Lífið samstarf

„Tek bara þátt til að vinna“ - Marthe sigraði uppskriftakeppni Bylgjunnar og Gott í matinn

Gott í matinn og MS
Marthe Sördal bræddi bragðlauka dómnefndarinnar með Hindberjadraumi
Marthe Sördal bræddi bragðlauka dómnefndarinnar með Hindberjadraumi

Marthe Sördal sigraði uppskriftakeppni Gott í matinn og Bylgjunnar. Hátt í fimmtíu uppskriftir bárust dómnefnd sem átti úr vöndu að velja. Senda mátti inn hverskonar uppskrift, kökur, brauð, eða mataruppskriftir, eina skilyrðið var að uppskriftin innihéldi hráefni frá MS.

Sumarlegur hindberjadraumur Marthe með marsípani og súkkulaðitvisti bræddi bragðlauka dómnefndar og hlaut Marthe gjafakörfu frá Gott í matinn og glæsilegan pizzaofn og í verðlaun, sem hún segir eiga eftir að koma sér vel, fjölskyldan baki pítsu alla föstudaga. Marthe er virkilega lunkin í eldhúsinu en segist betri í að baka en elda. 

„Mér finnst gaman að baka þegar ég hef tímann til að gera það. Ég vil meina að ég sé betri í að baka en að elda og það er gaman að baka þegar afraksturinn er borðaður.  Ef ég á að velja uppáhalds þá finnst mér mjög gaman að baka pavlovu,“ segir Marthe. Hún hikar ekki við tilraunir í bakstrinum og Hindberjadraumurinn er einmitt afrakstur tilrauna. „Ég sauð saman nokkrar uppskriftir og betrumbætti með því að aðsníða hana að keppninni. Ég hef bakað þessa köku tvisvar sinnum áður.“ En átti hún von á að vinna keppnina? „Ég tek bara þátt til að vinna!“


Hér er uppskriftin að Hindberjadraum Marthe.

Hindberjadraumur með marsípan og súkkulaði tvisti

Marsípan botn

150 g

mjúkt smjör

150 g

sykur

75 g

rifið marsípan

2 msk.

sýrður rjómi 18% eða grísk jógúrt frá Gott í matinn

3 stk.

egg

150 g

hveiti

1 tsk.

lyftiduft

Aðferð:

Hitið ofninn í 175°C. Þeytið smjör og sykur saman, þar til blandan verður létt og ljós. Bætið við marsípaninu. Því næst koma eggin, setja eitt egg í einu og bæta líka við sýrða rjómanum. 4. Að lokum er hveiti og lyftiduft sett út í. Þeyta þar til allt hefur blandast saman. Smyrjið form sem er ca. 24 cm að þvermáli með smjöri. Bakið í 20-25 mínútur, miðjan á að vera smá mjúk þegar þið takið kökuna út. Láta hana kólna og byrja að gera súkkulaðimúsina á meðan.

Súkkulaðimús

2 stk.

matarlímsblöð

150 g

dökkt súkkulaði

4 stk.

eggjarauður

50 g

sykur

150 ml

rjómi frá Gott í matinn

100 ml

súkkulaðimjólk frá MS

2 stk.

eggjahvítur

Aðferð:

Setjið matarlímið í skál með köldu vatni. Látið þau liggja þar í nokkrar mínútur (eða þar til þau verða mjúk viðkomu). Bræðið súkkulaði og látið það kólna. Þeytið eggjarauðurnar þar til létt og loftkennt. Bætið við súkkulaðinu þegar það hefur kólnað. Setjið 3 msk. af köldu vatni í glas og hitið í örbylgju þar til hitinn er rétt undir suðumarki. Setjið matarlímið í glasið svo það bráðnar. Takið 2-3 skeiðar úr súkklaði -og eggjarauðu skálinni og setjið í glasið með matarlíminu. Hrærið því vel saman og þegar það er vel blandað þá helli ég öllu sem er í glasinu við súkkulaði- og eggjarauðu blönduna. Þeytið eggjahvítur og sykur þar til þær eru alveg stífar og blandið við súkkulaðiblönduna. Hrærið svo saman rjómanum og súkkulaðimjólkinni og blandið saman við hina blönduna. Hellið yfir marsípan botninn og fyrstið í minnst 3 tíma.

Hindberjamús

3 stk.

matarlímsblöð

200 g

frosin hindber

50 g

sykur

1 tsk.

vanillusykur

safi úr hálfri sítrónu

3 tsk.

sýrður rjómi 18% eða grísk jógúrt frá Gott í matinn

250 ml

rjómi frá Gott í matinn, þeyttur

Aðferð:

Loka hnykkurinn er svo hindberjamúsin. Setjið 3 matarblöð í kalt vatn. Hitið í potti hindber, sykur, vanillusykur og sítrónusafa. Fáið suðuna upp og bætið þá matarlíminu við. Leyfið blöndunni að kólna. Þegar blandan er orðin köld bætið þá við sýrðum rjóma og þeyttum rjóma. Hellið yfir súkkulaðimúsina og frystið í lágmarki 3 klst. Best að hafa þetta yfir nótt. Skreytið með ferskum hindberjum og súkkulaði og borðið með bestu lyst.

Fleiri uppskriftir úr keppninni væntanlegar á vefinn

Fimm aðrar uppskriftir hlutu aukaverðlaun, gómsæta gjafakörfur frá Gott í matinn. Þær uppskriftir munu birtast inni á vef Gott í matinn á næstu dögum og um að gera að fylgjast vel með þar inni: Beikon brauðréttur eftir Hrafnhildur Einarsdóttir, Brauðterta Múlans eftir Kjartan Þór Kjartansson, Lasagna eftir Berglindi Robertson Grétarsdóttur, Salsa fiskur með nachos flögum og melónusalati eftir Elísabetu Ósk Sigurðardóttur og Tagliatelle kjúklingaréttur Laugu eftir Sigurlaugu Gísladóttur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×