Meistaradeildartitillinn til Ungverjalands Smári Jökull Jónsson skrifar 2. júní 2024 19:30 Lið Györi fagnar titlinum í dag. Vísir/Getty Ungverska liðið Györi tryggði sér í dag sigur í Meistaradeild Evrópu í handknattleik eftir sigur á þýska liðinu Bietigheim í úrslitaleik.
Lið Györi hefur verið einn af risunum í evrópskum handbolta síðustu árin og vann meðal annars Meistaradeildina fimm sinnum á árunum 2013-2019 en ekki farið með sigur af hólmi síðan þá. Saga Bietigheim er hins vegar styttri en liðið hóf keppni í Þýskalandi árið 2010, varð meistari fyrst árið 2017 og orðið Þýskalandsmeistari síðustu þrjú árin. Györi tryggði sér sæti í úrslitum með því að leggja danska liðið Esbjerg 24-23 í undanúrslitum en Bietigheim vann Metz 36-29. Það var ungverska liðið sem var sterkara frá upphafi í leiknum í dag. Györi náði 8-3 forskoti í upphafi leiks og leiddi 17-12 í hálfleik. Munurinn fór minnst niður í fjögur mörk í nokkur skipti en leikurinn varð í raun aldrei spennandi í síðari hálfleik. Györi fagnaði 30-23 og vann þar með sinn sjötta Meistaradeildartitil. Ana Gros og Kari Brattset Dale voru markahæstar hjá Györi með sex mörk og Silje Solberg var frábær í markinu með 42% markvörslu. Sofia Hvenfelt var markahæst hjá Bietigheim með 5 mörk. Í leiknum um bronsið vann Esbjerg 37-33 sigur á Metz.
Mest lesið Hljóp maraþonhlaup á hverjum degi í heilt ár Sport Enn óvíst að stuðningsmenn Íslands fái HM-treyjur: „Afskaplega leitt“ Handbolti HM úr sögunni hjá Arnari Frey Handbolti „Ég var að sinna hlutum sem eru mikilvægari en körfubolti“ Körfubolti „Hann er að hringja til að segjast ætla að drepa mig“ Körfubolti Sveinn kallaður inn í landsliðið vegna meiðsla Arnars Freys Handbolti „Það mikilvægasta sem við eigum“ Handbolti Stórundarleg hegðun O'Sullivans Sport Þjálfari sló niður ungan línuvörð en sleppur við fangelsi Enski boltinn Járnkona sundsins kveður Sport Fleiri fréttir Hafsteinn Óli utan hóps hjá Grænhöfðaeyjum HM úr sögunni hjá Arnari Frey „Það mikilvægasta sem við eigum“ Enn óvíst að stuðningsmenn Íslands fái HM-treyjur: „Afskaplega leitt“ Sveinn kallaður inn í landsliðið vegna meiðsla Arnars Freys Uppgjörið: Svíþjóð - Ísland 31-31 | Góð fyrirheit fyrir HM Tómarúm eftir brotthvarf Landins og Hansens úr landsliðinu Dagur hundóánægður eftir sigur og saknar lykilmanns Eyjaför hjá bikarmeisturunum Fengið spark í rassgatið frá Guðjóni Val „Vonandi eitthvað til að byggja á í Evrópuleiknum“ Haukakonur byrja nýtt ár á tveimur sigurleikjum Díana Dögg kom að fjórum mörkum í stórsigri á gömlu félögunum Uppgjörið: Valur - Fram 31-28 | Valskonur láta ekkert undan Dana Björg ekki tapað síðan hún kom til baka af EM Tapaði fyrir Þóri í úrslitaleik EM og er líka hættur Reynir að halda fókus á meðan Snorri gasar Mikið áfall fyrir Eyjakonur Gamli landsliðsmarkvörðurinn í íslenska teymið „Á örugglega eftir að sjá eftir því á einhverjum tímapunkti“ Meiðslin sett strik í undirbúning Slagsmál í æfingaleik hjá mótherjum Íslands á HM Frábærar fréttir fyrir Frakka Aron spilar ekki fyrr en í milliriðli Júlíus Þórir sannaði sig í starfinu „Get skilið að þetta komi mörgum spánskt fyrir sjónir“ ÍR byrjar nýja árið með besta hætti Alfreð Gísla: „Hljómar kannski hrokafullt en svona er þetta“ Mun aldrei hitta neinn sem byggir upp lið eins og Þórir Tognun í rassi en Elvar telur HM ekki í hættu Sjá meira