Njálsdóttir, Gunnar Hrafn Kristjánsson, Ágúst Wigum og Baldur Einarsson. Rúnar Rúnarsson skrifar handrit myndarinnar, leikstýrir og framleiðir ásamt Heather Millard.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.