Flogið var með hópinn til Frankfurt seint í gær þar sem þau sameinuðust svo stærri hópi Nígeríumanna sem var einnig verið að flytja til Nígeríu í flugvél á vegum Frontex. Flugvél Frontex lenti í Lagos um hádegisbil í dag að íslenskum tíma.
Lögmannsstofan Norðdahl, Narfi og Silva hafa séð um mál Precious frá því að hann kom til landsins. Vegna þess að giftingin fór fram eftir að Precious hafði fengið endanlega synjun um alþjóðlega vernd þurfti hann að sækja um makaleyfi til að fá að vera á landinu. Hann hafði þegar sótt um það.
Samkvæmt upplýsingum frá lögmanni hans er meginreglan sú að fólk í hans stöðu þurfi að fara af landinu á meðan það bíður eftir slíku leyfi en það má veita undanþágu.
Eiginkona Precious, Sara Sigurbjörg Guðmundsdóttir, vissi ekki af yfirvofandi brottvísun fyrr en í gær.
„Hann hringdi í mig á Facetime á Snapchat. Ég var í ræktinni og hann sagði mér að hann væri handtekinn og að þau myndu taka símann. Hann sagði mér að hringja í lögfræðinginn sinn og ég fór þangað.“
Fékk ekki að kveðja
Lögfræðingar hennar hófu þá um leið samtal við lögregluna um að fá leyfi fyrir Söru til að kveðja Precious. Lögreglan vildi ekki veita það leyfi og Sara segir það versta við þetta allt.
„Þau vildu ekki gefa neinar upplýsingar eða neitt þannig. Þau leyfðu mér ekki að hitta hann. Ég fór sjálf í morgun og fékk ekki að segja bæ,“ segir Sara.
Auk þess hafi síminn verið tekinn af honum og því hafi hún ekki getað heyrt í honum.
Precious og Sara hafa verið saman í um tvö ár en giftu sig í febrúar á þessu ári. Síðustu mánuði hefur hann verið í fullri vinnu á lagernum hjá Jysk. Fréttastofa hefur séð hjúskaparvottorð og atvinnuleyfi Precious sem staðfestir þetta.
„Við vorum búin að ákveða að gifta okkur í einhvern tíma. Því maður veit aldrei hvað gerist. Svo var bara svo mikil pressa og við vorum mjög ástfangin og ákváðum að gera þetta í flýti.“
Hún segir að hann hafi svo sótt um makaleyfi og kannast ekki við að hafa fengið upplýsingar um að giftingin myndi ekki breyta neinu fyrir brottvísun Precious.
„Ég fékk allavega ekki neitt, en okkur var sagt í dag að hann hefði átt að fá bréf. Að hann fékk neikvætt áður en við giftum okkur, en hvorugt okkar fékk bréf til að vara okkur við að hann fékk neitun. Þannig við vissum ekki neitt.“
Kom frá Úkraínu
Precious kom til landsins frá Úkraínu fyrir um tveimur árum eftir að hafa dvalið þar í eitt ár að spila fótbolta. Þegar stríðð braust út þar kom hann hingað til Íslands í von um að finna betra líf. Fyrir átti hann einn frænda hér sem hefur komið sér fyrir á Íslandi.
Sara segir það hafa verið mikið áfall að fá símtalið frá Precius í gær.
„Mér líður náttúrulega ömurlega. Ég er ekki búin að borða neitt eða sofa síðan í gær. Ég svaf í einn og hálfan tíma í nótt.“
Hún veit ekki hvenær eða hvar þau munu hittast aftur en bíður þess að heyra frá móður hans í Lagos hvort hann sé kominn aftur.
Þannig þú ert bara að bíða?
„Já. Þetta tekur tíma og er mjög erfitt.“